Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

5 milljón börn létust vegna stríðsátaka í Afríku 1995–2005

Allt að 5 milljón börn létust vegna átaka í Afríku á 20 ára tímabili, frá 1995 til 2015. Þetta kemur fram í rannsókn sem birt var á föstudag. Um 3 milljónir barnanna sem dóu voru 12 mánaða gömul eða yngri.

Eran Bendavid, dósent í sóttvarnarfræðum við Stanford háskóla, leiddi rannsóknina, sem birtist í læknavísindaritinu The Lancet. Í kynningu rannsóknarinnar sagði Bendavid: „Stríðsátök leiða til keðjuverkunar banvænna en óbeinna áhrifa á samfélög, sem orskast af sjúkdómum sem annars má koma í veg fyrir, næringarskorti og truflunum á grunnþjónustu á við aðgang að vatni, hreinlæti og heilbrigðisþjónustu fyrir mæður.“

Við rannsóknina var litið til 15.500 átaka í 34 af 54 löndum Afríku. Þegar átök standa sem hæst rísa dánarlíkur barna allt upp í 30%. Þá reyndust barnadauði fjórfalt tíðari þar sem átök standa í fimm ár eða lengur. Börn sem fæðast innan 50 kílómetra fjarlægðar frá átakasvæðum, á meðan á átökum stóð, reyndust í meiri hættu á að deyja á fyrsta ári en börn sem fæddust á sömu svæðum en á öðrum tíma. Áhrifin fara þverrandi með aukinni fjarlægð og tíma, en greindust enn í 100 km. fjarlægð frá átökum og allt að 8 árum eftir að átökum lýkur.

Heimild: DW.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283