Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekkert gat við hælinn – Kennslumyndband frá Tínu

$
0
0

Hér kemur myndband sem beðið hefur verið eftir. Hér kennir Tína frá prjónasmiðju Tínu okkur hvernig komast má hjá því að það verði gat við hælstallinn þegar við prjónum sokka. Þetta var eitt af því sem margir óskuðu eftir að læra í prjónaskapnum því það er hvimleitt að vera búin að leggja á sig mikla vinnu og vera ekki alveg sáttur við útkomuna. Tína kennir hér tvær leiðir til að komast hjá þessu vandamáli svo nú er ykkur ekkert að vanbúnaði annað en að horfa á og læra þetta í eitt skipti fyrir öll!

Verið endilega dugleg að senda okkur óskir um fleiri kennslumyndbönd frá Tínu og Kvennablaðinu!

Njótið vel!

 

Það eru fleiri uppskriftir og greinar um hannyrðir í Kvennablaðinu. Þið finnið þær hér.

Þeir sem vilja horfa á önnur kennslumyndbönd með Tínu þá má sjá þau hér í Kvennablaðinu.

Hér kennir Tína hvernig fitja má upp með tveimur litum

Hér kennir Tína 6 aðferðir við að prjóna brugðna lykkju


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283