Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

New York-búar kusu sósíalistann Alexandriu Ocasio-Cortez til fulltrúadeildarinnar

$
0
0

Repúblikanar halda meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings og Demókratar ná meirihluta í fulltrúadeildinni. Það eru grófustu drættirnir í niðurstöðum þingkosninganna, en talning atkvæða mun halda áfram eitthvað fram á miðvikudag, hið minnsta.

Meðal annarra tíðinda, og ekki þau minnstu, eru að Alexandria Ocasio-Cortez vann þingsæti 14. kjörumdæmis New York-borgar og verður þar með yngsta konan til að ná kjöri til fulltrúadeildarinnar í sögu Bandaríkjanna.

Lýðfræðilega telst Ocasio-Cortez til Bandaríkjamanna af suður-amerískum uppruna, eða Latino-samfélagsins. Móðir hennar er frá Puerto Rico, faðir hennar frá Bronx. Hún er af verkalýðsstétt og starfaði á bar þar til síðustu mánuðina fram að prófkjöri Demókrata fyrir þessar kosningar. Síðastliðinn júní sagði Ocasio-Cortez í viðtali við Huffington Post: „Umdæmi okkar samanstendur að langstærstum hluta af fólki með lit, af verkalýðsstétt, hér er mikill fjöldi innflytjenda – og það hefur ekki átt sér fulltrúann sem við þurfum á að halda“.

Merki samtaka lýðræðislegra sósíalista í Bandaríkjunum.

Merki samtaka lýðræðislegra sósíalista í Bandaríkjunum.

Tíðindin sem felast í kjöri hennar eru þó ekki síst þau að Ocasio-Cortez lýsir eigin grundvallarafstöðu í stjórnmálum sem lýðræðislegum sósíalisma og er meðlimur í samtökunum Democratic Socialists of America: Hreyfingu lýðræðislegra sósíalista í Bandaríkjunum. Um nokkra hríð hefur hún verið með sýnilegustu og áhrifamestu þátttakendum og leiðtogum þeirrar vinstribylgju í bandarískum stjórnmálum sem fyrir forsetakosningarnar 2016 birtist í hreyfingunni að baki Bernie Sanders.

Ocasio-Cortez vill leggja niður U.S. Immigration and Customs Enforcement (ICE), hið bandaríska ígildi Útlendingastofnunar og stoðdeildar Ríkislögreglustjóra, hún segist harðlínumanneskja í baráttunni gegn hnatthlýnun, og vill að notkun kolefnaeldsneytis heyri sögunni til fyrir árið 2035. Ocasio-Cortez segir heilbrigðisþjónustu vera mannréttindi og krefst þess að háskólanám í Bandaríkjunum verði án skólagjalda. Stefnumál hennar í þessum kosningum má finna hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Latest Images

Trending Articles