Kvennablaðið sendi Dómsmálaráðuneytinu fyrirspurn um orsakir mikillar fjölgunar á vopnuðum útköllum sérsveitar Ríkislögreglustjóra milli ára. Eins og greint var frá í frétt Kvennablaðsins á mánudag nær þrefölduðust slík útköll milli áranna 2016 og 2017, samkvæmt nýbirtri ársskýrslu embættisins.
Dómsmálaráðuneytið svaraði fyrirspurn Kvennablaðsins um hæl, þó ekki efnislega heldur til að vísa spurningunni frá sér og sagði að nær lagi væri að spyrjast fyrir hjá Ríkislögreglustjóra.
Á vefsíðu Ríkislögreglustjóra eru ekki gefin upp nein netföng. Kvennablaðið gerði tilraunir til að hringja, bæði í almenna afgreiðslu embættisins og greiningardeild, en ekki er gefið samband við sérsveitina sjálfa í símkerfi embættisins. Þær tilraunir fóru út um þúfur og hringdi út í hvert sinn, án þess að símtölunum væri svarað.
Ríkislögreglustjóri er þó með fax
Á vefnum ja.is er gefið upp faxnúmer Ríkislögreglustjóra. Ritstjórn Kvennablaðsins hvetur þá fjölmiðla sem útbúnir eru faxtæki til að setja sig í samband við embættið og inna það eftir skýringum á hinum snaraukna vopnaburði.
Ekki hafa verið tekin saman gögn, svo ritstjórn sé kunnugt, um þróun aðgengileika opinberra embætta og stofnana á Íslandi, en á dögunum kom á daginn að Tryggingastofnun Íslands gefur ekki lengur upp netföng starfsmanna eða deilda, hvorki á heimasíðu stofnunarinnar né í síma, sem hefur gert erfitt fyrir að fá svör við spurningum um starfsemi stofnunarinnar. Starfsmaður stofnunarinnar svaraði því til, þegar Kvennablaðið spurði hvers vegna netföngin væru ekki lengur aðgengileg, að tölvupóstur hefði valdið starfsfólki verulegu ónæði.
Ætla má að hliðstæð rök liggi að baki hjá embætti Ríkislögreglustjóra en ekki hefur náðst samband við starfsfólk embættisins til að fá það staðfest.