Það hefur sjaldan verið heitara en nú að skarta sínum náttúrulega háralit. Colour B4 er ný og bráðsniðug lausn fyrir þá sem eru með litað hár og vilja endurheimta sinn náttúrulega lit án þess að beita hárið hörku. Colour B4 hreinsar burt ísettan háralit án þess að valda skaða, enda fullkomlega laust við ammoníak og bleikiefni. Það er tilvalið fyrir hár sem búið er að lita mikið og má ekki við því að fá í sig aflitunarefni. Colour B4 er vinsælt meðal hárgreiðslufólks.
Öruggasti árangurinn fæst með notkun Color B4 extra
“Ég prófaði þetta fyrst í september 2013 að ósk viðskiptavinar míns sem þá var með litað svart hár en ljósan náttúrulegan háralit. Við notuðum Colour B4 extra og útkoman var hreint út sagt frábær. Liturinn varð mjög jafn, kopar-brúnn og efnið hvorki þurrkði né skemmdi hárið” -Elín Birna Harðardóttir, hárgreiðslukona hjá Hár & Dekur
“Mér fannst undravert hvað hann náði að taka mikið af lit úr, enda ekki séð minn raunverulega hárlit í 12 ár. Ég hef litað hárið mitt með öllum mögulegum lit í gegnum ævina en eftir að ég notaði Colour B4 þá sést varla að ég hafi litað á mér hárið”- Hafrún, ánægður viðskiptavinur
Eftir að Colour B4 er sett í hárið er plastpoki settur yfir það til að halda hitanum. Að því loknu er mjög mikilvægt að skola hárið í 12-15 mínútur til að útkoman verði sem best.
Eftir fyrstu skolun er C efnið nuddað vel í hárið og svo skolað úr eftir eina mínútu, í minnst fimm mínútur. Að lokum er afgangurinn af efninu settur í, síðan nuddað og skolað vel úr. Gott er að ljúka þessu ferli með góðri hárnæringu sem lokar hárinu og fær mýkt í það aftur.
Kostuð kynning