Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

All Tomorrows Parties – Rave Tapes á Ásbrú

$
0
0

Emma meðleigjandi minn hefur verið með nýjustu plötu Mogwai – Rave Tapes – á repeat síðustu mánuði. Þetta er náttúrulega stórkostleg plata. Við stöllur erum því ansi spenntar fyrir því að hlýða á samlanda Emmu leika fyrir okkur kraftmikla og klikkaða tónlist á ATP hátíðinni í kvöld.

Sorrý Swans Fans!

Aðdáendur Swans eru að vonum sárir að hljómsveitin varð að aflýsa komu sinni á hátíðinna vegna veikinda. Vonandi verður Spiritualised Acoustic Mainline þeim einhver sárabót. Ég krossa bara fingur að Portishead haldi heilsu þar sem ég færi að grenja ef þau myndu aflýsa. Það væri vandræðalegt.

Nóg er þó af öðrum tónlistargimsteinum að taka en þeirra á meðal eru Kurt Vile & The Violators, Fuck Buttons, Devendra Banhart og Interpol. Auk þess eru stórfín íslensk bönd að spila, eins og Low Roar, Samaris, Sin Fang og Mammút. Ég fer samt að grenja ef Beth Gibbons syngur ekki fyrir mig með sinni kyngimögnuðu keðjureykjandi rödd á morgun.

 All Tomorrows Parties - Rave Tapes á Ásbrú

Friður ríkir á ásbrú

Það kítlar óneitanlega friðarsinnan í mér að fara á tónleikarhátíð á fyrrum herstöð stórveldisins í vestri. Í stað konunnar með hríðskotabyssuna sem tók á móti mér síðast mun ég hitta fyrir þúsundir tónlistarunnenda ATP hátíðarinnar. Þúsundir hermanna sem byggðu Ásbrú hafa horfið á vit nýrra ævintýra stríðsvélarinnar USA. Af einskærum áhuga mun ég þó fara í leiðsöguferð um herstöðina um helgina til þess að kynnast hversdagslífi hermannanna sem hana byggðu í yfir fimmtíu ár. Mig langar líka að skoða neðanjarðarbyrgið sem þeir fundu alveg óvart um daginn. Ég vona að leiðsögumaðurinn rati þangað.

Bókabingó og bíósýningar

Alls konar spennandi afþreying í boði á milli stórtónleika – eins og til dæmis bókabingó. Ég hef aldrei prófað bókabingó! Tónlistarspurningakeppni verður einnig á boðstólnum þar sem tónfróðir hátíðargestir geta spreytt sig á fjölda þrauta til þess að vinna leyndardómsfulla vinninga. Fótaliprir geta svo att kappi við hljómsveitir hátíðarinnar í knattspyrnuleik (Fans vs. Bands) á laugardaginn kl. 16.00. Pant vera tipsý klappstýra á kantinum!

Draumabandið Portishead er búið að setja saman kvikmyndaveislu í tilefni hátíðarinnar. Af auglýstum myndum er „Me And You And Everyone We Know“ í uppáhaldi en hún er með furðulegri myndum sem ég hef séð. Hún er stórskrýtin og skemmtileg en þar er líka að finna senu sem er það epísk að hún endaði á Cards Against Humanity spjaldi.

Af gefnu tilefni

Það hefur oft borið á því að lögreglan hafi mikinn viðbúnað á tónlistarhátíðum sem þessum. Skemmst er að minnast stórs teymis óeinkennisklæddra lögreglumanna er leituðu á gestum Secret Solstice hátíðarinnar. Á meðan ég fagna því að lögreglan vilji gæta öryggis hátíðargesta vil ég minna á að án samþykkis leitarþola er lögreglunni skylt að afla heimildar hjá dómara til þess að leita á fólki. Einu undantekningarnar eru þegar lögreglan hefur rökstuddan grun um að leitarþoli sé að fremja eða hafi framið refsivert athæfi (sem varðar meira en 2 ára fangelsi) og telji leit nauðsynlega til þess að koma í veg fyrir spillingu sönnunargagna</em(meira um þetta hér).

Það er ekki tilefni til rökstudds gruns um afbrot að vera á tónlistarhátíð! Það er heldur ekki tilefni til rökstudds gruns að vera full/ur á tónlistarhátíð. Ef lögreglan vill leita á þér segðu endilega nei ef þú kærir þig ekki um það. Ef viðkomandi hyggst samt leita á þér skaltu biðja um rökstuðning á grun þeirra að þú sért að fremja eða hafir verið að fremja afbrot sem varðar fangelsisvist (s.s. ekki ölvun á almannafæri!) og spyrja hvaða sönnunargögnum þeir haldi að þú ætlir að spilla. Taktu það upp ef þú getur. Í öllum tilfellum sem lögreglan leitar á þér skaltu ganga úr skugga um að hún skrifi skýrslu um leitina. Fáðu lögreglunúmer þess lögregluþjóns sem leitar á þér. Ekki taka aðför að friðhelgi þinni þegjandi og hljóðalaust!

Sjáumst í Keflavík krakkar!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283