Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Bandaríkin stofna geimher til að varðveita frið í geimnum

$
0
0

Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, fylgdi eftir fyrri yfirlýsingum Donalds Trump, á fimmtudag, og kynnti áform um stofnun nýs hers á vegum Bandaríkjanna: geimhers.

Pence vitnaði í forsetann sem sagði að Bandaríkjamenn þyrftu ekki aðeins að vera til staðar í geimnum heldur þyrftu Bandaríkin að hafa yfirburði þar.

Geimherinn verður sjötti her landsins, og bætist við flugherinn, landherinn, landhelgisgæsluna, og sjóherinn, sem inniheldur tvo heri: hinn eiginlega sjóher, Navy, og landgönguliða sjóhersins, Marine Corps. Flugherinn er sá sem síðast var stofnaður, árið 1947. Pence segir áformað að fyrstu deildir geimhersins taki til starfa árið 2020.

„Geimurinn var eitt sinn friðsælt svæði“

Pence sagði í ræðu sinni í Pentagon á fimmtudag að geimurinn hefði eitt sinn verið friðsælt svæði og óumdeilt, en hann væri nú óðum að fyllast, ekki síst af ógnum. Hann sagði fyrri ríkisstjórnir hafa meira eða minna hunsað vaxandi ógn við öryggi í geimnum. „Andstæðingar okkar hafa þegar breytt geimnum í vígvöll og Bandaríkin munu ekki skorast undan þeirri áskorun,“ sagði varaforsetinn. Hann sagði Bandaríkin alltaf hafa sóst eftir friði, „í geimi sem á jörðu“, en sagan sýni að friður fáist aðeins með afli. „Og í geimnum verður bandaríski geimherinn það afl á komandi árum.“

Meðal fyrstu áforma stjórnvalda við stofnun hersins er að setja saman úrvalslið hermanna, sem hlotið hafa þjálfun og reynslu í öðrum herjum landsins. Þetta úrvalslið verður þekkt sem Geimsérsveitin, eða Space Operations Force.

Hættulegt að hafa leiðtoga sem enginn þorir að andmæla

Donald Trump brást við ræðunni með orðsendingu á Twitter þar sem hann skrifaði: „Space Force all the way!“ Eða „Geimherinn alla leið!“

Brian Schatz, öldungadeildarþingmaður Demókrata, segir Repúblikana vera of skelfda til að segja forsetanum að hugmyndin sé slæm. „Þó að geimherinn muni ekki verða að veruleika,“ sagði hann á Twitter, „er hættulegt að hafa leiðtoga við völd sem ekki er hægt að tala ofan af brjáluðum hugmyndum.“

Fulltrúadeildarþingmaður Reúblikana, Mike Rogers, sagði á móti að þingið hafi árum saman varað við ógnum í geimnum og þá miklu hægð sem einkennt hafi þróun viðbragðs við þeim.

Stofnun hersins er háð samþykki fulltrúadeildar Bandaríkjaþings.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283