Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Framtíðin er í þínum höndum

$
0
0

Breki Karlsson skrifar:

Sterk breiðfylking neytenda, sem berjast stöðugt fyrir hag félagsmanna og heimilanna í landinu, er hverju þjóðfélagi nauðsynleg. Þau veita fyrirtækjum og stjórnvöldum aðhald, stuðla að heilbrigðari viðskiptaháttum og betra samfélagi.

Flestöll fyrirtæki hafa talsmenn sem gæta þess að koma sjónarmiðum þeirra á framfæri. Eins eru þau í hagsmunasamtökum til að auðvelda aðgengi að ráðamönnum til að tryggja að hagsmunum sínum framgöngu. Fjölmiðlar veita þeim sterkt aðhald og því er nauðsynlegt að styrkja þá með því að lesa þá og kaupa. En sterkasti vettvangur neytenda er samtakamáttur Neytendasamtakanna.

Neytendasamtökin standa á tímamótum. Þau hafa að undanförnu gengið í gegnum mikla fjárhagslega endurskipulagningu sem hefur þó ótrúlega lítið bitnað á þjónustunni, en árlega leita koma tæplega 9000 mál koma á borð samtakanna. Þó ekki megi hvika frá því mikilvæga starfi sem samtökin hafa unnið síðastliðin 65 ár, þá er ljóst að margt má gera betur.

Það sem ég mun horfa til næstu tvö árin, verði ég kjörinn formaður, eru þessi þrjú áhersluatriði:

Innri uppbygging

Endurvekja þarf traust til samtakanna. Það er gert með faglegum vinnubrögðum sem byggir á gögnum og stóreflingu rannsókna á sviði neytendamála. Þá er áframhaldandi stefnumótun og fjárhagsleg endurskipulagning nauðsynleg. Æskilegt væri að lækka félagsgjöldin og koma upp einhverskonar afsláttarkjörum. Það er óæskilegt að fólk telji sig ekki hafa efni á að vera félagsmenn. Á sama tíma þarf að gæta þess að kippa ekki stoðum undan fjárhagi samtakanna. Með auknu trausti sækjum við fram og fjölgum félagsmönnum.

Efla samstarf
Efla þarf samstarf við innlend og erlend neytendasamtök. Við getum lært ótal margt af samstarfi við erlend systursamtök í stað þess að reyna að finna upp hjólið. Að sama skapi eru mýmörg samlegðartækifæri í samstarfi við innlend samtök neytenda, bæði hvað varðar rekstur en einnig sameiginleg baráttumál. Þó þarf að gæta þess að sjálfstæði og óhæði samtakanna sé í fyrirrúmi.

Miðlun í sinni víðustu mynd
Efla þarf neytendavitund í samfélaginu með fræðslu í samstarfi við fjölmiðla og önnur hagsmunafélög. Koma þarf á reglulegri neytendafræðsla í skólakerfinu og í fjölmiðlum. Gera þarf meira úr degi neytendaréttar, í samstarfi við hagaðila 15.mars á hverju ári. Þar getum við litið til Alþjólegrar fjármálalæsisviku sem Stofnun um fjármálalæsi hefur skipulagt hér á landi í samstarfi við fjölda hagaðila. Það kemur einnig inn á ímynd neytendamála, sem gæti verið betri. Þar er tækifæri til að sýna neytendarétt í sínu rétta jákvæða ljósi. Íslenskukennsla hefur til dæmis sjaldan verið skemmtilegri en í þáttunum Orðbragði, og þættirnir Ferð til fjár sýndu að fjármál þurfa ekki að vera leiðinleg. Í þessu ljósi má sýna neytendamál, án þess þó að slaka á kröfum eða baráttumálum.

Ég hef mikla reynslu af stefnumótun, innra grasrótarstarfi í almannaþágu og miðlun, eins og störf mín
hjá Stofnun um fjármálalæsi bera vitni. Ég hef verið svo lánsamur að hafa starfað með fremstu sérfræðingum á hverju sviði í gegnum tíðina og meðal annars lært að með góðu fólki sér við hlið, er allt hægt. Ég er sannfærður að með þessum þremur áhersluatriðum nái Neytendasamtökin vopnum sínum á ný og verða sú breiðfylking og umbreytingaafl sem íslenskt samfélag þarf og á skilið. En til þess að það megi verða þarftu að skrá þig í Neytendasamtökin og greiða atkvæði í kosningunum. Með því að kjósa, eða kjósa ekki, hefurðu áhrif á framtíð neytendamála á Íslandi. Skráningafrestur rennur út á miðnætti laugardaginn 20.október og kosningar fara fram viku síðar. Framtíð neytendamála er í þínum höndum.

Breki Karlsson
Höfundur er í framboði til formanns Neytendasamtakanna


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283