Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

HÚSIÐ – Nýtt app fyrir heimilið!

$
0
0

Nýlega sendi Náttúran.is frá sér appið „HÚSIÐ og umhverfið“ en hugmyndin er að gefa praktískt yfirlit yfir allt á heimilinu og í okkar nánasta umhverfi. HÚSIÐ er hugsað fyrir skóla og alla fjölskylduna enda er það fallega hannað og skrifað á mannamáli. Hönnuðir eru þær Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir.

Appið er ókeypis eins og allt sem Náttúran.is þróar til að skapa sjálfbært samfélag en HÚSIÐ komst á dögunum á Topp 10 lista yfir mest sóttu ókeypis öppin á íslenska markaðssvæðinu.

HÚSIÐ virkar þannig að þegar þú smellir á einstaka rými innan og utan dyra og síðan á einstaka hluti birtast upplýsingar um hvernig atriði eins og umhverfis- og heilsuáhrif, endurnýting, sparnaður og hagsýn og vistvæn innkaup geta tengst þeim.

Í Húsinu eru þrír flokkar, Húsið og umhverfið, Merkingar og Leikir:

Húsið og umhverfið:
í Húsinu eru 15 rými og í hverju rými er hver hlutur gagnvirkur. Þannig er auðvelt að nálgast allar upplýsingar. Húsið geymir t.d. upplýsingar um vörur, innhald, innkaup og förgun. Húsið segir þér hvaða innihald getur verið í hinum ýmsu vöruflokkum, hvernig hráefnis sé aflað og hvernig varan sé framleidd, hvaða vafasömu efni geti hugsanlega leynst í ákveðnum vörum og hvaða merkingar komi til greina í hverjum vöruflokki fyrir sig.

Merkingar:
Safn af alls kyns merkjum og vottunum sem hafa með umhverfi, sjálfbærni, endurvinnslu og hættur að gera. Aðeins með því að skilja þýðingu þeirra erum við fær um að velja jákvæðari kosti.

Leikir:
Innileikir, útileikir, náttúruleikir, föndur og góð ráð.

Húsið og umhverfið er einnig að finna í vefútgáfu á Náttúran.is undir natturan.is/heimilid/husid og tengist þar öllum greinum sem birst hafa um viðkomandi málefni.

Húsið í App Store finnurðu hér.

Húsið í Google Play Store er hér.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283