Benjamín Julian skrifar.
Palestínumaðurinn Ramez Rassas kom til Íslands í nóvember í fyrra. Í febrúar 2014 var honum vísað úr landi. Lengi heyrðist ekkert frá honum, þar til fyrir nokkrum vikum. Þá var hann í Gaza, sem er í hers höndum.
Samstöðuhópurinn Ekki fleiri brottvísanir hóf undirskriftasöfnun, til að fá íslenska ríkið til að hjálpa honum þaðan. Kröfum var skilað í utanríkisráðuneytið, innanríkisráðuneytið og Útlendingastofnun.
Í hádeginu í dag, 30. júlí 2014, svaraði forstjóri Útlendingastofnunar fyrir meðferð stofnunarinnar á honum. Svar forstjórans staðfestir að mestu gagnrýni samtakanna Ekki fleiri brottvísanir, þó nokkurra athugasemda sé þörf.
Fullyrt er í svari Útlendingastofnunnar að íslensk yfirvöld hafi ekki lofað honum að hann yrði ekki sendur til Palestínu.
Það má vera að hann hafi ekki fengið skjalfesta tryggingu, hins vegar segir hann að sér hafa verið tjáð að það myndi örugglega ekki gerast. Þar fyrir utan hafði hann bent íslenskum yfirvöldum á fimm synjanir norskra yfirvalda við hælisumsóknum hans.
Við þetta má bæta að stefna Noregs er að hafna umsóknum palestínskra hælisleitenda, sbr. ummæli aðstoðarforstjóra norsku útlendingastofnunarinnar í NRK 10. júlí sl. Tvöhundruð Palestínumenn bíða þar brottvísunar, sem hefur þó verið frestað þar til stríðinu linnir.
Íslenskum yfirvöldum, eins og öllum sem líta á málið, mátti vera ljóst hvað myndi gerast þegar Ramez var vísað til Noregs.
Fullyrt er að Útlendingastofnun hafi „fullvissað sig um að endursending til Noregs og aðstæður og málsmeðferð þar brytu ekki gegn íslenskum lögum“. Þetta er einmitt gagnrýniefnið.
Lög brjóta þá greinilega gegn einföldustu skynsemi. Sé meðferð hælisumsókna á Íslandi svo gölluð að minnsta umhugsun afsanni hana er engin innistæða fyrir umræddri fullvissu yfirvalda.
Ekki er þó útskýrt í þessu svari hvernig Útlendingastofnun, alræmd fyrir undirmönnun, fer að því að fullvissa sig um málsmeðferð í öðrum löndum.
Fullyrt er að engar ákvarðanir um endursendingar til Palestínu verði teknar af Útlendingastofnun „að svo stöddu“. Þetta er skammgóður vermir miðað við undangengin orð, því Útlendingastofnun lítur greinilega ekki svo á að Ramez hafi verið sendur til Palestínu.
Því er hér engin trygging gefin fyrir því að harmleikurinn endurtaki sig ekki strax í dag.
Við endurtökum því upphaflegu kröfuna: að engri manneskju verði vísað burt frá Íslandi meðan ekki er tryggt að hún lendi þá ekki í ómannúðlegum aðstæðum.
Fyrir hönd samtakanna Ekki fleiri brottvísanir.
Benjamín Julian
Þeir sem vilja sýna Ramez samstöðu og krefhast þess að íslenska ríkið leiti allra leiða til að fá Ramez til Íslands vinsamlega skrái sig á undirskriftalistann sem er hér í hlekk.