Listamaðurinn Snorri Ásmundsson fer aldrei troðnar slóðir og það má segja að hann sé hið mesta ólíkindatól. Nýjasta sköpunarverk hans er tónlistarmyndband þar sem hann syngur dansútgáfu af ísraelska þjóðsöngnum, Hatikva, á hebresku í gervi Dönu International sem vann Eurovision-keppnina 1998 fyrir hönd Ísraels. Myndbandið kom fyrst fyrir augu almennings í gær en Snorri sýndi það á safni í Austurríki í vor.
En hvers vegna kýs Snorri að birta myndbandið opinberlega nú? Við náðum Snorra í örstutt spjall.
Ástandið fyrir botni miðjarðarhafs hefur verið mér hugleikið frá því ég var barn. Og ég hef nokkrum sinnum skipt mér að því með því að gera verk og halda sýningar. Árið 2006 t.d. Setti ég upp sýningu í Kling og Bang Gallerí sem hét, Guðs útvalda þjóð. Kveikjan að því var þegar Ísraelar gerðu innrás í Líbanon.
Hugmyndin að þessu nýja verki fæddist fyrir tveimur árum í Antwerpen og það var lengi í maganum þar til það fæddist. Og núna þegar ég horfi á ástandið í Gaza þá finnst mér góður tími til að opinbera verkið.
Hvers vegna þessi áhugi strax í æsku?
Ég hafði snemma áhuga á alþjóðamálum og heimstyrjöldunum og sá fyrir mér að Ísraelar hæfu þriðju heimstyrjöldina ef hún yrði og tengdi það ekki síst við það að fórnarlambið verður gjarnan gerandi þegar hann hefur tækifæri til þess.
Hvernig voru viðbrögð fólks við verkinu í Austurríki?
Það spurði mig ung kona í Austurríki af hverju ég, íslenskur listamaður hefði svona áhuga á þessu viðfangsefni. Ég sá að hún varð svolítið skrýtin eftir að hafa horft á vídeóið svo ég spurði hana á móti hvort hún væri gyðingur og hún játti því. Ég útskýrði þá fyrir henni að ég hefði haft áhuga á þessu síðan ég var barn.
Hún sagði mér að hún þyrfti að horfa nokkrum sinnum á vídeóið áður en hún gæti myndað sér skoðun. Hún virtist frekar undrandi en tjáði sig ekkert frekar og ég heyrði ekkert meira frá henni…
Áttu von á sterkum viðbrögðum við myndbandinu?
Já, ég gæti trúað því en maður veit aldrei, einhverjir verða reiðir en nokkrir Gyðingar vinir mínir hafa hlegið mikið af þessu. Ég er auðvitað að fara inn á eldfimt svæði svo já, ég býst við viðbrögðum.
Hvað viðbrögð ertu að reyna að kalla fram með verkinu? Hvernig hughrif viltu vekja?
Ég er að vekja fólk til umhugsunar, ég get ekkert stjórnað hughrifum fólks en jú, ég er að stinga á einhverju sem er tabú. Við höfum verið allt of meðvirk með Ísraelsþjóð sökum sektakenndar vegna helfararinnar. Nazistar drápu nokkrar milljónir Gyðinga en hvað voru mörg hundruð milljónir Indjánar drepnir í Ameríku? Margir ‘Gyðingar’ ekki síst Ísraelsmenn hafa haft helförina að féþúfu sem er ógeðslegt.
Að mínu mati eru öll trúarbrögð af hinu illa. Trúarbrögð eru mesta mein samtímans.
Hér myndbandið. Lagið sem heitir Hatikva er eins og áður sagði ísraelski þjóðsöngurinn og um upptöku sá Marteinn Thorsson. Tónlistina útsetti Árni Grétar sem líka er þekktur sem Futuregrapher.