Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all 8283 articles
Browse latest View live

Plata mánaðarins júní 2017 er Sgt. Peppers Lonley Hearts Club Band með The Beatles

$
0
0

Þegar Bítlarnir komu breyttist allt! Hinn grái hversdagsleiki fékk allt í einu lit og stöðluð dægurtónlistin breyttist í skapandi og frumlegar pælingar um lífið og tilveruna með taktföstum grípandi laglínum og meitluðum textum. Ég elskaði og dáði Bítlana og allt sem þeir stóðu fyrir. Í Frímerkjasölunni Lækjargötu 6b gat maður keypt allskonar dót tengt Bítlunum; áritaðar myndir, lyklakippur, hárkollur, servéttur, glös og plaggöt í mörgum stærðum, svo nokkuð sé nefnt. Ég fjárfesti í Bítlunum og þakti veggina í herberginu mínu með þessum hetjum, keypti líka strau -myndir sem fengust í Frímerkjasölunni til að strauja eigin Bítlaboli. Ég straujaði mína Bítla í hvíta koddaverið mitt og svaf eins og engill með Bítlunum.

Plöturnar komu með jöfnu millibili og frá fyrstu stóru plötunni „Please Please Me“ sem kom út 1963 og fram að „Sgt. Peppers Lonley Hearts Club Band“ árið 1967, var heil eilífð tónlistarlega séð, en bara fimm ár í raunheimum. Stóru plöturnar urðu sjö á þessum fimm árum og allar spilaðar í tætlur eins og þær litlu sem voru æði margar. Bítlatíminn var tími sköpunar og vaxtar og ég og Bítlarnir blómstruðu.

Árið 1964 hóf tímaritið „The Beatles Monthly Book“ göngu sína og ég gerðist áskrifandi. Tímaritið sem var gert fyrir aðdáendur Bítlana, kom út mánaðarlega og var gefið út af Bítlunum en vinir þeirra sáu um útgáfuna, þar á meðal voru Mal Evans rótari Bítlana og Neil Aspinal sérlegur Bítlaráðgjafi og sáu þeir að mestu leyti um blað númer 47 sem kom út fyrsta júní 1967 og fjallaði um plötuna: „Sgt. Peppers Lonley Hearts Club Band“ sem kom í búðir sama dag. Í blaðinu renndu þeir í gegnum plötuna og sögðu frá lögunum og umslaginu, þannig að þegar mér barst platan í hendur, þekkti ég öll lögin og upplifunin að heyra loks þessa umtöluðu plötu var hrein unaðs sæla. Þess vegna langar mig nú, að renna með þér í gegnum plötuna ásamt Mal og Neil og spá í lögin og plötuumslagið á þessum tímamótum..

02-sgt

Mynd: Fyrirmyndin að Pipar liðþjálfa var til

SIDE ONE 1. “SGT. PEPPER’S LONELY HEARTS CLUB BAND”
(Lennon — McCartney)
Recording started February 1. Lead Vocal by PAUL.

PAUL sings solo in the verses but the others join in the chorus. There are audience sound eífects. The Lonely Hearts Club Band consists of four horns played by session musicians brought into the studio for that purpose. Ringo’s number is actually intro- duced at the end of this track (who IS Billy Shears anyway?) and George Martin plays the organ that links the two songs together.

01 – SGT. PEPPER’S LONELY HEARTS CLUB BAND – https://www.youtube.com/watch?v=guiNy0jSKkI

Platan byrjar líkt og maður sé staddur í tónleikasal og gestirnir spjalla saman áður en allt er keyrt af stað. Hljómsveit Pipars liðþjálfa er hljómsveitin sem spilar lögin hér í klúbbi einmana sálna, kvöld eftir kvöld. Þessu pældi ég ekki í þegar ég heyrði plötuna fyrst og ekki heldur í innihaldinu en fannst þetta bara flott nafn og Lennon legt. Seinna skynjaði ég og skildi að hér byggi meira undir en eyrað nam. Að hér væri í raun rennt yfir lífshlaup hins venjulega manns og stiklað á stóru um líf hans í gleði og sorg. Hljómsveit Pipars liðþjálfa er hér sambland af hergöngusveit og sirkusbandi sem tengir saman svipmyndir úr lífi manns í tákn heillar þjóðar.

Platan Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band varð fljótlega skotspónn pælara sem fundu sér merkingu úr ólíklegustu táknum. Eitt þeirra var þessi dularfulla persóna Billy Shears sem hér er kynntur til sögunar. Mikið var pælt en Billy þagði. Löngu seinna kom þessi skýring;

Billy Shears was basically an alias for Ringo Starr and was used as the announcement/segue for the second song on the Sgt Pepper album ‘With a little help from my friends’. Although Billy Shears was supposedly the fictional leader of the fictional Sgt Pepper’s Lonely Hearts Club Band, his name is mentioned only once in the album.

03-sgt

Mynd: Allt gengur betur með aðstoð vina

2. “WITH A LITTLE HELP FROM MY FRIENDS”
(Lennon — McCartney)
Recording started March 30. Lead Vocal by RINGO.

The Beatles started work on this one the same day that the special photographs were taken for the “Sgt. Pepper” LP sleeve. Everyone left the studio to go to Michael Cooper’s place in Chelsea — complete with all the colourful military-type gear you can see in the finished pictures! PAUL plays piano on this number and JOHN and PAUL join in the vocal with RINGO. This song was originally entitled “Bad Finger Boogie” — which appears at the top of the first hand-written version of the lyrics which John and Paul worked out.

02 – WITH A LITTLE HELP FROM MY FRIENDS – https://www.youtube.com/watch?v=L2IwCBySHmI

„Maðurinn er alltaf einn“ stendur einhversstaðar skrifað, en eigi hann vini og /eða vandamenn getur lífið orðið bærilegt þó hann búi einn. Lagið „With a Little Help From My Friends“ fjallar um það að vera einn í heiminum og árið 1967 var enginn einn þó allir væru einmana. Ég var sautján ára og pældi lítið í því hvort ég væri einn og alls ekki í einmanakenndinni. Mér fannst lagið skemmtilegt og einhvernvegin líkt sprelligosanum Ringó. Þetta var svona „Singalong“ lag eins og var svo vinsælt að kyrja í Bretlandi á þeim tíma og breska „Singalong“ hefðin var það sterk að hún hélt Bítlunum við efnið.

What would you think if I sang out of tune,
Would you stand up and walk out on me.
Lend me your ears and I’ll sing you a song,
And I’ll try not to sing out of key.
Oh I get by with a little help from my friends,
uh I get high with a little help from my friends,
Going to try with a little help from my friends.
What do I do when my love is away.
(does it worry you to be alone)
How do I feel by the end of the day
(are you sad because you’re on your own)
No I get by with a little help from my friends,
Do you need anybody,
I need somebody to love.
Could it be anybody
I want somebody to love.

With a Little Help From My Friends er skoðað og skýrt – https://www.youtube.com/watch?v=J1T1NBxIifY

04-sgt

Mynd: Að veiða demanta

3. “LUCY IN THE SKY WITH DIAMONDS”
(Lennon — McCartney).
Recording started March 2. Lead Vocal by JOHN.

John got the title for this from his son! Julian brought home a painting he’d done at school and his father asked him what it was supposed to be. “It’s Lucy in the sky with diamonds” explained Julian. PAUL and GEORGE join in the chorus and supply with vocal backing. Starts with PAUL playing Hammond Organ—using a special organ stop which gives a bell-like overchord effect which makes it sound like a celeste.

03 – LUCY IN THE SKY WITH DIAMONDS – https://www.youtube.com/watch?v=xxaOItEmu3U

Þetta lag greip mig strax, þarna var flott melódía, kröftugur taktur með smá „Singalong“ áhrifum og textinn var skemmtileg súrrealísk pæling um stefnumót. Þegar maður hittir loksins draumadísina verður allt skrýtið og öðruvísi, …svona út úr kú. Maður sér tilveruna öðrum augum og venjulegir hversdagslegir hlutir öðlast nýtt gildi, ný vídd myndast og dyr opnast inn í annan veruleika manns eigin sjálfs.

Follow her down to a bridge by a fountain
Where rocking horse people eat marshmellow pies,
Everyone smiles as you drift past the flowers,
That grow so incredibly high.
Newspaper taxis appear on the shore,
Waiting to take you away.
Climb in the back with your head in the clouds,
And you’re gone.
Lucy in the sky with diamonds,
Picture yourself on a train in a station,
With plasticine porters with looking glass ties,
Suddenly someone is there at the turnstyle.

Konan á bak við Lucy in the Sky With Diamonds – http://www.nydailynews.com/entertainment/music-arts/inspiration-behind-beatles-lucy-sky-diamonds-lucy-o-donnell-dies-age-46-article-1.407398

05-sgt

Mynd: Þetta er allt að koma

4. “GETTING BETTER”
(Lennon — McCartney).
Recording started March 9. Lead Vocal by PAUL.

GEORGE plays a tamboura on tampura, whichever you prefer to call it) — an enormous instrument which stands on the floor, looks a lot like a sitar, has four strings and produces a droning, resonant note. You can’t play actual tunes on it. JOHN and PAUL do the harmony backing. George Martin plays the piano — but he’s heard striking the actual piano strings and not the keyboard.

04 – GETTING BETTER – https://www.youtube.com/watch?v=y925oc8bnOs

Nú þegar búið er að kynna vin okkar (sem við getum kallað Billy Shear) til sögunar er kominn tími á naflaskoðun. Ég, eins og fleiri leið fyrir skólagöngu í æsku og framan af unglingsárum því ég var lagður í einelti líkt og vinur okkar Billy. En það, eins og annað líður hjá þó förin sem það markaði sitji að eilífu.

It’s getting better all the time
I used to get mad at my school
The teachers who taught me weren’t cool
You’re holding me down, turning me round
Filling me up with your rules.
I’ve got to admit it’s getting better
A little better all the time
I have to admit it’s getting better
It’s getting better since you’ve been mine.
Me used to be a angry young man
Me hiding me head in the sand
You gave me the word
I finally heard
I’m doing the best that I can.

06-sgt

Mynd: Holur og göt

5. “FIXING A HOLE”
(Lennon — McCartney)
Recording started February 21. Lead Vocal by PAUL.

PAUL plays the harpsichord, the guitar solo is by GEORGE. Nothing else to say about this one except it’s a right up-tempo do-it-yourself. Don’t you agree?

05 – FIXING A HOLE – https://www.youtube.com/watch?v=hDplVVLqQv4

Mér hefur alla tíð þótt þetta lag líkt Paul og hans stíl að semja. Það virkar einfalt og látlaust eins og öll hans verk, en það er bara yfirborð, undir liggur mikil vinna og pælingar. Framan af fannst mér lagið vera léttur bragur um húsaviðgerðir en í seinni tíð hallast ég að því að hér sé fjallað um það að vera trúr sjálfum sér, að halda sínu striki þó hugurinn leyti víðar og láti glepjast af fagurgölum eða niðurrifspúkum.

I’m fixing a hole where the rain gets in
And stops my mind from wandering
Where will it go
I’m filling the cracks that ran through the door
And kept my mind from wandering
Where will it go
And it really doesn’t matter if I’m wrong
I’m right
Where I belong I’m right
Where I belong.
See the people standing there who disagree and never win
And wonder why they don’t get in my door.
I’m painting my room in the colourful way
And when my mind is wandering
There I will go.
And it really doesn’t matter if
I’m wrong I’m right
Where I belong I’m right
Where I belong.
Silly people run around they worry me
And never ask me why they don’t get past my door.
I’m taking the time for a number of things
That weren’t important yesterday
And I still go.
I’m fixing a hole where the rain gets in
And stops my mind from wandering

07-sgt

Mynd: Hún bara hvarf

6. “SHE’S LEAVING HOME”
(Lennon — McCartney).
Recording started March 17. Lead Vocal by JOHN AND PAUL.

JOHN and PAUL sing this as a QUARTET —in other words their two voices are record- ed twice to make four. The Beatles are not heard instrumentally on this one. A harp and strings—scored by Mike Leander— form the accompaniment.

06 – SHE’S LEAVING HOME – https://www.youtube.com/watch?v=DIc8TnrC9tQ

Kveikjan að þessu lagi var frétt í dagblaði um stúlku sem lét sig hverfa.

In February 1967 McCartney read about Melanie Coe, a 17-year-old A-level schoolgirl from Stamford Hill, north London. She went missing without her car, cheque book and spare clothes. Her father was quoted as saying, „I cannot imagine why she should run away. She has everything here.“

Og maður spyr sig, hvernig voru aðstæður heimafyrir?

She´s leaving home er hreinn og tær Paul og eina lagið á plötuni sem hefur ekki þetta „Bítlasánd“ líkt og hin lögin hafa. Þegar maður hugsar um lagið og stílinn hjá Paul og hugsar svo um John og til dæmis Lucy in the Sky With Diamonds, þá skilur maður snilld Bítlana. Tveir ólíkir hugarheimar mætast og úr verður ný vídd, nýr heimur opnast, ný hljóð heyrast, ný orð myndast og ný hugsun verður til.

Lagið er undurfagurt en um leið ótrúlega dapurlegt og vekur hjá manni tómatilfinningu.

Wednesday morning at five o’clock as the day begings
Silently closing her bedroom door
Leaving the note that she hoped would say more
She goes downstairs to the kitchen clutching her hankerchief
Quietly turing the backdoor key
Stepping outside she is free.
She (we gave her most of our lives)
Is leaving (sacraficed most of our lives)
Home (we gave her everything money could buy)
She’s leaving home after living alone
For so many years. bye, bye
Father snores as his wife gets into her dressing gown
Picks up the letter that’s lying there
Standing alone at the top of the stairs
She breaks down and cries to her husband
Daddy our baby’s gone.
Why would she treat us so thoughtlessly
How could she do this to me.
She (we never though of ourselves)
Is leaving (never a thought for ourselves)
Home (we struggled hard all our lives to get by)
She’s leaving home after living alone
For so many years. bye, bye
Friday morning at nine o’clock she is far away
Waiting to keep the appointment she made
Meeting a man from the motor trade.
She what did we do that was wrong
Is having we didn’t know it was wrong
Fun fun is the one thing that money can’t buy
Something inside that was always denied
For so many years. bye, bye

Sgt Pepper ‘She’s Leaving Home’ Harpist Meets Ringo Starr – https://www.youtube.com/watch?v=xOZUKhkvLMQ

08-sgt

Mynd : Auglýsing

7. “BEING FOR THE BENEFIT OF MR. KITE”
(Lennon — McCartney)
Recording started February 17. Solo Vocal by JOHN.

John’s lyrics for this one are based on the wording he found on an old poster advertising a special benefit performance of a travelling show. The guitar solo is by PAUL and to give a sort of fairground effect there’s a quartet of harmonicas played by RINGO, GEORGE and yours truly (NEIL & MAL). John wanted to use the authentic sound of an old steam organ but there isn’t one anywhere in the world which can be played by hand—all existing models work on punched cards like a pianola works from a long roll which has holes punched in it. Instead George Martin played Hammond Organ and built up an electronic tape to give the effect John had described — using various organ recordings speeded up, slowed down, electronically distorted, played backwards and dipped in a bottle of coke. Or something. Anyway it worked.

07 – BEING FOR THE BENEFIT OF MR. KITE – https://www.youtube.com/watch?v=8LCclVtFR6o

Í sjálfu sér er engu hér við að bæta. Maður þarf líka að lyfta sér á kreik og hvað er þá betra en að fara í sirkus?

For the benefit of Mr. Kite,
There will be a show tonight
On trampoline.
The Hendersons will all be there
Late of Pablo Fanques Fair –
What a scene!
Over men and horses hoops and garters
Lastly through a hogshead of real fire!
In this way Mr. K. will challenge the world.
The celebrated Mr. K.
Performs his feat on Saturday at Bishopsgate.
The Hendersons will dance and sing,
As Mr. Kite flys through the ring
Don’t be late!
Messrs. K. and H. assure the public
Their production will be second to none
And of course Henry the Horse dances the waltz!
The band begins at ten to six,
When Mr. K. performs his tricks
Without a sound.
And Mr. H. will demonstrate
Ten summersets he’ll undertake
On solid ground.
Having been some days in preperation
A splendid time is guarenteed for all.

09-sgt

Mynd: Innri maðurinn

SIDE TWO
1. “WITHIN YOU, WITHOUT YOU”
(Harrison)
Recording started March 15. Solo Vocal by GEORGE.

GEORGE wrote this and he’s the only member of the group heard on the record- ing. The playing time of this track is 6 seconds over 5 minutes which means it’s the longest of the “Sgt. Pepper” titles by just a few seconds. GEORGE’S voice is heard very far back, blending into the instrumental sound of something called a dilruba. That’s an Indian bowed instru- ment, a bit violinish and a bit sitarish, played by an Indian friend of George. Other friends supplied the following Indian accompaniment:— three tambouras (in- cluding one played by GEORGE and one by NEIL), one tabla (sort of mini-bongo drums), one swordmandel (hope that’s the right spelling — it’s a zither-like Indian table harp played by GEORGE and you heard it on “Strawberry Fields Forever”. If you listened carefully.) In addition there were session musicians brought in to add the sounds of three cellos and eight violins.

08 – WITHIN YOU, WITHOUT YOU – https://www.youtube.com/watch?v=q2dMSfmUJec

Ég hlustaði stanslaust á plötuna allt sumarið 1967 og fannst sum lög rosa flott, önnur svona allt í lagi og tvö eða þrjú bara leiðinleg. Lagið Within You, Without You þótti mér bæði leiðinlegt og langdregið svo ég hoppaði iðulega yfir það. Tíminn leið og smám saman urðu leiðinlegu lögin með þeim flottustu á plötunni og í dag er lagið WITHIN YOU, WITHOUT YOU það lang flottasta og ég held bara að það sé merki um ég hafi þroskast smá á þessum 50 árum.

We were talking-about the space between us all
And the people-who hide themselves behind a wall of illusion
Never glimpse the truth-then it’s far too late-when they pass away.
We were talking-about the love we all could share-when we find it
To try our best to hold it there-with our love
With our love-we could save the world-if they only knew.
Try to realise it’s all within yourself
No-one else can make you change
And to see you’re really only very small,
And life flows within you and without you.
We were talking-about the love that’s gone so cold and the people,
Who gain the world and lose their soul-
They don’t know-they can’t see-are you one of them?
When you’ve seen beyond yourself-then you may find, peace of mind,
Is waiting there-
And the time will come when you see

John Lennon um Within You, Without You – https://www.youtube.com/watch?v=_2ShpHpG24I&list=UUYwPjaYOyQesq0MtwU09QTQ

10-sgt

Mynd: Og tíminn líður

2. “WHEN l’M 64”
(Lennon — McCartney)
Recording started December 10. Lead Vocal by PAUL.

PAUL plays piano as well as bass. JOHN plays guitar. JOHN, PAUL and GEORGE sing a wordless chorus which goes with the backing sound of two clarinets plus a bass clarinet which are played by session musi- cians. This number was recorded after The Beatles had finished “Strawberry Fields Forever” and before they did “Penny Lane”.

09 – WHEN l’M 64 – https://www.youtube.com/watch?v=viBlg98Z4ow

Þegar maður er 17 ára er eitt ár heil elífð og fáránlegt að láta sér detta í hug að nokkur Bítill geti orðið farlama gamalmenni, hvað þá 64 ára. Ég skyldi ekki djókið að semja lag um það að verða gamall. Þetta fannst mér púkalegt lag og finnst það enn, þrátt fyrir þá staðreynd að ég er orðinn 64 ára farlama gamalmenni með hausinn undir hendinni og prumpa á Pétur og Pál.

When I get older losing my hair,
Many years from now.
Will you still be sending me a valentine
Birthday greetings bottle of wine.
If I’d been out till quarter to three
Would you lock the door,
Will you still need me, will you still feed me,
When I’m sixty-four.
You’ll be older too,
And it you say the word,
I could stay with you.
I could be handy, mending a fuse
When your lights have gone.
You can knit a sweater by the fireside
Sunday mornings go for a ride,
Doing the garden, digging the weeds,
Who could ask for more.
Will you still need me, will you still feed me,
When I’m sixty-four.
Every summer we can rent a cottage,
In the isle of wight, if it’s not too dear
We shall scrimp and save
Grandchildren on your knee
Vera chuck & dave
Send me a postcard, drop me a line,
Stating point of view
Indicate precisely what you mean to say
Yours sincerely, wasting away
Give me your answer, fill in a form
Mine for evermore
Will you still need me, will you still feed me.

11-sgt

Mynd: Fröken stöðumælasekt

3. “LOVELY RITA’
(Lennon — McCartney).
Recording started February 22. Solo Vocal by PAUL.

This is lovely Rita, a meter maid. In other words a female traffic warden. Paul got the idea when an American visitor he was with in London remarked “Oh, I see you’ve got meter maids over here these days”. PAUL plays the piano and George Martin adds the honky tonk piano solo. JOHN, PAUL and GEORGE supply backing voices and use comb-and-paper to get special sound effects.

10 – LOVELY RITA – https://www.youtube.com/watch?v=QCHPba59128

Ekta Bítlalag. Texti lag og öll vinnsla til fyrirmyndar. Hér er eitt af þessum frábæru lögum Bítlana sem fjallar um hversdagslega hluti á þann hátt að þeir öðlast nýja vídd og nýtt líf ofar gráma hversdagsleikans sem gerir lífið skemmtilegt. Ég elskaði Rítu og elska enn og þegar ég keypti loks steríó útgáfuna af plötunni þá spilaði ég Rítu hátt og lengi og naut þess í botn að heyra bassann hjá Paul og hvernig hann fór á milli hátalara.

Lovely rita meter maid.
Lovely rita meter maid.
Lovely rita meter maid.
Nothing can come between us,
When it gets dark I tow your heart away.
Standing by a parking meter,
When I caught a glimpse of rita,
Filling in a ticket in her little white book.
In a cap she looked much older,
And the bag across her shoulder
Made her look a little like a military man.
Lovely rita meter maid,
May I inquire discreetly,
When are you free,
To take some tea with me.
Took her out and tried to win her,
Had a laugh and over dinner,
Told her I would really like to see her again,
Got the bill and rita paid it,
Took her home I nearly made it,
Sitting on the sofa with a sister or two.
Oh, lovely rita meter maid,
Where would I be without you.

12-sgt

Mynd: Ég vaknaði í morgun klár og hress

4. “GOOD MORNING, GOOD MORNING”
(Lennon — McCartney).
Recording started February 16. Lead Vocal by JOHN.

This begins with a cock crowing which was achieved by using the sound of a cock crowing! JOHN and PAUL sing the main choruses together. PAUL has an electric guitar solo. The front-line instrumentalists from SOUNDS INC. were invited to the session to play three saxophones, two trombones and a French horn. At the end you’ll hear an assortment of various animal noises including the sound of a chicken clucking. The clucking blends into the final guitar note — which, in turn, becomes the first note of the next recording!

11 – GOOD MORNING, GOOD MORNING – https://www.youtube.com/watch?v=OMu2YDuDtp4

Hver dagur öðrum líkur og lífið líður hjá.

Nothing to do to save his life call his wife in
Nothing to say but what a day how’s your boy been
Nothing to do it’s up to you
I’ve got nothing to say but it’s o.k.
Good morning, good morning…
Going to work don’t want to go feeling low down
Heading for home you start to roam then you’re in town
Everybody knows there’s nothing doing
Everything is closed it’s like a ruin
Everyone you see is half asleep.
And you’re on your own you’re in the street
Good morning, good morning…
After a while you start to smile now you feel cool.
Then you decide to take a walk by the old school.
Nothing has changed it’s still the same
I’ve got nothing to say but it’s o.k.
Good morning, good morning…
People running round it’s five o’clock.
Everywhere in town is getting dark.
Everyone you see is full of life.
It’s time for tea and meet the wife.
Somebody needs to know the time, glad that I’m here.
Watching the skirts you start to flirt now you’re in gear.
Go to a show you hope she goes.
I’ve got nothing to say but it’s o.k.

13-sgt

Mynd: Sirkusherinn

5. “SGT. PEPPER’S LONELY HEARTS CLUB BAND”
(Lennon — McCartney)
Recording started March 29. Vocal by EVERYBODY.

Now we’re back in the auditorium where this album started — so there are audience sounds again. “Sgt. Pepper —Mark II” has different words with everyone singing to- gether. And there are no horns on it this time. Merges straight into the final song . . .

12 – SGT. PEPPER’S LONELY HEARTS CLUB BAND – https://www.youtube.com/watch?v=qyf5AT1Oyqk

We’re Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
We hope you have enjoyed the show.
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
We’re sorry but it’s time to go.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band.
We’d like to thank you once again.
Sgt. Pepper’s one and only Lonely Hearts Club Band.
It’s getting very near the end.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s lonely.
Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band!

Þetta stutta innslag frá Pipar liðþjálfa er eins og áminning eða sms skeyti um að í upphafi skyldi endirinn skoða.

14-sgt

Mynd: Stillt á strengi

6. “A DAY IN THE LIFE”
(Lennon — McCartney).
Recording started January 19. Vocal shared between JOHN and PAUL.

This is the one which has the much-written- about 41-piece orchestra to accompany it. The first and last segments are sung by
Mal helps George out by knotting his necktie A for him, while Paul and Ringo Iook on. JOHN, the middle bit by PAUL. The full orchestra sound was added on February 10. This is the second longest “Sgt. Pepper” item and it plays for just over 5 minutes. JOHN plays the guitar passage at the very beginning. You might hear a voice counting just before the first big burst from the orchestra. It belongs to MAL. A bit later on it’s MAL again when you hear some- body chuckling in the background. At the end all sorts of things are happening with three pianos being played by RINGO, PAUL, MAL and JOHN plus a harmonium being played by George Martin. George says the final drawn-out chord lasts all of 42 seconds!

13 – A DAY IN THE LIFE – https://www.youtube.com/watch?v=usNsCeOV4GM

I read the news today oh, boy
About a lucky man who made the grade
And though the news was rather sad
Well I just had to laugh and
I saw the photograph

He blew his mind out in a car
He didn’t notice that the lights had changed
A crowd of people stood and stared
They’d seen his face before,
Nobody was really sure if he was from the house of lords.

I saw a film today oh, boy
The english army had just won the war
A crowd of people turned away
But I just had a look
Having read the book,
I’d love to turn you on…

Woke up, fell out of bed,
Dragged a comb across my head
Found my way downstairs and drank a cup,
And looking up I noticed I was late.

Found my coat and grabbed my hat
Made the bus in seconds flat
Found my way upstairs and had a smoke,
Somebody spoke and I went into a dream

Ah
I read the news today oh boy
Four thousand holes in blackburn, lancashire
And though the holes were rather small
They had to count them all,
Now they know how many holes it takes to fill the albert hall.
I’d love to turn you on…

Síðasta lagið á plötunni er stórvirkið „A Day In The Life“ en kveikjan að því voru tvær fyrirsagnir í dagblaði sem John Lennon stoppaði við þegar hann fletti morgunblaðinu einn daginn. Önnur var um bílslys þar sem erfingi að Guinness veldinu lést:

He blew his mind out in a car
He didn’t notice that the lights had changed
A crowd of people stood and stared
They’d seen his face before
Nobody was really sure
If he was from the House of Lords

Hin fjallaði um götóttar umferðargötur ónýtar af sinnuleysi eins og við þekkjum svo vel hér á ísaköldu landi.

I read the news today oh boy
Four thousand holes in blackburn, lancashire
And though the holes were rather small
They had to count them all,
Now they know how many holes it takes to fill the albert hall.
I’d love to turn you on…

John byrjaði strax að semja og Paul kom í heimsókn. Hann sagðist vera með setningu sem sæti föst í hausnum á honum og hann vildi losna við: „I’d love to turn you on“.
Þannig byrjaði „A Day In The Life“, lag sem var óvenju langt á mælikaraða 1967 og hálf synfónískt að auki. Ekki beint það sem menn hugsuðu þá en þarna var það nú samt með sinn þrúgandi endi og lúpuna í lokin:
“Never could be any other way”.

Sagan að baki A Day in the Life – http://www.dailymail.co.uk/news/article-2237213/A-Day-Life-Tragic-true-story-Beatles-famous-hits-revealed-new-book.html


Aukahljóðin
EXTRA SOUNDS

And that’s “Sgt. Pepper” from beginning to end. Of course we haven’t mentioned every instrument you hear all the way through —just the extra sounds. Otherwise The Beatles use their own instruments and we haven’t jotted that down each time.
So far as recording date information is concerned we’ve just shown the day when work was started on each title. On average each song took about a week of recording sessions to complete — but in most cases the week’s work was spread over a longer period. In other words The Beatles would do a bit on one song, start another and then come back to the first one.
Out of the eleven songs, three were 50-50 collaborations with John and Paul contributing an equal share of the lyrics and tune. Another four contain ideas which are, for the most part, Paul’s whilst John had the main say in the final four. So, over all, each has been responsible for an equal part of the total so far as composing is concerned. And, of course, George looked after his own special item from start to finish. And a good time is guaranteed for all!

Falin hljóð – https://www.youtube.com/watch?v=XmloyMe38Aw&list=UUYwPjaYOyQesq0MtwU09QTQ

15-sgt

Mynd: Bítlarnir í kassa

Umslagið um Sgt. Peppers Lonley Hearts Club Band

Hugmyndin að framhliðinni kom frá John Lennon. Hann birtist einn daginn með þessa skissu (sjá mynd hér að ofan) að umslagi og bar undir félagana. Þeim leist strax vel á hugmyndina með þá fjóra í miðu blóma „Flower Power“ beði með kunnar persónur allt um kring, sem þeir völdu hver fyrir sig í ást og friði.
Breski poplistamaðurinn Peter Blake var fenginn til að útfæra þessar hugmyndir í umslagið um Sgt Peppers Lonley Hearts Club Band og úr varð umslag sem lagði línurnar fyrir framtíðarumslög. Það var Gatefold (opnanlegt) í sterkum litum og á bakinu voru textarnir settir í fyrsta sinn í sögu plötuumslaga. Framhliðin er collage (samsetning) ólíkra hluta í tví og þrívídd, ásamt lifandi persónum sem mynda eina órofa heild.

Poplistamaðurinn Peter Blake – https://en.wikipedia.org/wiki/Peter_Blake_(artist)

Breski ljósmyndarinn Michael Cooper (1941–1973) sá um myndatökuna en hann var hirðljósmyndari Rolling Stones og vinur margra poppara. – https://www.morrisonhotelgallery.com/photographers/0YKUrE/Michael-Cooper

Félagarnir Mal og Neil segja hér nánar frá umstanginu við umslagið.

How Was the new album Cover taken

When you buy a new LP you may, or may not, take too much notice of the sleeve — the cardboard cover — which contains the actual record. But it would be difficult to ignore the fantas-tic sleeve produced to accompany “SGT. PEPPER’S LONELY HEARTS CLUB BAND”. It wasn’t just made like any ordinary sleeve — it was built. Planned with much ingenuity, the materials gathered together from all sorts of sources and then BUILT. Into a cardboard house worthy of Sgt. Pepper and of his four famed architects!

REPEAT IDEA

The song “Sgt. Pepper’s Lonely Hearts Club Band” had already been recorded when Paul, Neil and Mal had their first chat about the sleeve. During that conversation Paul developed his idea that “Sgt. Pepper” should come at the start of the whole LP — and be repeated near the end. So that the aibum would have one main theme, “The Sgt. Pepper Band Show”. Almost like a complete ‘live’ recording —- which is why they put audience noises on the opening number.
For this first spark came the idea that the photograph on the front of the sleeve should be linked with Sgt. Pepper. At first it was agreed that John, Paul, George and Ringo should be photographed in some sort of Salvation Army uniforms. Next stage was the suggestion for a picture montage — a photograph of many photographs making up one big crowd of people with sky above, the album’s title on Sgt. Pepper’s drum and “The Beatles” set out in words made up of flowers across the foot.
Who chose the more-than-sixty folk who should be included in the crowd picture? Well, the list was a team operation with each Beatle putting forward names of people he liked. Some dead—some very much alive. Some personal friends and many famous personalities admired for one reason or another by The Beatles.
From here on a series of thoughts had to be translated into fact and an incredible number of different planning and building operations were put into effect.

Skær efni og ýmislegt dót
BRIGHTEST PATTERNS

Burman’s theatrical agency sent a fellow to the recording studio with sample materials for the
special uniforms……………………. Beatles picked out the four brightest patterns from a pile of satin samples (Salvation Army theory went by the board!)………………………… orange and yellow patent leather shoes were ordered…………………….. Beatles nipped into Burman’s, got them selves measured up and kitted out, sorted through lots of interesting braid, froggings, hats………………… brass instruments were hired and Mal spent 4 hours polishing them up in preparation for the photo session.

Þekktar persónur
FAMOUS PEOPLE

Then there was the montage of pictures………………………… every photograph had to be selected carefully so that heads and faces would fit into the complete…………….. crowd some waxwork models were added to the line-up — including the figures of Diana Dors, Sonny Liston, Lawrence of Arabia and The Beatles ………………….. then came the final choice of pictures, the blowing-up, the colour tinting, the mounting and the final production of a massive wall-sized photo montage which was hung up behind the four uniformed, medal-draped Beatles.
Everything was in place — strips, badges, chords, tassels, lanyards (borrowed from a friendly barracks) ……………….. a stone bust, a few statuettes, a Buddha and other small ornaments to set out on the artificial grass at the very front of the picture (all these items being from the homes and personal collections of The Beatles).
The photographs were taken by Michael Cooper, the massive montage job was shared between Peter Blake and his equally artistic colleague Jan.

Vönduð framleiðsla
ELABORATE PRODUCTION

At this point it was early April, Paul was in America, the sleeve had to go into production by the end of the month. There was a lot more to do. Artists Simon and Marajke created a design, a colour wash of reds and pinks, to decorate the sleeve’s inner paper bag — the actual record container which, by simple but unworthy tradition, is normally left plain white.
So the front of the sleeve was the crowd picture and that was all O.K. The „double page” across the inside of the sleeve was O.K. too — a close-up group picture of the Sgt. Pepper Quartet. Now for the back — and onto this space went a bright fire-engine red, the vivid background behind the printed lyrics of every song used on the LP. All the words are there on the sleeve, all the words which The Beatles sing on the actual record.
Ah, yes. Something was missing. There had to be a final touch. A cardboard cut-out portrait of Sgt. Pepper and his four henchmen. To stand on your mantelpiece to the left of Great Uncle Herbert and Great Aunt Agnes.
And a good time is guaranteed for all.

16-sgt

Mynd: Baksvipur

Umslaðið er „Gatefold“ sem þýðir opnanlegt með mynd af þeim fjórum félögunum í opnunni en á bakinu eru textarnir yfir rauðum fleti með smámynd af Bítlunum neðst og Paul snýr baki í myndavélina. Þetta „tákn“ túlkuðu spekúlantar sem enn eitt merkið um að Paul væri raunverulega látinn en tvífari hans léki hlutverk hans áfram. Þessar vangaveltur gengu í nokkur ár uns menn gáfust upp á þvælunni og Paul fékk að lifa.
Á fylgispjaldi með plötunni var mynd af Pipar liðþjálfa, yfirvaraskegg, armmerki og fleira dót sem hægt var að klippa út og skreyta sig með og þannig orðið meðlimur í hljómsveit Pipars liðþjálfa.
Svo var plötupokinn sérstaklega hannaður með líðandi mynstri í rauðum tónum og var það nýlunda.

Tenglar á umslagsefni

Sgt. Peppers tekur á sig mynd – https://www.theguardian.com/music/2017/apr/27/beatles-sgt-pepper-anniversary-listen

Um steríó – http://www.mojo4music.com/25410/giles-martin-defends-new-stereo-sgt-pepper/?utm_source=OracleResponsys&utm_medium=email&utm_content=MOJ_news&utm_campaign=MOJ-E-B-170428-NEWSL-ENG-NEW&email_hash=68eb16fac184514e236a3b748f728d27

Um upptökur – http://www.rollingstone.com/music/news/inside-unheard-sgt-pepper-outtakes-exclusive-first-listen-w476067

Lennon átti hugmyndina að umslaginu – http://www.udiscovermusic.com/news/john-lennon-sgt-pepper-sketch-auction?utm_source=ka&utm_medium=fa&utm_campaign=FB%3AuDiscover-News&utm_term=01fa1099-11ab-4726-9e97-95ce56530761

Hver er hver á umslaginu – http://ultimateclassicrock.com/beatles-sgt-pepper-liverpool-festival/?trackback=fbshare_top_flat_3#photogallery-1=19

Sumar ástar – http://www.genesis-publications.com/sol/?utm_medium=email&utm_campaign=Prints%20and%20Books&utm_content=Prints%20and%20Books+CID_1e7cccc5c2ce4754c7a9441abf068780&utm_source=Email%20marketing%20software

Bláendinn – http://ultimateclassicrock.com/beatles-complete-sgt-pepper-runoff-groove/

Nokkrar staðreyndir um plötuna – http://www.mirror.co.uk/3am/celebrity-news/50-facts-beatles-sgt-peppers-10253879

Hvað veistu mikið um Sgt. Peppers plötuna? – https://macca-news.blogspot.is/p/sgt-peppers-50th-anniver.html

Hitt og þetta – http://www.rollingstone.com/music/pictures/10-things-you-didnt-know-about-the-beatles-music-20120612/the-flamenco-guitar-intro-on-bungalow-bill-was-actually-a-mellotron-0405404


Kött Grá Pjé með lagið fyrir dag rauða nefsins í ár

$
0
0

Fréttatilkynning frá UNICHEF

Nýtt lag sem Kött Grá Pjé semur fyrir UNICEF og dag rauða nefsins kynnt í dag  „Hollt að líta í kringum sig,“ segir Kött Grá Pjé Sjöunda lagið sem samið er fyrir UNICEF

Lag dags rauða nefsins í ár er samið og flutt af rapparanum Atla Sigþórssyni, sem er betur þekktur undir listamannsnafninu Kött Grá Pjé. Hefð hefur skapast fyrir því að kynna nýtt lag í aðdraganda dags rauða nefsins hjá UNICEF. Átakið nær hámarki á RÚV föstudaginn 9. júní en lagið sjálft er kynnt í dag. Hægt er að hlusta á lagið hér.

 

Lagið ber heitið Opnum dyrnar en höfundar þess ásamt Kött Grá Pjé eru þau Karó, Kristján Eldjárn og Magnús Öder. Textann gerði Kött Grá Pjé í samstarfi við Karó sem syngur viðlagið. Textinn fjallar meðal annars um það hversu gott margir hafi það í raun hér á landi og að hollt sé að líta í kringum sig og átta sig á því í hversu erfiðum aðstæðum fólk sé um allan heim. Okkur beri skylda til að leggja okkar af mörkum til að aðstoða þau sem virkilega þurfi á því að halda. Sjálfur hefur Kött Grá Pjé verið heimsforeldri hjá UNICEF í heil ellefu ár.

Allir sem koma að laginu gera það í sjálfboðavinnu. Magnús Öder og Styrmir Hauksson sáu um upptöku lagsins og hljóðblöndun.

„Við hjá UNICEF erum ákaflega þakklát öllu þessu góða fólki. Það er ómetanlegt að fá þau til liðs við okkur við að vekja athygli á degi rauða nefsins og baráttu heimsforeldra fyrir betri heimi fyrir öll börn,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi.

Auglýsing

 Sjöunda lagið sem samið er fyrir UNICEF

 Kött Grá Pjé fylgir í fótspor margra þjóðþekktra listamanna, en lagið er það sjöunda sem samið er fyrir UNICEF af þessu tilefni.

 Á síðasta degi rauða nefsins gerðu Reykjavíkurdætur og Pollapönk lag dagsins sem bar heitið Tabula rasa. Þar áður lagði FM Belfast UNICEF lið með laginu Öll í kór og árin þar á undan Páll Óskar Hjálmtýsson og Redd Lights með laginu Megi það byrja með mér, Retro Stefson með laginu Dagur rauða nefsins og Ljótu hálfvitarnir með laginu Hættu þessu væli. Baggalútur á hins vegar heiðurinn af fyrsta laginu sem samið var fyrir UNICEF á Íslandi og bar heitið Brostu.

 Dagur rauða nefsins er langstærsti viðburður ársins hjá UNICEF á Íslandi. Hann nær hámarki í beinni útsendingu á RÚV föstudaginn 9. júní þar sem grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn búa til ógleymanlegt kvöld og skora á áhorfendur að hjálpa börnum og gerast heimsforeldrar UNICEF.

 Heimsforeldrar styðja í hverjum mánuði hjálparstarf UNICEF í þágu barna um allan heim. Þeir styðja baráttu UNICEF fyrir öll heimsins börn – hvar sem þau búa og hver sem þau eru. Á degi rauða nefsins síðastliðin ár hafa þúsundir Íslendinga bæst í hóp heimsforeldra UNICEF.

Um UNICEF:

 UNICEF (Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna) hefur í tæpa sjö áratugi verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn í heiminum. Við berjumst fyrir réttindum barna á heimsvísu og sinnum bæði langtímauppbyggingu og neyðaraðstoð. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og hefur að leiðarljósi þá bjargföstu trú að öll heimsins börn eigi rétt á heilsugæslu, menntun, jafnrétti og vernd. Við erum á vettvangi í yfir 190 löndum og leggjum áherslu á að ná til allra barna – hvar sem þau eru.

Fylgist með okkur á www.unicef.is og www.facebook.com/unicefisland

 

Myndin er af vefsíðu UNICHEF

Um meint vanhæfi Eiríks Rögnvaldssonar sem meðdómsmanns

$
0
0

Þann 30. maí sl. úrskurðaði Hæstiréttur málvísindamanninn Eirík Rögnvaldsson vanhæfan til þess að taka sæti sem meðdómsmaður í máli sem höfðað var til ógildingar á þeim úrskurði mannanafnanefndar að tiltekið nafn samræmdist ekki íslenskum lögum. Forsenda dómsins er sú að þar sem Eiríkur hafi tjáð sig um atriði sem ágreiningur í málinu lýtur að, megi draga óhlutdrægni hans í efa.

Og hver eru svo þessi ummæli? Lýsti Eiríkur skoðun sinni á því hvort þetta tiltekna nafn samræmdist lögum?  Nei, það gerði hann nú ekki. Meint vanhæfi hans í málinu stafar af því að í grein sem birtist á Hugrás sumarið 2016, fjallaði Eiríkur um drög Innanríkisráðherra að frumvarpi um lagabreytingar sem lúta m.a. að nafngjöf og skráningu nafna. (Nánar tiltekið fyrirhugaðar breytingar á lögum um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962.)  Í frumvarpsdrögunum kemur fram að ætlunin sé m.a. sú að aðlaga lög um nafngiftir að túlkun Mannréttindadómstóls Evrópu á friðhelgi einkalífs en dómstóllinn hefur fellt réttinn til nafns undir friðhelgisákvæði Mannréttindasáttmála Evrópu.

Í greininni gerir Eiríkur athugasemdir við þessi frumvarpsdrög, telur margt til bóta en að annað þarfnast nánari skoðunar. Hann bendir m.a. á  eftirfarandi atriði;

  • að túlkun mannanafnanefndar á því hvaða nöfn geti tekið eignarfallsendingu sé umdeilanleg,
  • að þau viðmið sem nefndin hefur stuðst við skorti lagastoð,
  • ákveðins ósamræmis gæti í þeim kröfum sem gerðar eru til stafsetningar nafna,
  • sú krafa að stúlku sé gefið kvenmannsnafn en dreng karlmannsnafn stangist á við mannréttindasjónarmið þar sem ekki sé einhlítt að kynvitund fólks samræmist líffræðilegu kyni þess,
  • takmarkanir á rétti til þess að bera erlend nöfn og ættarnöfn samræmist ekki jafnræðissjónarmiðum
  • að krafan um að hver maður beri bæði eiginnafn og kenninafn sé órökstudd, þannig verði ekki séð að neitt sé því til fyrirstöðu að maður sé skráður undir t.d. listamannsnafni í þjóðská.
Auglýsing

Fleiri atriði eru nefnd í greininni en það sem Hæstiréttur telur valda vanhæfi Eiríks í málinu er tvennt; að hann haldi því fram að þau viðmið sem mannanafnanefnd vinnur eftir skorti lagastoð og þau ummæli að núgildandi lög feli í sér mismunun og þar með mannréttindabrot.

Það er athyglisverð niðurstaða hjá Hæstarétti að þessi ummæli geri Eirík vanhæfan til þess að hafa áhrif á niðurstöðu málins. Það er ekki persónuleg skoðun Eiríks Rögnvaldssonar að  núgildandi lög feli í sér mismunun, það er einfaldlega staðreynd sem er hverjum manni augljós. Það þarf heldur ekki langa yfirlegu til þess að sjá að sum þeirra viðmiða sem mannanafnanefnd vinnur eftir eru hvergi nefnd í lögum. Af dómnum má því draga þá ályktun að sá sem bendir á augljósar staðreyndir um löggjöf og úrskurðaframkvæmd sé þar með vanhæfur til setu í dómi í þeim málaflokki. Samkvæmt því er auðvitað fráleitt að sá sem stundað hefur lögmannsstörf sé hæfur dómari ef hann á annað borð hefur einhverntíma tekið afstöðu til þess í starfi sínu hvort lög samræmist stjórnarskrá eða mannréttindasamningum.

Hversu margir þeirra sem nú sitja í Hæstarétti ætli hafi aldrei í fyrri störfum sínum sem fræðimenn og lögmenn fjallað um það hvort sett lög standist stjórnarskrá og hvort þær reglur sem unnið er eftir samræmist lögum? Það er sannarlega áhugavert rannsóknarefni.

 

Fyrirlestrar um framtíð Kúrda

$
0
0

Næstkomandi laugardag klukkan 12 á hádegi munu tvær konur frá kúrdíska hluta Tyrklands halda fyrirlestra í Iðnó. Önnur þeirra, Ebru Günay, gekk að loknu námi til liðs við  lögfræðingateymi Öcalans, hins fangelsaða leiðtoga Kúrda sem hefur verið haldið í einangrunarfangelsi á Imrali eyju síðan 1999. Fyrir vikið var hún fangelsuð og haldið á bak við lás og slá í fimm ár. Hinn fyrirlesarinn er Havin Guneser. Hún er verkfærðingur að mennt en hefur þýtt rit Öcalans á ensku og er mjög fróð um málefni Kúrda.

Hægt er að fræðast nánar á Face Book síðu viðburðarins 

Verður dómskerfið einkaeign Sjálfstæðisflokksins?

$
0
0

Fyrirhugaðar breytingar á dómskerfinu hafa fengið töluverða athygli undanfarið. Einkum þó vegna þeirrar ákvörðunar dómsmálaráðherra að tilnefna í til setu í Landsrétti önnur dómaraefni en þá umsækjendur sem dómnefnd metur hæfasta.  Það hefur hinsvegar litla athygli vakið að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur nú mánuðum saman haft til skoðunar hvernig eftirliti með stjórnsýslu dómstóla er háttað.

Þann 1. janúar 2018 taka gildi ný dómstólalög. Í þeim er ekki gert ráð fyrir auknu eftirliti með dómstólum frá því sem verið hefur en það er nánast ekki neitt. Þetta eftirlitsleysi samræmist illa þeirri hugmynd um þrígreiningu ríkisvalds sem íslensk stjórnskipun byggist á. Sú hugmynd felur nefnilega ekki aðeins í sér að hver þáttur ríkisvaldsins eigi að njóta sjálfstæðis, heldur einnig að hver þáttur ríkisvaldsins eigi að veita hinum þáttunum tilsjón og taumhald. Á Íslandi virðist sá mikilvægi þáttur valdgreiningarinnar algerlega hafa gleymst gagnvart dómsvaldinu. Hæstiréttur getur í raun gert það sem honum bara sýnist og það gerir hann. Hæstiréttur hefur t.d. sjálfur úrskurðað að lög um endurupptökunefnd, sem væru einmitt til þess fallin að veita dómstólum aðhald, séu andstæð stjórnarskrá.

Auglýsing

Vald dómstóla er gífurlegt. Hæstiréttur hefur í raun miklu meiri völd en Alþingi og vinnubrögð dómstóla fá ótrúlega sjaldan málefnalega gagnrýni á opinberum vettvangi. Á meðan staðan er slík er stórhættulegt að einn stjórnmálaflokkur hreinlega „eigi“ áfrýjunardómstól sem mun í mörgum tilvikum hafa síðasta orðið um túlkun laga og dómafordæma.

Slæmt er að dómskerfið skuli engu eftirliti sæta, hvort heldur er dómaframkvæmd eða stjórnsýsla dómstólanna. Verra yrði þó ef dómskerfi sem nýtur svo óhóflegs sjálfstæðis verður að einkaeign stjórnmálaflokks. Ég sé ekki betur en að það sé um það bil að gerast.

 

Spegill, spegill

$
0
0

Þú setur þér markmið. Átak fram undan. Þú ætlar að byrja í ræktinni, hætta að reykja, lesa fleiri bækur eða að minnsta kosti merkilegri bækur, nýta tíma þinn betur,  hætta að eyða peningum áður en þú aflar þeirra, hugsa betur um fjölskylduna, standa þig betur í vinnunni, vera harðari í samningum þegar kemur að launaviðtali …

Allt er þetta í sjálfu sér gott og blessað. Það er gott að stefna að því að verða betri manneskja og ná betri árangri. En ótrúlega oft fara þessi metnaðarfullu plön út um þúfur og við grennumst ekki, fáum ekki launahækkun, hölum áfram að sóa tíma til ónýtis og erum í þokkabót hundóánægðar með sjálfar okkur.

Þegar vel er að gáð er það kannski ekki svo undarlegt. Við viljum breytast af því að við lítum í spegilinn og erum ósáttar við það sem við sjáum. Okkur mistekst að breyta því og sitjum uppi með eitthvað sem okkur líkar ekki við.

En kannski er önnur nálgun möguleg. Þegar allt kemur til alls er fólk sem nýtur farsældar endalaust að vinna í sjálfu sér. Ekki af því að það sé óánægt með sig heldur af því að það vill bæta það sem þegar er gott.

Auglýsing

Nú skulum við hefja nýtt átak. Í hvert sinn sem við viljum breyta einhverju skulum við skoða sjálfar okkur og í stað þess að hugsa um það sem við erum óánægðar með, skoðum þá jákvæðu þættina. Í stað þess að segja ég er of feit, segjum við; ég er ánægð með að hafa heilbrigðan líkama, ég ætla að hreyfa mig meira og borða minna til þess að líða ennþá betur í eigin skinni. Í stað þess að segja ég eyði of miklu, segjum við; mér finnst frábært að geta stjórnað því sjálf í hvað ég eyði, ég ætla að fagna því með því að leggja fyrir í einn mánuð það sem ég myndi vilja láta eftir mér en má bíða.

Það virðist kannski ekki vera svo mikill munur á því hvort við lítum svo á að við séum að breyta því sem þegar er gott í eitthvað betra eða hvort við göngum út frá því að við séum meingallaðar en prófum þetta allavega. Það getur að minnsta kosti ekki skaðað.

Sóley og „helvítis dóninn“

$
0
0

Sóley Tómasdóttir segir að hefði kona reiðst í ræðustól líkt og minn góði pírat Jón Þór í dag og notað blótsyrði hefði hún umsvifalaust misst þingsætið. Sóley vill greinilega hafa þingið þannig að það sé vont við konur.

En þarna fer sú mæta kona öldungis villur pólitískra vega. Svipað hefur gerst a.m.k. þrisvar á minna en tíu árum. Í öll skiptin velktist þau atvik um miðlana. Í eitt skiptið mjög hressilega. Minnið er nefnilega svikult verkfæri.

Tvisvar á aldarfjórðungi tók ég andköf undir ræðum . Mér svelgdist á þegar Steingrímur Jóhann kallaði Davíð Oddsson „gungu og druslu.“ Steingrímur lifði það af en mátti ekki miklu muna.

Auglýsing

Í síðara skiptið fossaði reitt blóð um æðar helsta kvenskörungs Alþingis sem hafði raunar næstlengstu ráðherrareynslu þingkvenna á þeim tíma. Núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins bað hana þá nokkuð yfirlætislega um að „róa sig.“

Henni hitnaði í hamsi og endaði á því að kalla hann af innlifaðri bræði „helvítis dóna.“

Á þeirri konu hef ég einna mestar mætur haft á minni þingtíð. Þetta var Katrín Júlíusdóttir. Hún var ekki rekin af þingi.Eftir gispið braust fram aðdáun hjá mér og fleirum. Bjarni var átalinn fyrir kvenfyrirlitningu og sýndi sjaldgæf merki um iðran. – Þetta var 2014.

Tímarnir eru, þrátt fyfir allt, breyttir, einsog sést best á því að m.a.s. Brynjar Níelsson er orðinn femínisti.

Samlokuþjófurinn 000000-0000

$
0
0

Þau stórtíðindi rötuðu í fjölmiðla í dag að sakamaður hefði verið dæmdur i 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að borða samloku í verslun 10:11 í Austurstræti, án þess að greiða fyrir hana. Brotið var talið varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr 19/1940. Tekið var fram í dómi Héraðsdóms að samlokan sem gæpamaðurinn borðaði hefði kostað 599 krónur.

Verðlagið á samlokunni var ekki talið varða við lög.

Sérstök mildi er sýnd í dómi héraðsdóms með því að skilorðsbinda refsinguna en henda ekki viðkomandi beint á Hraunið. Glæpamaðurinn er á skilorði í tvö ár og verður að láta vera í þann tíma að borða rándýrar samlokur í 10:11, án þess að borga fyrir þær.

Í birtingu á dómi Hérðasdóms Reykjavíkur er einnig ákveðið að sýna sérstaka mildi með því að birta ekki viðkvæmustu persónuupplýsingar sakamannsins. Nafn hans og heimilisfang er að vísu birt í dómnum, sem er aðgengilegur á netinu, en kennitala mannsins er ekki birt og er einungis sögð 000000-0000.

þetta er væntanlega gert af tilitsemi við aðstandendur.

Þessi merkilegi dómur er kveðinn upp af aðstoðarmanni dómara, Lilju Rún Sigurðardóttur, kt. 240478-3749.

Mynd: Gian Ferdinand, Creative Commons


Fréttatilkynning frá Dómsmálaráðuneytinu

$
0
0

Alþingi staðfesti í dag fimmtán tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við nýjan áfrýjunardómstól á Íslandi, Landsrétt. Í ræðu sinni sagði ráðherra: „Ég var ánægð og þakklát að sjá svo marga gefa kost á sér til vandasamra verka og svo margir þeirra vel til starfans fallnir.“ Ráðherrann sagði tillögur sínar lúta að fimmtán einstaklingum með ólíkan bakgrunn sem allir ættu það sameiginlegt að búa yfir þeirri lögfræðilegu þekkingu sem embættin krefjast. Tillögur ráðherra verða nú sendar forseta Íslands til staðfestingar.

(Myndin sýnir gyðju réttvísinnar; tákn hlutleysis, jafnræðis og réttlætis)

Verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara 2017

$
0
0

Fréttatilkynning

Rannveig Marta Sarc og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir hljóta verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara 2017

Þann 1. júní 2017 var úthlutað sjöunda sinni verðlaunum úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara við athöfn sem fram fór í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Ýmissa tímamóta var getið, 15 ár eru liðin frá stofnun sjóðsins og 10 ár frá því verðlaun voru fyrst veitt. Eins var hugsað til þess að 16. júní næstkomandi hefði Kristján Eldjárn orðið 45 ára. Fram kom að sjóðurinn hefur nýlega eflst verulega eftir að Ragnhildur Friðriksdóttir (1931-2016) arfleiddi hann að veglegri fjárhæð í minningu sonar síns, Bergs Bjarnasonar (1960-2013).

Vegna alls þessa ákvað stjórn sjóðsins að verðlaunahafar skyldu vera tveir að þessu sinni og hlaut hvor um sig eina milljón króna.

Verðlaunahafarnir eru Rannveig Marta Sarc, fiðluleikari og Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðlu- og básúnuleikari.

Rannveig Marta Sarc, fæddist í Slóveníu 27. september 1995. Hún hóf fiðlunám 4 ára að aldri, fluttist til Íslands 2006 og varð þá nemandi Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzuki tónlistarskólann. Rannveig lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2014 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur en sótti þar einnig lágfiðlutíma hjá Þórunni Ósk Marinósdóttur.

Rannveig hefur nú lokið þriðja ári í bakkalárnámi við The Juilliard School í New York, og er þar nemandi Laurie Smukler.  Rannveig hefur haft sigur í mörgum keppnum, þar má nefna TEMSIG, slóvenska tónlistarkeppni fyrir ungmenni, Unga einleikara og Nótuna hér heima.  Sem einleikari hefur Rannveig komið fram með Slóvensku fílharmóníunni, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík og tvívegis með Sinfóníuhljómsveit Íslands.  Rannveig hefur mikinn áhuga á kammertónlist og hefur tvívegis komið fram með Cammerarctica á tónleikaröð þeirra Mozart við kertaljós. Síðastliðið skólaár var strengjakvartett Rannveigar valinn sem heiðurskvartett í Juilliard. Kvartettinn hélt tónleika meðal annars í Carnegie Hall og Alice Tully Hall í New York.

Rannveig hefur sótt ýmis mikilsvirt alþjóðleg námskeið og tónlistarhátíðir og mun í sumar taka þátt í Aspen Music Festival, þar sem hún sækir tíma hjá Donald Weilerstein og Sylviu Rosenberg.  Hún hefur einnig lært hjá Pinchas Zukerman, Ronald Copes, Elmar Oliveira, Sibba Bernharðssyni, Ara Þór Vilhjálmssyni, Ilya Kaler og Grigory Kalinovsky.

Auglýsing

Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. september 1985. Hún lauk framhaldsskólaprófi í fiðluleik frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar 2007 en hefur jafnframt lokið sjötta stigi frá Tónlistarskóla FÍH í djass-básúnuleik og ásamt hliðargreinum. Síðan lá leiðin til Hollands, í Codarts, Hoogeschool voor de Kunsten í Rotterdam. Þaðan lauk hún námi 2013, hlaut BA-gráðu í fiðlu- og básúnuleik frá heimstónlistardeild skólans.

Meðal tónlistarverkefna Sigrúnar á Íslandi má nefna flutning á tónlist eftir Ólöfu Arnalds í uppfærslu Nemendaleikhússins á Þrem systrum eftir Tsékof 2005 og frumflutning á tónlist eftir Kjartan Valdemarsson með Stórsveit Reykjavíkur 2007. Hún sá um Jazzgönguna á opnunardegi Jazzhátíðar Reykjavíkur 2016, þar sem brasilísk karnevaltónlist var á dagskrá. Einnig lék hún með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Stórsveit Reykjavíkur í Hofi á síðasta ári. Hún hefur tekið þátt í mörgum verkefnum í tónleikaröðum Múlans í Reykjavík. Á þessu ári hefur hún komið fram í tvígang í Freyjujazzi, tónleikum kvenna í jazzi í Listasafni Íslands. Sigrún útsetti fyrir og kom fram með stórsveitinni SigBand á alþjóðlega jazzdeginum í Hörpu 30. apríl sl. Þar var leikin tónlist frá Kúbu og Puerto Rico. Og nú allra síðast má nefna tónleika í Mengi 10. maí með Imad Muhammad el Turk tónskáldi frá Líbanon.

Sigrún hefur ferðast víða og tekið þátt í tónleikum og hátíðum með ýmsum músíköntum og hljómsveitum, nefna má Gerardo Rosales, hina norsku Brass Brothers, Akkordeonale harmoníkuhátíðina, ZuleMax, salsahljómsveit kúbanska flautuleikarans og söngkonunnar Zulemu Blanco, sem skipuð er 12 konum. Hún hefur sömuleiðis ferðast, leikið og tekið upp tónlist með Sóleyju Stefánsdóttur, Björk Guðmundsdóttur og hljómsveitinni Of Monsters and Men. Á eigin vegum hefur hún einnig ferðast til Brasilíu 2014, 2015 og 2016 þar sem hún hefur sökkt sér ofan í brasilíska tónlist.

Sigrún hefur stundað kennslustörf við Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og að auki unnið fjóra mánuði í sjálfboðavinnu 2016 og 2017 hjá Favela Brass, tónlistarskóla sem býður frítt tónlistar- og enskunám börnum og unglingum í Pereira da Silva, einu af fátækrahverfum Rio de Janeiro, kenndi þar meðal annars á málmblásturshljóðfæri. Hún stundar nú mastersnám í listkennsludeild Listaháskóla Íslands og kennir í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar.

Þeir tónlistarmenn sem áður hafa hlotið verðlaun úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara eru Kristinn H. Árnason gítarleikari (2007), Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóri, tónskáld og píanóleikari (2009), Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir harmonikuleikari (2011), Ari Bragi Kárason trompetleikari (2012), Sunna Gunnlaugsdóttir, píanóleikari og tónskáld (2014) og Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld 2016.

Dónalegur dómari

$
0
0

Í gær, þann 1. júní 2017, vísaði Hæstiréttur máli heim í hérað vegna galla á málsmeðferð. Það er í sjálfu sér ekki óvenjulegt að málum sé vísað heim en það sem gerir þetta mál sérstakt er að ástæðan fyrir heimvísuninni var dónaskapur héraðsdómara við héraðsdóm Reykjavíkur  í garð málsaðila. Það er auðvitað ekki orðað þannig í dóminum heldur segir að spurningar dómarans og athugasemdir dómara við svör málsaðila hafi gefið ástæðu til þess að draga óhlutdrægni hans í efa.

Meðal athugasemda sem Hæstiréttur bendir er eru eftirfarandi:
,,þú ert sem sagt að skrökva að bróður þínum að þú ætlir að ganga frá þessu“
,,Þú ert í raun og gefa honum rangar hugmyndir og þú ert jú þú ert að skrökva að honum“.

Dómari getur lögum samkvæmt lagt spurningar fyrir málsaðila og vitni en hann verður þó að haga máli sínu þannig að hann láti ekki í ljósi neina afstöðu í málinu enda á hann ekki að gera það fyrr en dómur er upp kveðinn. Þessu virðist dómarinn hafa gleymt, því um tölvupóst, sem áfrýjandi málsins sagði ekki fela í sér viðurkenningu á því sem gagnaðilar héldu fram í málinu, sagði dómarinn: ,,Þetta er bara algjör viðurkenning, þetta skjal.“

Kvennablaðinu er ekki kunnugt um að Hæstiréttur hafi áður vísað máli heim af þessum ástæðum en þetta er síður en svo í fyrsta sinn sem kvartað er undan framkomu dómara. Vonandi er ástæðan sú að þessháttar tilvik séu fátíð.

Dóminn má lesa hér.

Samningur SFR og Isavia í höfn

$
0
0

Í gærkvöld var skrifað undir samning SFR og Isavia. Eins og fram hefur komið var fyrri samningur felldur þann 25. apríl síðastliðinn og deilunni vísað til ríkissáttasemjara 12. maí. Á öðrum fundi samninganefndanna með ríkissáttasemjara í gær náðist óvænt samkomulag sem skrifað var undir. Samningurinn felur í sér meiri hækkun og segist Árni Stefán Jónsson formaður SFR vongóður um að hann verði samþykktur. Nýr kjarasamningur verður kynntur á fundum með félagsmönnum fljótlega eftir helgi, þar verður hægt að kjósa um samninginn en kosning verður einnig rafræn.

Á myndinni eru; Árni Stefán Jónsson formaður SFR, Kristín Þóra Harðardóttir lögmaður SA, Sigurður Ólafsson framkvæmdastjóri mannauðs og árangurs hjá Isavia og Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari.

Risajaki, hátt í stærð Vatnajökuls, að brotna frá Suðurskautinu.

$
0
0

Íshella sem er á stærð við 2/3 af Vatnajökli er um það bil að brotna frá Suðurskautslandinu og reka á haf. Undanfarið hafa vísindamenn fylgst með risastórri sprungu myndast í íshelluna. Í liðinni viku lengdist sprungan hraðar en nokkru sinni fyrr eða um nærri 20 kílómetra. Aðeins tæplega 15 kílómetra langt haft virðist því eftir og telja vísindamennirnir, sem eru á vegum breskra háskóla að þegar það brestur sé fátt í vegi þess að íshellan fljóti af stað. Það gæti gerst á næstu dögum. Ef þessi íshella sem er um 5200 ferkílómetrar að flatarmáli fer á flot er þetta í raun stærsti ísjaki sem vísindamenn hafa séð brotna frá Suðurskautinu og fljóta af stað. Til samanburðar þá er Vatnajökull 8100 ferkílómetrar að stærð.

Auglýsing

Íshellan er hluti af Larsen C ísnum á Suðurskautinu og mun þessi viðburður gerbreyta landslagi svæðisins. Sjávarborð mun ekki hækka þar sem ísinn er nú þegar á floti. Ekki er vitað hvað gerist þegar þessi risajaki brotnar frá en ekki ólíklegt talið að hann brotni í minni einingar. Fjallað er um þennan viðurð í samhengi við hlýnun jarðar af manna völdum og er talið að þetta muni draga athyglina enn frekar að Parísarsamkomulaginu sem Donald Trump, Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að draga land sitt úr, í samræmi við kosningaloforð.
Greint er frá málinu meðal annars í dagblaðinu Independent.

Skilaboð frá frú Vigdísi

$
0
0

Katrín Oddsdóttir birtir skilaboð frá frú Vidísi Finnbogadóttur á Facebook síðu sinni.
Við látum lesendum eftir að geta sér til um hvað var þarna til umræðu.

„Segðu þeim að mér finnist ótækt að þingið virði ekki vilja fólksins og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu, Kata mín“ sagði frú Vigdís með rólegu, fallegu röddinni sem talar inn í hverja sálarfrumu á manni. Stuttu áður hafði hún lokið við að flytja ávarp um stjórnarskrármálið sem verður sýnt á ráðstefnu um lýðræði á Íslandi í Berkeley háskóla á morgun. Ég mun ekki óhlýðnast fyrsta kjörna kvenforseta heimsins.

 

Mun Guðni taka að sér hlutverk öryggisventils?


Viltu gefa kærustunni dýra-skartgripi?

$
0
0

Þessir eru víst að reyna að vera ægilega sniðugir en vinkonurnar kunna greinilega ekki að meta dýra-skartgripi í Tiffany öskjum.

Ég er gjörsneydd góðum gjafahugmyndum og allra erfiðast hefur mér reynst að velja kærastagjafir. Eins hallærislegur og mér finnst sá siður Dana að skrifa óskalista fyrir jól og afmæli (fullorðið fólk gerir þetta í alvöru) þá verð ég að viðurkenna að það er praktískt.  Ég hef örugglega oft gefið ömurlegar gjafir, ekki af því að ég hafi ætlað að vera sniðug heldur af því að mér datt ekkert sniðugt í hug.

Auglýsing

Þetta minnir mig annars á hræðilega vonda gjöf sem ég fékk einu sinni. Ég var 16 ára og fékk alveg óvænta gjöf frá kærastanum mínum þegar hann kom heim úr sveitinni. Mjög sérstakt hálsmen sem hann hafði búið til sjálfur. Grábrúnir angar, þrístrendir, festir á leðurreim. Mér datt helst í hug að þetta væru stilkar af einhverri plöntu sem yxi í nánd við bæinn þar sem hann hafði dvalið. Ég setti hálsmenið á mig og spurði hann hvað þetta væri.
„Þurrkaðir músahalar“ sagði hann.

rebecca_mcevoy_mouse_tail_203x152Hann var ekki að reyna að vera sniðugur heldur frumlegur. Honum fannst þetta í alvöru góð hugmynd, af því ég hafði einhverntíma sagt að hagamýs væru krútt, og varð dálítið sár þegar ég sleit festina af mér í hysteríukasti.

Ég hélt lengi að hann hefði verið svona einstaklega ósmekklegur en um daginn fann ég mynd af svipuðum grip á netinu.

Góð gjafahugmynd fyrir unga menn sem hafa aðgang að útihúsum þar sem músagangur er vandamál? Ég mæli allavega ekki með því. Konur sem vilja dýra-skartgripi eru líklegri til að falla fyrir einhverju í þessa veru:

 

caddisfly-jewelry-2

Ég mynd samt ganga úr skugga um að engin lirfa væri enn í hylkinu áður en ég pakkaði því.

Hér útskýrir franski listamaðurinn Hubert Dupart hvernig hann framleiðir dýra-skartgripi í samstarfi við lirfur vorflugunnar.

Svo má auðvitað hrekkja kærustuna með því að gefa henni dýra-skartgripi frá  Tiffany. En það er dýr djókur og ég myndi allavega ekki setja svona smekkleysu um hálsinn á mér.

snakurinn1  rottan1

 

 

Áskorun til Guðna forseta

$
0
0

Svo virðist sem ranglega hafi verið staðið að afgreiðslu Alþingis á samþykkt á tillögu dómsmálaráðherra um skipun dómara í Landsrétt.

Þegar er hafin undirskriftastöfnun þar sem skorað er á forsetann að synja lögnum staðfestingar.  Vefsíðu undirskriftasöfnunarinnar má sjá hér.

Auglýsing

Forseti Íslands er staddur í Finnlandi og á Facebook fara nú fram umræður um það hvort hann fái yfirhöfuð tækifæri til þess að taka afstöðu í þessu máli því á meðan hann er fjarverandi kemur það í hlut handhafa forsetavalds að undirrita lög. En auðvitað þarf Guðni ekkert að láta valta yfir sig. Hann getur auðveldlega lýst því yfir opinberlega að hann myndi ekki undirrita lögin að svo stöddu og það verður að teljast afar ólíklegt að handhafar forsetavalds myndu ganga gegn vilja hans ef hann gerði það.

Guðni er geðþekkur maður og yndislega alþýðlegur forseti. En það er ekki nóg að vera huggulegur, forseti verður líka að standa í lappirnar. Vonandi reynist Guðni ekki síðri öryggisventill en forveri hans.

Þeir sem vilja skora á forsetann að beita valdi sínu til þess að synja lögunum staðfestingar geta skrifað undir hér.

 

Áhrif ferðaþjónustunnar á tekjur ríkis og sveitarfélaga

$
0
0

Bein áhrif ferðaþjónustunnar á tekjur ríkis og sveitarfélaga jákvæð um 39 milljarða króna árið 2015– ætla má að óbeinu áhrifin séu umfangsmikil

Ný greining Deloitte sem gerð var fyrir Stjórnstöð ferðamála og kynnt var í dag staðfestir þær miklu tekjur sem ríki og sveitarfélög hafa beint af komum erlendra ferðamanna til Íslands. Greiningin tekur til ársins 2015 en það ár komu 1,3 milljónir ferðamanna til Íslands. Á árinu 2017 er áætlaður fjöldi ferðamanna 2,3 milljónir talsins.

Bein áhrif ferðamanna árið 2015:

  • Bein áhrif ferðamanna á tekjur og gjöld ríkissjóðs eru jákvæð um 28 milljarða króna
  • Að auki eru bein áhrif ferðamanna á tekjur og gjöld sveitarfélaga jákvæð um 11 milljarða króna.
  • Áætlað er að ferðamenn hafi greitt 25 milljarða króna í virðisaukaskatt á árinu 2015.
  • Öll óbein og afleidd hagræn áhrif koma öll til viðbótar.

 

Enn auknar tekjur á árunum 2016 og 2017

Rétt er að benda á að umrædd greining á við um árið 2015. Ferðamönnum fjölgaði um 40% milli áranna 2015 og 2016 og þeim fjölgar áfram á þessu ári. Þá er mikilvægt að hafa í huga að stór hluti ferðaþjónustunnar fór ekki inn í lægra þrep virðisaukaskattskerfisins fyrr en 1. janúar 2016. Það má því gera ráð fyrir að erlendir ferðamenn hafi síðan þá greitt mun hærri upphæð í virðisaukaskatt en sem nemur þeim 25 milljörðum króna sem þeir greiddu árið 2015.

Auglýsing

Óbeinu áhrifin veruleg

„Á undanförnum árum má segja að hið opinbera hafi fengið hádegisverðinn ókeypis, ef svo má að orði komast, þar sem ferðaþjónustan hefur aflað gríðarlegra tekna á sama tíma og litlu hefur verið varið í uppbyggingu innviða,“ segir Ásgeir Jónsson hagfræðingur en hann sat í pallborði ásamt Deloitte að kynningu lokinni. Aðspurður að því hvort hægt væri að meta á þessu stigi óbeinu áhrif ferðaþjónustunnar á hagkerfið sagði hann það erfitt, en gróflega mætti ætla að þau væru í kringum 1,5-2 sinnum bein áhrif á landsframleiðslu.

 

Stjórnvöld verða að leiða umræðuna með faglegum hætti

Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segist fagna því að fá fram vandaða og óháða greiningu á beinum tekjum og gjöldum ríkis og sveitarfélaga af ferðaþjónustunni. „Það er ljóst að þessar tekjur eru hærri en flestir gerðu ráð fyrir og ferðaþjónustan hefur haft afgerandi áhrif á afkomu opinbera geirans á undanförnum árum. Því ber að fagna. Það eru mikil tækifæri í ferðaþjónustunni og við getum ekki leyft okkur að taka ákvarðanir um atvinnugreinina sem geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar á íslenskt efnahagslíf án almennilegra greininga,“ segir Helga og vísar hér til ætlaðrar virðisaukaskattshækkunar á ferðaþjónustuna. Samtök ferðaþjónustunnar lýsa sig reiðubúin, hér eftir sem hingað til, til að eiga uppbyggilegt samtal við stjórnvöld um framtíðaruppbyggingu ferðaþjónustu á Íslandi. Áreiðanleg greining á stöðu greinarinnar er mikilvægur grunnur til ákvarðanatöku og er þessi skýrsla því mikilvægt innlegg í þá vinnu.

 

Lífið með Alzheimers

$
0
0

Arndís Valgarðsdóttir skrifar:

Að greinast með Alzheimers-sjúkdóm reynist mörgum erfitt og kvíði, óöryggi og vanlíðan getur aukist mjög við að vita ekki hvernig sjúkdómurinn hagar sér. Að fá formlega greiningu getur skýrt breytingar á hegðun sem áður hafa verið illskiljanlegar. Því er mikilvægt að fá góðar upplýsingar um sjúkdóminn til að gera sér raunhæfa mynd.

Einkenni Alzheimers-sjúkdóms eru mjög einstaklingsbundin. Í fyrstu eru algengustu einkenni sjúkdómsins minnistruflanir. Mest áberandi eru erfiðleikar við að leggja á minnið nýjar upplýsingar og rifja upp.

Algengast er að gleyma nöfnum eða orðum eða hætta að rata um áður kunnuglegar slóðir. Erfiðlega getur gengið að halda þræði í samtali eða verki ef viðkomandi verður fyrir truflun og þetta tvennt er algengasta ástæða þess að það verður erfiðara að takast á við daglegt líf.

Fólk missir oft hæfni til að tjá sig vegna þess að þeim finnst erfitt að muna réttu orðin og framburður orða getur vafist fyrir.

Hjá fólki yfir sextugt veldur Alzheimers meiri fötlun en aðrir sjúkdómar sem eru algengir hjá þessum aldurshópi. Við það bætist að algengt er að ýmis geðræn vandamál eins og þunglyndi, kvíði, breytingar á hegðun og fleira fylgi.

Auglýsing

Upplifun sjúklinga

Alzheimer er flókinn sjúkdómur og það er mikilvægt að skilja upplifun sjúklinga af greiningu betur. Algengt er að ótti við fordóma og neikvæða ímynd vegna sjúkdómsins valdi því að fólk eigi erfitt með að segja frá greiningunni og dragi sig í hlé. Sumir gera lítið úr vandamálum tengdum sjúkdómnum.

Það eru ýmsir þættir sem móta viðbrögð fólks við greiningu. Fyrst og fremst ráðast þau af því hversu alvarlegur sjúkdómurinn er talinn, hversu mikla ógn fólk upplifir af völdum hans og hversu mikilli streitu greiningin veldur.

Það sem er kannski veigamest er hugarfarið og trú fólks á eigin getu til að takast á við þennan nýja vanda. Svo skiptir auðvitað miklu máli að hafa góð félagstengsl og stuðningsnet. Bjartsýni og lausnamiðuð hugsun hjálpar fólki mikið við að laga sig að nýjum veruleika og viðhalda sjálfsmynd og tilfinningu fyrir sjálfræði.

Upplifun aðstandenda

Nánustu aðstandendur sinna oftast umönnum Alzheimers-sjúklinga, að minnsta kosti til að byrja með. Þeir þurfa því að takast á við nýjan og oft erfiðan veruleika þegar hlutverk breytast innan fjölskyldunnar. Fólk sem áður sá um sig sjálft á skyndilega á erfitt með taka ákvarðanir varðandi eigið líf. Hlutverk aðstandenda er því mikilvægt og getur haft töluverð áhrif á þeirra daglega líf og líðan.

Óvissa um framgöngu sjúkdómsins, álag vegna dvínandi getu ástvinar til að sjá um sig sjálfur og ekki síst vegna breytinga á hegðun og framkomu sem stundum fylgir, leggst misjafnlega þungt á aðstandendur. Rannsóknir benda til að það sé algengt að aðstandendur Alzheimers-sjúklinga sýni merki streitu, kvíða og jafnvel þunglyndis. Aðstandendur ættu því að huga vel að andlegri heilsu sinni og ekki hika við að leita sér aðstoðar fagfólks þegar við á.

Höfundur er sálfræðingur hjá Sálfræðingum Höfðabakka

Kvenfrelsun og kynbundið ofbeldi

$
0
0

Arnar Sverrisson skrifar:

Síðustu áratugina hefur margt verið skrifað og skrafað um ofbeldi karla gegn konum, „kynbundið“ ofbeldi eða „heimilisofbeldi“ eins og það heitir á dulmáli kvenfrelsunarsinna. „Ofbeldi ógnar bæði andlegri og líkamlegri heilsu kvenna um allan heim og er útbreiddasta mannréttindabrot okkar tíma. Ofbeldi karla gegn konum brýtur gegn grundvallarfrelsi mannkyns og er ein versta birtingarmynd kynjamisréttis.(Yfirlýsing íslenskra kvenfrelsunarsamtaka.)  „[K]ynbundið ofbeldi [er] því miður skelfilega víðtækt. Rannsóknir frá ýmsum löndum sýna að allt milli 10 og 69% kvenna verða fyrir ofbeldi af hálfu maka á lífsleiðinni.“ (Birna Þórarinsdóttir, leiðtogi Unifem á Íslandi) „Það er alveg horft framhjá því að 95% þeirra sem beita heimilisofbeldi eru karlar og 95% sem verða fyrir því eru konur.“ (Drífa Snædal, þáverandi stýra Kvennaathvarfs. Morgunblaðið 30. apríl 2005: „Þrír mánuðir eða 30 dagar?“)

 

En hver er raunveruleikinn?

Þorsteinn Sæmundsson beindi þeim tilmælum til Drífu að tilgreina heimildir fyrir staðhæfingum sínum. Síðan segir hann m.a.: „Ég hef fyrir framan mig grein úr breska blaðinu Sunday Times. Greinin er eftir blaðamanninn og rithöfundinn Patriciu Pearson. Þar stendur m.a.: Á fundi sem Alþjóðlegt félag um rannsóknir á ofbeldi (International Society for Research on Aggression) hélt í síðastliðnum mánuði greindi John Archer frá Háskólanum í Mið-Lancashire frá því að rannsóknir á þúsundum karlmanna og kvenna í Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada sýndu að í heimiliserjum væru konur jafn líklegar til að beita ofbeldi og karlmenn.“

Tölur Archers staðfesta niðurstöður bandarískra félagsfræðinga sem í 20 ár hafa sent frá sér skýrslur þess efnis að kannanir sem ná til þjóðfélagsins í heild, en takmarkast ekki við hópa kvenna sem hafa orðið fyrir ofbeldi, leiði í ljós að konur slái, löðrungi, sparki, kýli, fleygi hlutum og beiti vopnum eins oft og karlmenn. Þótt kannanir sýni að konur verði venjulega fyrir meiri skaða í átökunum sleppa karlmennirnir ekki alltaf ómeiddir þegar á þá er ráðist. Rannsókn á bandarískum sjúkrahúsum, sem birt var í ágúst 1997 og náði til eins árs, leiddi í ljós 30.000 tilvik þar sem karlmenn höfðu orðið fyrir meiðslum vegna heimilisofbeldis.

Auglýsing

Í grein sem blaðið birti síðar, eftir dálkahöfundinn Melanie Phillips, er reyndar gengið lengra og því haldið fram að nýjasta samantekt á nær 100 rannsóknum í Bretlandi og Bandaríkjunum bendi til þess að konur eigi oftar upptökin að ofbeldi á heimilum. Ofbeldi kvenna heima fyrir fari vaxandi með auknum völdum þeirra á heimilunum. Í greininni segir að margar rannsóknir á heimilisofbeldi séu hlutdrægar því að þær séu eingöngu byggðar á frásögnum kvenna sem leitað hafi til kvennaathvarfa. Þegar kannað hafi verið hverjir hefðu hlotið sýnilega áverka í heimilisátökum hafi þriðjungur þess hóps reynst vera karlmenn. Í þessu sama blaði (Sunday Times) hafa birst frásagnir af stæðilegum lögreglumönnum og jafnvel sérsveitarmönnum sem komið hafa til vinnu sinnar bláir og marðir eftir eiginkonurnar. Þessir menn neyttu ekki aflsmunar, lögðu ekki fram kærur, og tilvikin koma ekki fram í neinum skýrslum. Væntanlega sækir Drífa visku sína í upptalningar úr ársskýrslum Kvennaathvarfs.

 

4dd744c119995

 

Skýrsla Ingólfs V. Gíslasonar

Viðhorf kvenfrelsunarsinna orðar Ingólfur V. Gíslason svo: „Konur [eru] barðar og kúgaðar af körl­um og það [er] þáttur í tilraunum karla til að viðhalda völd­um sínum og halda konum niðri.“  Sjálfur er Ingólfur höfundur vandræðalegrar skýrslu, sem unnin er  fyrir Félags- og tryggingamálaráðuneytið 2008, og heitir: „Ofbeldi í nánum samböndum: Orsakir, afleiðingar, úrræði.“ Hún er m.a. vandræðaleg fyrir þá sök, að eiginlegt verkefni hins ágæta höfundar er að skrifa um ofbeldi karla gegn ástkvinnum sínum, enda þótt honum sé fullkunnugt um, að konur beiti karla sína ekki síður ofbeldi. Heiti skýrslunnar mætti því að endurspegla þá staðreynd. Hann segir t.d.: „Í þessu riti er fyrst og fremst fjallað um það ofbeldi sem konur verða fyrir í nánum samböndum, ofbeldi sem þær verða fyrir af hendi núverandi eða fyrrverandi eiginmanna, sambýlismanna eða unnusta. Tilgangurinn er að auðvelda þeim hópum og einstaklingum sem, starfs síns vegna, má reikna með að komist í tengsl við þolendur slíks ofbeldis að koma auga á einkenni ofbeldis, benda á hvað sé til ráða og hvernig konur verði best aðstoðaðar.“  Þetta er nánar útskýrt: „Afleiðingar ógnarstjórnar feðraveldis er það sem kvenna­athvörf um heiminn sjá fyrst og fremst og það er það of­beldi sem fyrst og fremst er fjallað um í þessari bók.“ (Feðraveldi er ekki útskýrt, en hugtakið í þessu sambandi (eins og mæðraveldi) á líklega rætur að rekja til mannfræðinnar og felur í sér grófa flokkun samfélaga einkum samkvæmt reglum um arf, þ.e. arfgengi frá föður til sonar. Það hefur í sjálfu sér ekkert með íslenskt nútímasamfélag að ræða.)

Hún er m.a. vandræðaleg fyrir þá sök, að eiginlegt verkefni hins ágæta höfundar er að skrifa um ofbeldi karla gegn ástkvinnum sínum, enda þótt honum sé fullkunnugt um, að konur beiti karla sína ekki síður ofbeldi.

En svo virðist sem ofannefnd ógnarstjórn sé dregin í efa: „Niðurstöður athugana þar sem Conflict Tactic Scale er notaður og niðurstöður nokkurra annarra stærri kannana hafa gefið til kynna að tíðni ofbeldis karla og kvenna í nánum samböndum sé svipuð.“  Aukin heldur: „Sænsk athugun …. sýnir … að álíka margar konur og karlar meðal sænskra háskólanema segjast hafa beitt maka eða kærasta einhverju ofbeldi og skipti þá ekki máli varðandi hlutfallið hvort um var að ræða vægt ofbeldi eða alvarlegt.“  Og si svona til að taka af allan vafa segir Ingólfur: „Karlar sem þolendur. Svarið við þeirri spurningu hvort einvörðungu konur búi við það ástand að einhver þeim nákominn beiti þær ofbeldi er einfaldlega nei. Ofbeldi í nánum samböndum er flókn­ara en svo að það verði smættað niður í ofbeldi karla gegn konum, eiginmanna gegn eiginkonum. Karlar verða fyrir því að konur beiti þá ofbeldi, ofbeldi milli para getur ver­ið gagnkvæmt, …“

 

Svarið við þeirri spurningu hvort einvörðungu konur búi við það ástand að einhver þeim nákominn beiti þær ofbeldi er einfaldlega nei. Ofbeldi í nánum samböndum er flókn­ara en svo að það verði smættað niður í ofbeldi karla gegn konum, eiginmanna gegn eiginkonum

 

Vitneskja þessa efnis hefur legið fyrir um áratuga skeið á Vesturlöndum. Meira að segja hefur komið fram í íslenskum rannsóknum: „[Að] konur sem segjast hafa beitt maka sinn eða fyrrverandi maka ofbeldi [eru] næstum því helmingi fleiri en karlar og munurinn er margfaldur þegar kemur að grófa ofbeldinu. … Helmingi fleiri konur segjast hafa beitt maka eða fyrrverandi maka ofbeldi en fjöldi karla sem segjast hafa orðið fyrir slíkri reynslu.“ (Ingólfur V. Gíslason); Jafnframt, að konur höfðu beitt maka sína (núverandi/fyrrverandi) ótilgreindu ofbeldi 7.9% tilvika, en karlar 4.1% tilvika, þegar um gróft ofbeldi var að ræða voru hlutföllin; konur 4.1%, karlar 0.7%. Á aldursbilinu 18 til 24 ára töldu 42.3% karla sig hafa orðið fyrir grófu ofbeldi, en 15.9% kvenna. („Skýrsla um orsakir, umfang og afleiðingar heimilisofbeldis og annars ofbeldis gegn konum og börnum.“ Dóms- og kirkjumálaráðuneytið 1997.)

 Silenced (1)

 

Karlar sem sökudólgar

Það er íslenskum stjórnvöldum mikið hjartans mál, að rannsaka ofbeldi karla gegn konum og fá þá til að bæta ráð sitt. Þau hafa því látið vinna þriðju skýrsluna. Sú er unnin af karlanefnd hinni nýju (sú fyrri lagði upp laupana árið 2000) fyrir Velferðarráðuneytið. Skýrslan ber nafnið: „Karlar og jafnrétti: Skýrsla og tillögur um aukinn hlut karla í jafnréttismálum,“ útgefin í  apríl 2013. Þar gætir svipaðs vandræðagangs og áður var tæpt á, hvað „kynbundið“ ofbeldi snertir. Margt er þó fróðlegt og skynsamlegt að lesa í skýrslunni, m.a. að reyna beri að forðast fordóma gegn körlum í jafnréttisumræðunni. „Hagsmunir karla og kvenna eru samtvinnaðir og afnám misréttis kemur öllum til góða. Varhugavert er að umræða um stöðu karla í jafnréttismálum fjalli þannig um karla að þeir séu álitnir „vera vandamálið“ og að um leið veiti þátttaka þeim lykilhlutverk í því að vera „lausn á vandamáli“. Ljóst er að vandasamt getur verið að finna farveg fyrir karla í umræðu um jafnréttismál sem tekur tillit til fjölda ólíkra sjónarmiða.“

Auglýsing

Ofangreind skynsemi verður þó ekki leiðarljós nefndarmönnum, því að hún telur að „þátttaka karla [sé] sérlega mikilvæg í umræðu um það sem kallað er „skaðleg karlmennska“, tegundir karlmennsku sem hindra jafnrétti og félagslegt réttlæti.“ Nánari útlistun á „skaðlegri karlmennsku“ býðst ekki. (Ei heldur bollaleggingar um skaðlega „kvenmennsku.“) Hinn huldi tilgangur skýrslunnar virðist vera að finna fræðilegar röksemdir fyrir stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum: „Markmið áætlunar ríkisstjórnarinnar um aðgerðir gegn ofbeldi karla gegn konum í nánum samböndum miða að því að fyrirbyggja ofbeldi gegn konum, styrkja úrræði fyrir konur sem beittar eru ofbeldi og vinna að verndun barna sem verða vitni að ofbeldi. Þá er þess sérstaklega getið í markmiðum að unnið skuli að úrræðum fyrir karla sem vilja hætta að beita ofbeldi.“  Hér eru karlar aftur dregnir í sökudólgadilkinn og börn spyrt við konur. Engu að síður er eins og skýrsluhöfundar hafi rætt um það, sem þeir ættu reyndar að vita, þ.e. að konur í nánum samböndum séu engar eftirbátar karla, hvað ofbeldi viðkemur: „Segja má að umræða um kynbundið ofbeldi snúi jafnan að ofbeldi karla gegn konum. Í íslenskum rannsóknum á kynbundnu ofbeldi eru ekki að finna haldgóðar upplýsingar um ofbeldi kvenna gegn körlum. Því verður ekki fjallað um þá tegund ofbeldis hér.“

Hinn huldi tilgangur skýrslunnar virðist vera að finna fræðilegar röksemdir fyrir stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum

Nú má lengi deila um, hvað séu haldgóðar upplýsingar. Þær er helst að finna í vönduðum, umfangsmiklum, vísindalegum rannsóknum á Íslandi og á Vesturlöndum – og margendurteknum með ýmis konar tilbrigðum við aðferð. Þær eru vissulega til. Því sæta þessi vinnubrögð undrum. Karlanefndin bregður aukin heldur undir sig kvenfrelsunarfætinum og segir: „Ýmislegt hefur staðið í vegi fyrir þróun í átt til jafnréttis. Benda má á að völd karla og fjölbreytt tækifæri þeirra til þess að móta samfélagið út frá hagsmunum sínum ráði miklu um hvernig miðar.“ Lesandi er kvaddur með spurn á vör. „Hver eru umrædd völd og fjölbreyttu tækifæri?“ „Eru þau önnur og rýrari en völd kvenna?“ Skýrsluhöfundar gera sér hugsanlega ekki grein fyrir þeirri staðreynd, að konur stjórna íslensku samfélagi að töluverðu leyti, enda þótt ekki hafi alls staðar tekist að særa nægjanlega margar þeirra til þátttöku í stjórnum fyrirtækja í einkageiranum. Engu að síður stjórna þær að miklu leyti uppeldi og menntun íslenskrar æsku, barnavernd og félags- og heilbrigðisþjónustu. Þær hafa setið mannsterkar í síðustu ríkisstjórnum og haft yfirstjórn fjölda ráðuneyta með höndum. Og svo hafa þær oft og tíðum tögl og haldir á heimilunum. „[Þ]að sem vekur athygli [í rannsóknum á ofbeldi kvenna] er í fyrsta lagi hversu margir karlar sæta einhverju ofbeldi frá maka (þótt ljóslega sé það oft „vægt“) og í öðru lagi hversu andlegt ofbeldi og stjórnun kvenkyns maka virðist vera. Þýsk athugun benti t.d. til þess að fimmtungur karla byggi við verulega afbrýðisemi maka og að maki hindraði tengsl karlsins við annað fólk. Sjötti hver karl sagði að maki stýrði því nákvæmlega hvert hann færi, með hverjum og hvenær hann kæmi heim.“ (Ingólfur V. Gíslason.)

accusation

Sameiginleg ábyrgð

Drífu Snædal rekast rétt orð á munn, þegar hún lætur hafa eftir sér: „Að vera laus við ofbeldi hljóta að vera mannréttindi …“ Kvenréttindakempan, hin mikilhæfa Laufey Valdimarsdóttir, tók eitt sinn í svipaðan streng.  Hún sagði kvenréttindi snúast um mannréttindi. Vitaskuld er það satt og rétt. Bæði kynin (eða öll þrjú) hljóta að bera sameiginlega ábyrgð á því að draga úr ofbeldi á öllum sviðum, þar eð ofbeldi er andstyggilegt.  Í því ljósi skýtur það óneitanlega skökku við, að bábiljan um sérstaka ábyrgð karla á slíkri óyndishegðun sé orðin að stjórnmálastefnu á Íslandi – og þar að auki stofnanavædd. Það hlýtur að vera komið að því að sameina kynin í stað þess að sundra þeim og draga í dilka. Slík kynjaaðskilnaðarstefna kann ekki góðri lukku að stýra.

Höfundur er ellilífeyrisþegi.

Viewing all 8283 articles
Browse latest View live