Mér áskotnaðist lítill viðarkistill með svo fallegu mótífi á lokinu. Ég hugsaði strax að þetta væri nú fallegt sem heklað snjókorn svo ég ákvað að teikna það upp og láta til skarar skríða. Uppskriftin er hér fyrir neðan.
Clik here to view.

Hér er fyrirmyndin.
Ég hef aldrei áður „hannað“ snjókorn, en það var mjög skemmtilegt að gera. Ég reyndi að ná fram myndinni á kistlinum eins vel og ég gat. Þetta gekk furðu vel og fljótt fyrir sig. Ég hef verið mun lengur að skilja uppskriftir af öðrum snjókornum og teikna þau upp en þetta.
Clik here to view.

Snjókornið uppteiknað.
Hér er sumsé frumraun mín í snjókornahönnun. Hvernig líst ykkur á?
Clik here to view.

Snjókornið heklað.
Ef þið eigið í vandræðum með að skilja hekltáknin þá býð ég ykkur velkomin á bloggið mitt þar sem ég er með póst sem leiðir ykkur í gegnum öll hekltáknin á einfaldan hátt! En hér er uppskriftin!
Snjókornadraumar
Skammstafanir:
ll=loftlykkja, kl=keðjulykkja, fm=fastamaska, hst=hálfur stuðull, st=stuðull, tvst=tvöfaldur stuðull, allar tegundir spora eru útskýrðar sem og hekltákning hér á blogginu mínu og má finna videolink sem útskýrir hvert og eitt þeirra.
Tungumál íslenska, US enska, UK enska, þýska, hollenska, franska, spænska, danska, japanska og rússneska.
Byrjið með að gera töfrahring/galdralykkju (dáleiðsluhringur á teikningu).
1. Umferð (appelsínugul á teikningu): 12fm í hringinn, umferð lokið með kl.
2. Umferð (græn á teikningu): 3 ll (telst sem fyrsti stuðull), 14 ll, hoppa yfir næstu fastamösku í hringnum og stuðull gerður í næstu. Endurtekið allan hringinn. Eftir þessa umferð ertu komin með 6 boga. Umferð klárað með keðjulykkju í þriðju loftlykkjuna af þeim þrem sem gerð var í upphafi.
3. Umferð (bleik á teikningu): úr fyrri umferð erum við með 6 loftlykkjuboga, en í hvern þessara boga koma eftirfarandi spor. Það er best að hafa teikninguna við höndina. Eftirfarandi spor eru hekluð í hvern loftlykkjuboga *2fm, 3hst, 3st, 3hst, 2fm* Þessi umferð er síðan lokið með keðjulykkju í fyrstu fm sem gerð var.
4. Umferð (ryðrauð á teikningu): í þessari umferð erum við að hekla nýja loftlykkjuboga sem ytri blöðin koma í. Við byrjum á að gera 3 ll (sem telst fyrsti stuðullinn) og 12 loftlykkjur í viðbót. Stuðull gerður á ný á milli 2ja blaða úr fyrri umferð, sem og áður. Hafið myndina ykkur til handar. Þetta er endurtekið allan hringinn *st, 12ll* og umferð lokið með keðjulykkju í 3ju lykkju af fyrstu 3 ll sem gerðar voru.
5. Umferð (blátt á teikningu): Nú er komið að gerð ytri blaða og þríhyrninga á milli þeirra. Það er gott að fylgja teikningunni hér. Það er um tvö mótíf að ræða, í fyrsta lagi um blöðin sem eru svipuð og þau úr 3. Umferð, í öðru lagi er um að ræða litlu þríhyrningana Byrjað er á blaðinu en í loftlykkjubogana 6 sem gerðir voru í 4. Umferð koma eftirfarandi spor *2fm, 3hst, 3st, 3tvst, 3st, 3hst, 2fm* á milli blaða eru þríhyrningarnir gerðir á eftirfarandi hátt *6ll, kl í 3.lykkju frá nál, fm í næstu, hst í næstu, st í síðustu*, tengd við „blöðin“ með fyrstu fm. Umferð lokið með kl í fyrstu fm sem gerð var.
Nú er komið að stífingu og strekkingu snjókornsins, svo það haldi vel formi. Það má gera sykurvatnsblöndu og stífa það með því og jafnvel dusta með glimmeri. En það er hægt að stífa með öðrum aðferðum líka. Ég vil ekki hafa snjókornin mín glerhörð eins og þau verða af sykurstífuninni og nenni kanski líka ekki að standa í þeirri klísturvinnu. Ég pinna þeim með títuprjónum og spreyja svo yfir þau með vel af stífelsisspreyi og jafnvel með straujárninu yfir á eftir. Það eru til spes stífelsissprey í föndurbúðum en ég nota bara þetta sem ég fæ úti í búð fyrir skyrtukraga. Ef ég vil hafa það stífara spreyja ég bara meira og renni stundum yfir þau með straujárninu. Það er líka svo góð lykt af því. Ef ég vil hafa þau harðari nota ég stífelsi sem er fljótandi og verða þau þá alveg jafn hörð og eftir sykurstífun, bara án klísturs og nota ég þá sykurinn minn frekar í bakstur.