Einkenni okkar sem þjóðar taka sífelldum breytingum samhljóða kringumstæðum hverju sinni. Flestar þjóðir Evrópu hafa haft mjög sterkar skoðanir á þjóðareinkennum annarra þjóða og þá sérstaklega á grannþjóðum sínum.
Þjóðir á meginlandi Evrópu hafa sterkar skoðanir á Þjóðverjum ef marka má könnun sem Rannsóknarmiðstöðin Pew lét gera. Rannsóknin miðaði aðallega að því að kanna traust fólks í Evrópu til Evrópusambandsins, en áhugaverðar hliðarniðurstöður létu sig ekki vanta. Í ljós kom að af þeim þjóðum sem spurðar voru eru Þjóðverjar taldir hrokafyllstir Evrópubúa, næst á eftir Frökkum. Þjóðverjar, sem jafnframt eru taldir traustsins verðir, telja sig sjálfa einnig vera það. Það er því samhljómur milli aðspurðra Evrópuríkja um þá dyggð.
Aftur á móti telja Þjóðverjar sig sýna mesta samhygð en hinar þjóðirnar eru á öndverðum meiði og segja Þjóðverja hafa minnstu samhygðina. Af niðurstöðu könnunarinnar að dæma hafa flestar þjóðir jákvæða ímynd af sjálfum sér en misjákvæða ímynd af hinum. Könnunin sýnir svo skemmtilega að þó staðalímyndir sumra þjóða taki breytingum þá eru aðrar að festa sig í sessi.