Terranova er eitt af örfáum fyrirtækjum á markaðinum með góða samvisku og hefur það að leiðarljósi að framleiða besta hráefnið sem mögulegt til að bæta daglega nýtingu líkamans á næringarefnunum.
Terranova notar engin fylliefni, bindiefni né önnur íblöndunarefni. Þess vegna eru allar vörurnar þeirra í grænmetishylkjum eða í duftformi til að ekki þurfi að nota kekkjunarefni eða önnur aukaefni til að drýgja vöruna eða binda hana saman. Með þessu er öruggt mál að þú ert eingöngu að fá það sem virkar best í líkamanum úr Terranova bætiefnunum.
Með ferskri frostþurrkun koma einstakir eiginleikar ferskra, hreinna og náttúrlegra plantna fram í vörum Terranova, eiginleikar sem geyma lykilinn að kjörheilsu og hámarks nýtingu á vítamínum, steinefnum og annarri næringu. Við frostþurrkun þá er eins og virku næringarefnin vakni í líkamanum og nýtingin sé sú sama og ef jurtirnar væru borðaðar ferskar.
Annað sem aðgreinir Terranova vörurnar og gerir þær sérstakar er:
-
VÍSINDALEGA SAMSETT
Byggt á nýjustu rannsóknum og vísindalegum skilningi á næringarfræði og efnasamsetingu jurta. -
HEILDRÆN HÖNNUN
Hannað með tilliti til þarfa líkamans með sérstakri áherslu á heildræna nálgun og ómenguð innihaldsefni. -
SIÐFERÐILEG UPPSPRETTA INNIHALDSEFNA
Inniheldur fjölda lífrænna og siðgæðisvottaðra, handtíndra og villtra lækningajurta sem eru frostþurrkaðar ferskar hjá Eclectic stofnuninni. -
ENGIN FYLLIEFNI, BINDIEFNI EÐA ÖNNUR ÍBLÖNDUNAREFNI
Sérhver vara frá Terranova er laus við fylli- og bindiefni, íblöndunarefni, litarefni, bragðefni og annan óþarfa. -
ENGIN INNIHALDSEFNI ÚR DÝRARÍKINU
Allar vörur Terranova henta bæði grænmetisætum og þeim sem kjósa eingöngu jurtafæði.
Græna bomban frá Terranova.
Grunnvara sem allir ættu að taka inn á hverjum einasta degi í smoothie, safa eða vatni er Græna bomban frá Terranova.
-
Þetta er öflug en mild blanda og það þarf einungis ½ tsk á dag til að fá fulla virkni.
-
Getur hjálpað líkamanum að hreinsa sig og skilja út eiturefnum.
-
Fyllir þig af orku úr öllum grænu orkugefandi jurtunum.
-
Hreinsar óhreinindi úr líkamanum sem geta valdið óþægindum í liðum.
Green purity styður við daglegt hreinsunarferli lifrar, nýrna, húðar og þarma (án þess að hafa hægðalosandi áhrif).
Frostþurrkuðu jurtirnar í Green purity eru til dæmis: rauðrófur, grænkál, vætukarsi, steinselja, túrmerik kóríander og hveitigras. En allar þessar jurtir eru styrkjandi , andoxunarríkar og og bólgueyðandi.
Þessi dásamlega blanda hentar einnig þeim sem velja að sameina hreinsun og heilbrigðan lífstíl í daglegu lífi.
Green Purity:
-
Er algjörlega laus við fylliefni, bindiefni og önnur aukaefni.
-
Hentar grænkerum
Terranova bætiefnin eiga sér enga hliðstæðu og standa fyrir gæði, hreinleika og hámarks virkni.
Ef þú villt aðeins það besta sem mögulegt er að fá á bætiefnamarkaðinum komdu þá í Heilsuhúsið og fáðu upplýsingar um þessar einstöku og frábæru vörur.