Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Eitt líf er einu lífi of mikið

$
0
0

Þráinn Bertelsson skrifar.

þrainn

Það hefur verið vitað um nokkurt skeið að illvirkjar, ofbeldismenn og fjöldamorðingjar koma yfirleitt úr erfiðum aðstæðum og hafa sætt barsmíðum og margvíslegri illri meðferð í æsku.

Ísraelska þjóðin, afkomendur Gyðinga sem nazistar pyntuðu, ofsóttu og reyndu að kvelja og útrýma með öllum ráðum í Heimsstyrjöldinni síðari sýnir nú þau hræðilegu sjúkdómseinkenni sem hjá einstaklingum er afleiðing óbærilegs ofbeldis í æsku.

Erfið æska er aðeins útskýring – en aldrei afsökun – á ómennskri framkomu, ofbeldi og glæpaverkum síðar á ævinni.

Sem betur fer tókst með sameinuðu átaki og fórnum þjóða og fyrir atbeina skynsamra þjóðarleiðtoga að binda endi á glæpaverk og morðæði nazista á dögum Síðari heimstyrjaldar.

dw.de

Nú er tími til kominn að umheimurinn bindist samtökum og stöðvi tafarlaust á þá útrýmingarherferð sem Ísraelsmenn eru nú í gegn Palestínumönnum. Erfið reynsla foreldra og áa núverandi Ísraelsþjóðar útskýrir eflaust að sú þjóð á um sárt að binda en hvorki afsakar né réttlætir þau glæpaverk sem hún er að fremja á varnarlausu fólki fyrir framan augu heimsins.

Börn sem létust í sprengingum Ísraelsmanna.

Börn sem létust í sprengingum Ísraelsmanna.

Við getum skilið glæpaverk og ofbeldi en við getum aldrei umborið það. Þjóðarmorð Ísraelsmanna í Palestínu verður að stöðva. Eitt líf í viðbót er einu lífi of mikið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283