Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Nútíma aðgerðir á sköpum kvenna – fegrunaraðgerðir eða hvað?

$
0
0

Á undanförnum vikum og mánuðum hafa verið að birtast greinar og svör við fyrirspurnum um lagfæringar á kynfærum kvenna í dagblöðum, á vefsíðum blaða og tímarita og ekki hvað síst hefur slík umræða verið í sjónvarpi. Ljósmæðrafélagi Íslands hafa borist fyrirspurnir þar að lútandi og hvort eðlilegt sé að hvatt sé til svokallaðra fegrunaraðgerða á ytri kynfærum kvenna og að þær séu taldar sjálfsagðar.

Aðgerðir á skapabörmum, það er ytri kynfærum kvenna, hafa aukist verulega á undanförnum árum í Bretlandi  og má ætla að það eigi líka við hér á landi, ekki síst í ljósi þeirrar umræðu sem á sér stað í blöðum, vefritum og á heimasíðum. Eftirspurnin eftir slíkum aðgerðum virðist vera mest hjá konum á aldrinum 20-45 ára og helstu ástæður fyrir aðgerðinni eru útlitslegar eða til að geðjast maka. Aðrar ástæður sem konur gefa upp þegar þær fara í slíka aðgerð er að þær geti ekki verið í þröngum fötum, farið á ströndina, farið í sturtu á almennings baðstöðum, hjólað án óþæginda og vandamál í kynlífinu (Liao og Creighton, 2007). Þessar konur eiga það sammerkt að innri skapabarmar eru stærri en ytri skapabarmarnir og telja þær það lýti á kynfærum sínum. Niðurstaða rannsóknar sem gerð var meðal kvenna sem höfðu farið í fegrunaraðgerð á kynfærum var sú að konur hefðu óraunhæfar væntingar til aðgerðarinnar og virtist sem svo að þær vildu falla inn í eðlilegan ramma, sem þær voru hins vegar ekki alveg viss um hver væri. Þær lýstu kynfærum sínum sem furðulegum og skrítnum, en voru ekki vissar um hvernig kynfæri kvenna gætu og ættu að líta út (Bramwell, Morland og Garden, 2007).

Ekki er óeðlilegt að ætla að sú tíska sem ríkir í dag, þar sem ungar konur raka öll hár af skapabörmum, ýti undir skapabarmaaðgerðir þar sem kynfærin verða mun sýnilegri þegar engin hár hlífa þeim. Aðgerðum af þessu tagi geta fylgt aukaverkanir, sem dæmi má nefna sýkingar,blæðingar, verkir og örvefur sem getur leitt til minni tilfinningar í kynfærunum.

Í skýrslu frá WHO (2008) kemur fram að allar aðgerðir á kynfærum kvenna, sem ekki eru gerðar af heilsufarsástæðum, en fela í sér að hluti eða öll ytri kynfæri eru fjarlægð, eða annars konar misþyrmingar á kynfærum eru viðhafðar, eru flokkaðar sem limlesting á konum. Samkvæmt skýrslu UNICEF á Íslandi (2009) kemur fram að í febrúar 2008 „strengdu tíu stofnanir Sameinuðu þjóðanna þess heit að útrýma umskurði á kynfærum kvenna, með því að styðja við ríkisstjórnir, samfélög og konur og stúlkur sem vilja hverfa frá slíkri hefð“.  Til fróðleiks má geta þess að það var ekki fyrr en árið  1985 voru sett lög í Englandi um bann við umskurði  kvenna og var það gert í kjölfar dauða þriggja ungra stúlkna sem blæddi út eftir umskurð. Á Íslandi hafa slík lög ekki verið sett, en lagt var fram frumvarp þar að lútandi veturinn 2003, en ekki talin þörf á lagasetningu, þar sem líkamsmeiðingar eru bannaðar hér á landi. Þó var árið 2005 bætt við 218. grein almennra hegningarlaga, ákvæði um refsingu við líkamsárás sem veldur tjóni á heilsu eða líkama stúlkubarna eða kvenna með því að fjarlægja kynfæri að hluta eða öllu leyti.

Í kjölfar þess sem að framan er sagt og með tilliti til þess að umskurður á kynfærum kvenna er enn þann dag í dag gerður vegna hefða og til þess að gera konur gjaldgengar á hjónabandsmarkaði, er eðlilegt að velta því upp af hvaða toga nútíma fegrunaraðgerðir á kynfærum kvenna eru. Eru þær til að fullnægja þörf kvenna til að líta vel út, eða er þessi aðgerð til að markaðssetja kynfæri kvenna á nýjan hátt, gera þær gjaldgengar á hjónabandsmarkaði í karllægu samfélagi nútímans, eða gjaldgengar í eigin augum vegna markaðssetningar klámvæðingarinnar? Er hugsanlegt að með fræðslu og styrkingu kvenna sé hægt að breyta því viðhorfi þeirra að kynfærin séu ekki eðlileg, eða útlit þeirra fullnægi ekki kröfum samtímans. Slík fræðsla getur því orðið til þess að konur þekki og viti betur hvað telst eðlilegt, því liðið betur og orðið sáttar við sjálfa sig.

Þörf er á rannsóknum sem lúta að líðan og upplifun þeirra kvenna sem óska eftir slíkum aðgerðum um leið og leitað er leiða til að fræða konur og upplýsa um eðli og útlit kynfæranna.

Fyrir hönd Ljósmæðrafélags Íslands:

Björg Sigurðardóttir, ljósmóðir MS

Kristín Rut Haraldsdóttir, ljósmóðir MS

kristinogbjorg


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283