Dr. Ethan Nadelman er framkvæmdastjóri The Drug Policy Alliance, öflugustu baráttusamtaka Norður-Ameríku gegn fíknistríðinu. Hann er doktor í stjórnmálafræði frá Harvard og með meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics. Dr. Ethan Nadelmann heimsótti Ísland á dögunum í boði Snarrótarinnar og ræddi við stjórnmála- og embættismenn í heilbrigðiskerfinu, flutti afskaplega vel sóttan fyrirlestur í Odda og ræddi við fjölmiðlafólk.
Hér má heyra fyrirlesturinn í heild sinni.
Nadelmann er einn þekktasti baráttumaður heims gegn bann- og refsihyggju í fíkniefnamálum og gjarnan kallaður heilinn á bak við þann glæsilega árangur sem náðst hefur í Bandaríkjunum að undanförnu.
Nadelmann hefur beitt sér fyrir umbótum á réttarvörslukerfi Bandaríkjanna og er auk þess mikilvægur ráðgjafi í hinni alþjóðlegu hreyfingu gegn fíknistríðinu. Nadelmann og samtök hans eru til dæmis virkir þátttakendur í umræðunni í Mið- og Suður-Ameríku, m.a. í Urúgvæ, sem lögvæddi nýlega kannabismarkaðinn að fullu.
Heimild Snarrótin. Hér er Snarrótin á Facebook.