Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Snittur með silungi og lárperumauki

$
0
0

Sum hráefni passa eitthvað svo vel saman, maður kynnist samsetningunni kannski í einhverjum rétti og líkar hún svo vel að maður er strax viss um að hún á við víðar en vantar kannski hugmyndir að tilbrigðum og endar svo á að gera alltaf það sama. Ég veit ekki með ykkur en mér finnst til dæmis að lárperur og reyktur lax eða silungur smellpassi saman og þess vegna bjó ég til snittur með þessari samsetningu.

Hér kemur fyrsta uppskriftin, að snittum með lárperumauki og silungi

Snittur með lárperumauki og silungi

2 litlar lárperur, vel þroskaðar, eða 1 stór

1-2 límónur

½ rautt chili, fræhreinsað og saxað smátt

lófafylli af kóríanderlaufi

nýmalaður pipar

salt

1 snittubrauð eða mjótt baguettebrauð

100 g reyktur silungur eða lax

nann2

Ég byrjaði á að taka tvær litlar, vel þroskaðar lárperur (það má auðvitað líka nota eina stóra). Afhýddi þær og skar í tvennt, fjarlægði steinana og stappaði þær svo með gaffli. Það má líka mauka þær í matvinnsluvél en mér finnst betra að hafa maukið gróft. Svo fínreif ég börkinn af 1 límónu og blandaði saman við .

nanna3

Svo hrærði ég safa úr 1-2 límónum (eftir smekk) saman við, ásamt 1 smátt söxðuðu rauðu chili og lófafylli af kóríanderlaufi og kryddaði með pipar og salti.

nanna4

Ég skar svo snittubrauð í þunnar sneiðar. Ef maður vill hafa þær örlítið stökkar er gott að léttrista þær í ofni eða á þurri pönnu en ég gerði það nú ekki.

nanna5

Ég setti kúfaða teskeið af maukinu á hverja sneið …

nanna6

… og tók svo 200 g af reyktum, bragðmiklum silungi og skar í þunnar, litlar sneiðar. Ég braut svo silungssneiðarnar saman og lagði eina sneið ofan á lárperumaukið á hverri snittu og skreytti með ögn af kóríanderlaufi.

nanna8


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283