Smáríkinu Möltu tókst að rétta af viðskiptahalla landsins með því að selja erlendum auðmönnum ríkisborgararétt í landinu. Ríkisborgararétturinn er eftirsóttur, þar sem hann veitir ferðafrelsi og dvalarleyfi á öllu Schengen-svæðinu og aðgang að viðskiptum í öllum ríkjum Evrópusambandsins. Verðið: 650.000 evrur – eða rúmar 70 milljónir króna.
Mökum kaupenda býðst þó veglegur afsláttur, og fá vegabréf að auki fyrir aðeins 25.000 evrur, um 3 milljónir íslenskar. Efnaminni auðkýfingar geta látið sér varanleg dvalarleyfi nægja, án ríkisborgararéttar, en þau fást gegn 275.000 evra fjárfestingu í landinu. Alls er talið að maltneska ríkið hafi hagnast 850 milljónir evra á sölu ríkisborgarréttar frá 2014 til 2017.
Clik here to view.

Caruana Galizia minnst.
Daphne Caruana Galizia myrt við rannsókn á gullvegabréfum
Stjórnvöld markaðssetja þennan möguleika, að kaupa ríkisborgararétt, sem „golden visa“ eða gullvegabréf. Bloggarinn Daphne Caruana Galizia var að rannsaka þetta fyrirkomulag, maltnesk gullvegabréf, þegar hún var myrt haustið 2017. Í kjölfarið tók teymi 45 rannsóknarblaðamanna frá 15 löndum höndum saman um að ljúka þeirri rannsókn. Átakið kalla þau Daphne-verkefnið. Með í för eru OCCRP, samtökin sem stóðu að baki birtingu Panama-skjalanna.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segist aðspurð ekki láta sig málið varða enda sé veiting ríkisborgararéttar á ábyrgð stjórnvalda í hverju ríki. Eftir sem áður þurfi að vera „raunveruleg tengsl“ milli umsækjanda og ríkisins sem um ræðir.
Vellauðugir nýbúar iðulega „ekki heima“
Maltneski bloggarinn Manuel Delia lagði í leiðangur til að heimsækja nokkra hinna nýju ríkisborgara á meint aðsetur þeirra – en rússneskir milljónamæringar eru nú sagðir búa á bensínstöðvum og hálfkláruðum bílskúrum í eyríkinu. Sennilega kom það Deila ekki á óvart að meintir íbúar þessara bygginga reyndust „ekki vera heima“.
Samkvæmt fréttastofunni AP reiddu um 100.000 Kínverjar fram alls um 24 milljarða Bandaríkjadala á á árunum 2007 til 2017, til að kaupa sér ríkisborgararétt og langtíma-dvalarleyfi í öðrum löndum.
Búlgaría, Kýpur, Bretland, Portúgal …
Tímaritið Business Insider birti á síðasta ári samantekt um hvar ríkisborgararéttur og vegabréf væru til sölu. Samkvæmt skráningu miðilsins selja kýpversk stjórnvöld vegabréf nú fyrir 2 milljónir evra, eða um 250 milljónir króna.
The Independent hefur greint frá því að í Búlgaríu megi öðlast ríkisborgararétt gegn 500.000 evra kaupum á ríkisskuldabréfum til fimm ára. Í Grikklandi geti fjárfestar sótt um dvalarleyfi eftir að fjárfesta í fasteignum fyrir 250.000 evrur. Sama viðmið er viðhaft í Lettlandi, ásamt 5% þóknunar til stjórnvalda. Í Bretlandi hefur fjárfestum boðist dvalarleyfi af ólíkri gerð gegn fjárfestingum upp á 2, 5 og 10 milljónir punda.
Árið 2015 var greint frá því að portúgölsk gullvegabréf hefðu fært landinu tæplega 1,3 milljarða evra í fjárfestingu á tveimur árum. Fyrirkomulagið í Portúgal er að hver sem vill kaupa sér ríkisborgararétt þarf um leið að kaupa fasteign fyrir að lágmarki hálfa milljón evra í landinu eða, að öðrum kosti, að leggja eina milljón inn á portúgalskan bankareikning. Efnafólk og fjárfestar sem nýta sér valkostinn voru þá einkum sagðir koma frá Kína, Brasilíu, Angóla og Rússlandi.
Spánn fór svipaða leið og Portúgal, og er þar dvalarleyfi fáanlegt gegn kaupum á fasteignum að andvirði 500.000 evra eða með fjárfestingu í skuldum ríkisins.