Þúsundir komu saman í Kaupmannahöfn og víðar í Danmörku síðastliðinn föstudag og mótmæltu „búrkubanninu“, lögum sem tóku gildi þann 1. ágúst og banna fólki að hylja andlit sitt á almannafæri. Lögunum er sérstaklega beint gegn búrkum og níkab, sem nokkrar konur í samfélögum múslima í Danmörku hafa klæðst. Talið er að um 150 konur klæðist að jafnaði níkab í landinu, en nær engin búrku. Jafnvel þeir stjórnmálamenn sem styðja lögin vísa þó iðulega til þeirra sem „búrkubannsins“.
Að verja frelsi allra kvenna
Á miðvikudag stal tískuhönnuður af írönskum uppruna, Reza Etamadi, senunni á tískuviku í Kaupmannahöfn með uppstillingu sinni, þar sem konur klæddust níkab og karlmenn huldu andlit sín með klútum, á meðan lögreglumenn stóðu á sviðinu og aðhöfðust ekki. „Mér ber skylda til að verja frelsi allra kvenna til tjáningar og hugsana“, sagði Etamadi við fréttamann AP. Hann sagðist ekki hafa afdráttarlausa afstöðu til klæðanna eða bannsins en hann væri sannfærður um eitt: að enginn karlmaður ætti að ákveða hverju konur klæðast.
Árás og sekt fyrir níkab
Föstudaginn 3. ágúst varð 28 ára gömul kona sú fyrsta til að fá lögreglusekt vegna brota á lögunum, fyrir að klæðast níkab á almannafæri. Konan var stödd í verslunarmiðstöð á Norður-Sjálandi þegar önnur kona reyndi að rífa af henni klæðin, og tókst það um stundarsakir. Þegar lögregla kom á vettvang hafði þolandi árásarinnar klæðst á ný. Lögreglumaður tók mynd af henni, til sönnunar um klæðaburðinn, sektaði konuna um 1.000 danskar krónur (tæplega 17.000 isk) og fyrirskipaði henni að taka annað hvort af sér höfuðklæðnaðinn eða yfirgefa almannarýmið. Samkvæmt fréttum valdi konan að fara. Konan sem ráðist hafði á hana var ekki, svo vitað sé, sektuð eða kærð.

Að nafninu til ná lögin til alls klæðnaðar sem hylur andlit fólks. Ljósmynd frá mótmælunum 10. ágúst.
Banninu hefur verið mótmælt frá því áður en lögin tóku gildi. Gagnrýnendur bannsins segja meðal annars að það muni ekki þjóna því yfirlýsta markmiði að losa konur undan kúgun trúar, hefða eða siða sem krefji þær um að dyljast með þessum hætti, heldur hrekja þær úr almannarýmum inn á heimili sín, í meiri einangrun en fyrr.