Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all 8283 articles
Browse latest View live

Í dag má ég – Stutt saga af langri bið

$
0
0

Þegar ég fæddist hafði ég ekkert að segja um nafn, trúfélagsaðild eða búsetu. Mér var úthlutað þessu í þeirri von að ég a.m.k. lærði að sætta mig við aðstæður. Næstu árin, eins og hjá öðrum mannöpum, var ég algerlega háður forráðamönnum og samfélaginu í kring.

Án þess að hafa kafað djúpt ofan í íslensk lög held ég að fyrstu eiginlegu aldursbundnu réttindin komi við fjórtán ára aldurinn. Þá var mér leyft að fermast, eða prestum leyft að ferma mig. Það er ólöglegt að ferma barn sem ekki er fullra fjórtán ára svo líklega er helsta vertíð ríkiskirkjunnar ein stór skipulögð glæpastarfsemi. En þarna fékk ég allavega rétt til að segja já eða nei við spurningu sem hefur engin áhrif á mig í framtíðinni og í mesta lagi staðfestir ímyndaðan samning sem gerður var fyrir mína hönd þegar ég var nýfæddur.

Þann rétt nýtti ég ekki og afþakkaði pent að vera tekinn inn í samfélag guðs. Ég var í samfélagi Hugara og ímyndaðra internetstiga og það var nóg.

Ári síðar fékk ég mikilvægari og heldur meira spennandi réttindi. Í fyrsta lagi var það rétturinn til að vera sakhæfur. Ég mátti s.s. teljast alvöru glæpamaður frammi fyrir dómstólum og átti að ábyrgjast gjörðir mínar þannig. Þó sá réttur ætti að vera ákveðin tímamót féll hann þó í skuggann af þeim næsta.

Í öðru lagi fékk ég réttinn til að stunda frjálsara kynlíf, eða kynlíf yfirleitt eða hvað svo sem þessi klausa þýðir. Sá réttur komst þó ekki í gagnið alveg jafn fljótt og áætlanir mínar höfðu gert ráð fyrir.

En það rættist úr því að lokum, mér og vonandi einhverjum öðrum til ánægju.

Sextán ára mátti ég loksins ráða trúfélaginu mínu. Í tvö ár hafði ég haft réttinn til að segja „nei, ég vil ekki vera með ykkur“ en bara segja það, ég mátti ekkert gera í því án samþykkis foreldra. Þarna loksins fékk ég félagafrelsi. Ári eftir að ég mátti fjölga mér og lenda í fangelsi (alls ekki í þeirri röð samt!).

Sautján ára hafði ég tækifæri til að stjórna mörg hundruð kílóa drápstæki á ómennskum hraða niður ömurlega vegi fyllta af svefndrukknu fólki á álíka öruggum drápstækjum. Þegar ég segi „tækifæri til að stjórna“ þá meina ég svona svipað tækifæri og handalaus hefur á því að vera boxari.

Hjálpardekkin fóru af þegar ég var átta ára, ég veit enn ekki hvernig hvítu strikin á götunni virka, að fara yfir götur gefur mér kvíðaköst og ég er með rýmisskynjun eins og brauðsveppur. Svo ég gerði samfélaginu þann greiða að setja ökuréttindin á ís.

Átján ára kom stærsti pakkinn. Fjármunirnir mínir voru loksins mínir. Ég mátti loksins snerta allt sem ég hafði unnið. Og sólunda því ef mig langaði. Hverjum er ekki sama? Ég má gera það sem ég vil við þetta. Lán? Fokk já. Ég ætla að taka verðtryggð og óverðtryggð og myntkörfur og húsnæðis og LÍN og allt. Þarna er skellt á mig réttinum til að taka þátt í sukkinu sem gerði Ísland að efnahagsveldinu sem það er í dag.

Einnig fékk ég kosningarétt. Ég lít nokkurn veginn á kosningaréttinn eins og að versla í matinn á bifvélaverkstæði. Eða tvo úlfa og kind að ákveða hvað skuli vera í kvöldmat. Breytir því samt ekki að þarna fæ ég að velja hvaða menn ráða landinu og hvaða loforð verða brotin. Og svo má ég líka bjóða mig fram til að brjóta loforð eða vera með kjaft!

Þarna lýkur líka framfærsluskyldu foreldra. Og ég hef óspart verið minntur á það síðan þá. Afmælisgjöfin mín það árið var reiknivél og setningin „hmm, hvert ætli sé leiguverðið á-“.

Átján ára er ég sjálfráða. Lífið mitt er mitt. Ég ber ábyrgð á öllu. Ég má giftast, kaupa mér hús, taka lán, flytja út, hætta í skóla, allt sem mig hefur aldrei langað til að gera.

Seinustu árin hef ég s.s. mátt giftast, taka stórar fjárhagslegar áhættur, búa einn, kjósa, bjóða mig fram, fá leyfi til að keyra bíl, skrá mig í og úr trúfélögum, stunda kynlíf, fara í fangelsi, fá mér húðflúr og líkamsgöt og ýmislegt fleira.

Það var hins vegar ekki fyrr en í dag sem ríkið taldi mig hafa gáfnafarið í að ákveða hvort mig langi í bjór eða ekki.


Heit súkkulaðikaka með jarðarberjum og þeyttum rjóma

$
0
0

Eitt sinn sagði mér kona að tæplega áttræð móðir hennar fengi sér oftar en ekki súkkulaðiköku í morgunmat. Er það virkilegt hugsaði ég með mér?  Kannski ætti ég …….  Eftir nánari umhugsun komst ég að þeirri niðurstöðu að ég ætti að bíða aðeins með það. Ekki voru allir fjölskyldumeðlimir sáttir við morgunmatinn hjá mömmunni. Þegar verið var að setja ofan í við hana, sagðist hún vera komin á þann aldur að hún ætlaði bara að fá sér súkkulaðikökur þegar hana langi til. Hún sagði jafnframt að stundum fengi hún sér meira að segja oft súkkulaðiköku bæði í hádegismat og síðdegiskaffi.

Þrátt fyrir að vera mjög hrifin af súkkulaðikökum í öllum mögulegum útfærslum, bæði heitum og köldum, er ég ekki viss um að geta borðað þær í allar máltíðir. Að minnsta kosti ekki enn þá.

Ef það er eitthvað í mínum huga sem klikkar ekki í eftirrétt eða í kaffiboðið er það heit, blaut súkkulaðikaka með rjóma og jarðarberjum. Hljómar dásamlega og kannski líka svolítið rómó.

Uppskrift

Heit súkkulaðikaka borin fram beint úr ofninum

Hitið ofninn í 200°C

2015Feb28_0047

Á myndina vantar súkkulaðið.

Innihald:

  • 200 g smjör.
  • 200 g suðusúkkulaði.
  • 4 stk brún egg.
  • 1 dl pálmasykur.
  • 2 1/2 dl fínt spelt.
  • 1 tsk lyftiduft.

 

Aðferð

  • Súkkulaði og smjör brætt saman og kælt aðeins.
  • Egg og pálmasykur stífþeytt.heit sukkuladikaka
    • Getur tekið 10 mínútur.
    •  Það tekur aðeins lengri tíma að þeyta pálmasykurinn.
  • Blandið spelti og lyftidufti varlega saman með sleikju.
  • Súkkulaðiblöndunni hellt í mjórri bunu yfir deigið hér og þar.
  • Deigið sett í eldfast mót eða nokkur lítil.
    • Þessi skammtur dugði í 5 stk lítil pieform.
    • Sami bökunar tími.
  • Bakið í 20 -22 mínútur við 200°C
    • Þeir sem vilja ekki hafa kökuna blauta í miðjunni baka hana í 25 – 27 mínútur.

 

Hugsanlega er einhver að velta því fyrir sér af hverju ég noti pálmasykur í kökur og eftirrétti og hvað pálmasykur sé eiginlega. Svar mitt er að ég fór að nota pálmasykur fljótlega eftir að hann kom á markað hér á landi. Áður notaði ég t.d. hrásykur. Ég heyrði fyrst um pálmasykurinn á fyrirlestri hjá næringarþerapista. Mér fannst það sem sagt var um hann það áhugavert að ég ákvað að prófa, sem leiddi til þess að ég nota hann eingöngu í dag. Ég hvet þá sem vilja fræðast um pálmasykurinn að slá honum inn í google og lesa sér til.

Ég stráði sukrin melis flórsykri yfir heita kökuna og bara hana á borð með þeyttum rjóma og jarðarberjum.

Njótið.

2015Feb28_0098

Nanna Kristín leit í spegil

$
0
0

Nanna Kristín Magnúsdóttir leikkona og handritshöfundur leit í spegil að beiðni Kvennablaðsins:

Ég er með tvo spegla heima hjá mér. Annan á baðinu og hinn við útidyrnar, þeir eru báðir litlir og spegla aðeins niður á bringu. Auðvitað get ég staðið uppi á stól og speglað aðra líkamshluta en þess gerist sjaldan þörf. Ég fer reglulega í sund og þá speglast öll heila dýrðin.

Spegilmyndin á baðinu er oftast ég nývöknuð eða ég að leggjast til hvílu. Þá er andlitið yfirleitt frekar þrútið, það hefur sína kosti og galla, bagalegt í kringum augun en bara frekar sexí að vera með þrútnar varir. Ég er heppin með húð, hún er mjúk og glóir. Það eru komnar hrukkur í kringum augun og broshrukkur. Ég las einhvers staðar að það sé merki um þroska, reynslu og gleðilegt líf.

Ég hef nú ekkert endilega verið að springa úr hlátri allt mitt líf eftir misgáfulegar reynslur sem ég var allt of lengi að læra af og því frekar seinþroska, svona í andlegum skilningi. En ef það þarf að réttlæta tilvist hrukknanna þá mega spekingarnir nota þessa skýringu eins og hverja aðra.

Hins vegar eru rákirnar upp af efri vörinni aðeins merki um of margar Capri í gegnum tíðina, hefði mátt hætta þeim ósið fyrr. Ég brosi í spegilinn við útidyrnar þegar ég fer út í daginn, ég er með bjart bros, fallegar og heilbrigðar tennur og þykkt ör á efri vörinni sem gefur munnsvipnum smá karakter.

Í stóra speglinum í sundlauginni er ýmislegt hægt að skoða, spá og spekúlera í. Mikið af fæðingarblettum, meira vinstra megin. Tvö ör á maganum, annað er eftir tvo keisaraskurði en hitt er mun stærra og meira áberandi, eftir botnlangaskurð þegar ég var 10 ára. Djúpur skurður og brussulega gengið frá saumunum. Það eru sýnileg slit. Ekki falleg og dramatísk á maganum eftir barnsburð heldur á lærunum eftir ár sem skiptinemi í USA. Peanut butter and jelly sandwiches á hverjum einasta degi í heilt ár var ekki skynsamlegt.

Ég er með grannt mitti, lendarfögur og efni í kúlurass sem Kim Kardashian yrði stolt af. Fólk segir að ég sé með löguleg brjóst, ég þakka pent fyrir það.

Það sem mætti laga við spegilmyndina er hárið. Það er illa farið eftir aflitanir, heillitanir, miklar túberingar og hárspray fyrir hlutverk í leikhúsi og kvikmyndum síðastliðin ár. Annars er ég bara assgoti sátt við spegilmynd mína, ég brosi breitt, hristi kroppinn og kvenlegu línurnar rokka feitt.

Ertu á barneignaraldri? Finnurðu fyrir hormónasveiflum?

$
0
0

Kostuð kynning

Allar konur upplifa tíðahringinn á ólíkan hátt og lengi hefur verið leitast við að hjálpa konum að ráða bót á þeim fylgikvillum sem tíðahringnum fylgja. Sársaukafullar blæðingar, skapsveiflur, fyrirtíðaspenna eru nokkur atriði sem margar konur þekkja og sumar konur þjást alvarlega vegna þessa. Þá eu ótaldar hormónasveiflur sem valda óreglulegum tíðum og húðvandamálum.

Maca rótin

Maca rótin

Hvað er til ráða?

Margar konur velja að taka ekki inn hormónalyf og vilja leita að náttúrlegri leiðum. Ein þeirra er að neyta fæðabótaefnis unnið úr maca rótinni. Femmenessence MacaHarmony er lífrænt ræktað fæðubótarefni frá USA fyrir konur á barneignar- og frjósemisaldri unnið úr macarót og er örugg og náttúruleg leið til að draga úr hormónaójafnvægi án þess að vera hormón.

andesfjöll

 

Macarótin er ofurfæða ræktuð í Andesfjöllunum þar sem rótin í sinni upprunalegu mynd er hluti af daglegri fæðu manna.

natural-health-international-femmenessence-macaharmony-500mg-120-vegan-capsules

Hvernig getur þetta virkað ef þetta er ekki hormónalyf?

Í Femmenessence eru engir hormónar en efnið styður framleiðslu líkamans á hormónum gegnum HPA Axis eða Undirstúku-heiladinguls-nýrnahettu öxulinn og kemur þannig jafnvægi á hormónabúskap líkamans. Macarótin er flokkuð sem adaptogen eða aðlögunarhvetjandi jurt sem stuðlar að aðlögunarhæfni líkamans, sem þýðir að hún styrkir líkamann þannig að hann á auðveldara með að verjast sjúkdómum og takast á við streitu, styrkir starfsemi nýrnahettna og stuðlar að því að koma jafnvægi á líkamsstarfsemi. Skilyrði fyrir því að kalla megi jurt aðlögunarhvetjandi eru að hún hafi engar eiturverkanir á líffæri og langvarandi notkun sé örugg og að rannsóknir búi að baki.

kvenlíkami texti

Í Femmenessence er búið að einangra mismunandi þætti úr macarótinni (engin önnur macarótarvara á markaðnum býður upp á það) sem hjálpa til við mismunandi hormónatengd vandamál kvenna á mismunandi aldri. Flestar þær vörur sem eru auglýstar sem lausn fyrir konur með t.d. breytingaskeiðseinkenni innihalda annaðhvort mulin hörfræ eða soja, sem er estrogenviðtakaörvi sem hefur aðeins áhrif á estrogenframleiðslu líkamans án þess að taka tillit til samspils allra hormóna. Auk þess sem allt soja á markaðinum er erfðabreytt.

Hvað hentar þér?

Femmenessence MacaHarmony Macarót er ætlað konum og stúlkum á barneignar- og frjósemisaldri. Á barneingaraldri sveiflast hormónarnir upp og niður eftir tíðahringnum oft með tilheyrandi óþægindum, fyrirtíðaspennu, skapsveiflum ofl. Femmenessence MacaHarmony Macarót er talin jafna hormónasveiflur, koma jafnvægi á tíðahringinn, draga úr sársaukafullum blæðingum og skapsveiflum og styðja frjósemi og grundvallarkvenheilbrigði.

kidda

„Er í skýjunum með vöruna, hún er hverrar krónu virði“

-Kidda Svarfdal ritstjóri Hún.is

Vilt þú prófa Femmenessence MacaHarmony?

Kvennablaðið í samstarfi við Vistor hf. vill bjóða konum og stúlkum á barneignaraldri að prófa Femmenessence MacaHarmony þeim að kostnaðarlausu. Besta leiðin til að sannreyna virkni vörunnar er að prófa hana sjálf og sjá hvernig hún hentar þér. Femmenessence macarótin inniheldur helstu vítamín, ensím, fitursýrur og lífsnauðsynlegar amínósýrur. Auk þess inniheldur Femmenessence mikið af virku kalki og magnesíum, auk B1-, B2- og B12 vítamínum og flokkast sem ofurfæða og er öflugt andoxunarefni. Ef þú vilt prófa láttu okkur þá vita hér í kommentakerfinu hér í lok greinarinnar. Ekki hika við að láta okkur vita ef þú telur að þú gætir haft gagn af því að prófa þessa vöru sem hefur reynst fjölda kvenna afar vel.

why-freelancing-is-awesome

Hvernig á að nota Femmenessence MacaHarmony?

Femmenessence MacaHarmony er mjög virkt og því er ráðlagt að taka 1 hylki á dag að morgni og bæta við skammtinn smátt og smátt á nokkurra daga fresti þar til fullum skammti er náð eða 2-4 hylki á dag eftir þörfum. Eftir inntöku í nokkra mánuði þegar líkaminn er kominn í jafnvægi má minnka skammtinn aftur niður í 1-2 hylki á dag. Femmenessence inniheldur ekki soya, mulin hörfræ, ísóflavón (plöntuestrogen) né hormóna. Í hverjum pakka eru 120 þynnupökkuð grænmetishylki. Ólíkt öðrum fæðubótarefni er fylgiseðill í pakkanum með upplýsingum um virkni og mögulegum aukaverkunum en ef kvenlíkaminn er í miklu hormónaójafnvægi þá geta konur fundið fyrir þreytu og höfuðverk í upphafi inntöku meðan líkaminn er að koma á jafnvægi. Flestar konur finna mikinn mun á sér innan 10 daga. Femmenessence MacaHarmony fæst í apótekum, Heilsuhúsinu og Heilsuveri.

Femmenessence Macarótin rannsóknir og framleiðsluferli

Macarótin Lepidium Peruvianum er ein af 175 Lepidium maca tegundum. Innan Maca Lepidium Peruvianum eru 13 mismunandi arfgerðir. Hver arfgerð hefur sinn lit og greiningarsnið og hefur hver arfgerð mismunandi líffræðileg áhrif á líkamann. Natural health International hefur einangrað virk efni rótarinnar og er það mismunandi samsetning arfgerðanna sem gerir það að verkum að hægt er að miða vörurnar að hverju æviskeiði kvenna fyrir sig annars vegar og að karlmönnum hins vegar.

Virkni Femmenessence hefur verið staðfest í rannsóknum og birt í virtum lækna-og vísindatímaritum. Engar tvær konur eru eins, macarótin hlúir að hormónajafnvægi konunar á heildrænan hátt og bætir þannig andlegt og líkamlegt jafnvægi – ekki bara á einn veg.

Vinnsluferli maca

Femmenessence er með lífræna vottun í USA, Evrópu og Japan og framleitt undir GMP og ströngum gæðastöðlum. Varan er með sanngirnisvottun eða Fair Trade sem tryggir að framleiðendur og bændur í þriðja heiminum fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína og að barnaþrælkun á sér ekki stað. Allar umbúðir eru umhverfisvænar og pakkarnir eru litaðir með grænmetisbleki. Hylkin eru þynnupökkuð sem tryggir að innihaldið er jafn virkt eftir opnun umbúða þar sem súrefni og sólarljós dregur úr virkni Maca rótarinnar. Rannsóknir benda til þess að Femmenessence sé eitt öflugasta adaptógen sem greinst hefur til þessa.

Með því að velja vöru með FairTrade vottun;

• …stuðlar þú að því að framleiðendur og bændur fái sanngjörn laun fyrir vörur sínar og vinnu

• …hjálpar þú til við að draga úr barnaþrælkun

• …stuðlar þú að því að lífræn ræktun nái frekari útbreiðslu

• …styrkir þú réttinn til félagsfrelsis og stuðlar að lýðræðisþróun

• …dregur þú úr misrétti heimsins

• Fair Trade vottaðar vörur eru einfaldlega sanngjarnari á bragðið ☺

Fylgdu Femmenessence á Facebook til að fá fréttir og frekari upplýsingar.

Heimildir:

Basic Clinical Pharmacology Toxicicol. Vol. 97, Supp l (1): 47. Meissner, H.O., Reich-Bilinska, H., Kedzia, B. (2005). Pre-Gelatinised Maca (Lepidium peruvianum Chacon) As Non-Hormonal Herbal Remedy To Treat Menopausal Symptoms In Pre- And Post-Menopausal Women.

Proc. 16th Annual Meeting North American Menopause Assoc. Sept. 28 – Oct. 1, 2005, San Diego, CA. Menopause. 2005; 12 (6): 813Meissner, H.O., Reich-Bilinska, H., Mrozikiewicz, P.M., Mscisz, A.., Lowicka, A.., Bobkiewicz-Kozlowska, T., Kedzia, Hormone-balancing and Pharmacological Effects of Therapeutic Doses of Lepidium peruvianum in Pos™enopausal Women.
Intl. Journal of Biomedical Science 2006: Vol. 2, No. 2. 143. Meissner H.O., Reich-Bilinska H., Mscisz A., Kedzia, B.

Therapeutic effect of Lepidium peruvianum Chacon (Pre-Gelatinised Maca) used as a non-hormonal alternative to HRT in Peri-menopausal women

– Clinical Pilot Study.

https://www.naturalhi.com/downloads/Pharm_Tox_7th_congress_ABST%20MAG%20pg48%20and%20cover.pdf

http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3614596/

Verndaðu þig og þína

$
0
0

Kostuð kynning

Það er mikilvægt að hugsa vel um húðina vegna allra þeirra efna sem hún kemst í nálægð við. Á hverjum degi nota fjölskyldur mikið af sápu- og þvottaefnum og börn eru sérlega viðkvæm fyrir áreiti af völdum sterkra ilmefna. Þriðja hvert barn á það á hættu að þróa með sér ofnæmi. Margir einstaklingar eru ofnæmissæknir en aðrir þróa með sér ofnæmi vegna daglegrar snertingar við ilmefni þar sem þeir dvelja eða vinna daglega í óhollu húsnæði eða í menguðu umhverfi sem brýtur niður eigið varnarkerfi húðarinnar.

5

Húðvörur og hreinsiefni á heimilum

Húðin gegnir mörgum hlutverkum en eitt hið mikilvægasta er að vernda okkur gegn ytra áreiti. Það er því mikilvægt að við verndum húðina svo að hún geti verndað okkur. Veljir þú þvottaduft, húðkrem, sápur og aðrar vörur sem innihalda ekki ilmefni þá getur þú dregið verulega úr hættunni á að barnið eða aðrir fjölskyldumeðlimir þrói með sér ofnæmi.

4

Ilmvatn og ilmefni eru ekki einungis sett í snyrtivörur heldur einnig í hreinsivörur, þvottaefni og matvæli. Ilmefni eru ýmist unnin úr plöntum eða framleidd efnafræðilega og eru þróuð úr 10-300 mismunandi ilmefnum. Þrátt fyrir að ilmefnin séu unnið úr plöntum getur það verið jafn ofnæmisvaldandi og kemískt framleiddu ilmefnin.

Börn og viðkvæm húð

Allar vörur Neutral eru algerlega án ilmefna og ónauðsynlegra aukefna. Barnalínan er sérstaklega mild til þess að vernda litla kroppa fyrir áreiti sem valdið gæti ofnæmi eða viðkvæmri húð. Fötin og rúmfötin liggja upp við húð þeirra allan sólarhringinn og þess vegna er svo mikilvægt að þau innihaldi engin ilmefni eða önnur óæskileg aukefni. Oft kvarta börn undan óþægindum í húðinni þegar skipt er um þvottaefni á heimilinu. Fylgist vel með húð barnanna ykkar og veljið efni sem valda minnstu áreiti.

1599395_586894608071004_1510892583_o

 

 

Láttu ilmvatnið njóta sín

Neutral er ekki bara þvottaefni, heldur heil fjölskylda af húðumhirðuvörum sem eru allt frá sturtusápu og handsápu til líkamskrems, hárþvottavara og svitalyktareyða. Auk þess býður Neutral upp á andlitslínu sem samanstendur af rakakremi, hreinsiklútum, hreinsifroðu og andlitsvatni. Þetta eru húðvörur sem henta öllum húðgerðum, ódýrar og skaðlausar í notkun.

Það er líka um að gera að nota ilmefnalausar húðumhirðuvörur til þess að ilmvatnið sem maður velur sér þann daginn fái að njóta sín í friði og truflist ekki af ilmum af sjampó, svitalyktareyði, mýkingarefni, húðkremi og öðrum húð- og hárvörum.

 

Svansmerktar vörur

Allar húðumhirðuvörur Neutral eru án parabena, ilmefna, litarefna og alkóhóls. Svanurinn er bæði vottun
um minnstu mögulegu umhverfisáhrif innan vöruflokksins sem og gæði vörunnar og merkingin  Svanurinn þýðir að varan sé jafngóð eða betri en aðrar vörur í flokknum.

Neutral eru mildar og mýkjandi vörur sem þróaðar eru í samstarfi við dönsku astma- og ofnæmissamtökin til að tryggja það að Neutral séu vörur sem þú getur treyst.

NeutralFamily2015

Hvaða þvottaefni notar þú?

Neutral þvottaduft er nýlega orðið enn umhverfisvænna en áður vegna þess að okkar markmið er að gera hreinlætisvörur eins umhverfisvænar og hægt er án þess að slaka á þeim ströngu kröfum sem við gerum um gæði og ofnæmisprófanir. Þess vegna er búið að þjappa þvottaduftinu saman svo að nú þarf 25% minna magn af þvottaefni í hverja vél en þú færð samt sömu góðu þvottavirknina og áður. Með því að þjappa duftinu meira saman var hægt að minnka umbúðirnar og þar með draga úr orkunotkun í bæði framleiðslu- og flutningsferlinu ásamt því að draga úr úrgangi. Með því að nota minna magn af þvottaefni minnkum við umhverfismengun sem og kolefnisspor Íslendinga.

1

 

Tökum ábyrgð – verum umhverfisvæn

Neutral Compact þvottaduftin eru merkt norræna Svansmerkinu til staðfestingar þess að þau uppfylli kröfur yfirvalda um umhverfisvænar vörur. Allt þvottaefni frá Neutral inniheldur ensím sem lyfta blettum frá efninu og gera það að verkum að þvotturinn verður hreinn við lægra hitastig en ella.

Þvottur við lægra hitastig fer mun betur með fatnaðinn og svo sparast við það orka og hefur það jákvæð áhrif á umhverfið okkar. Við leitumst stöðugt við að búa til betri vöru sem fólk getur notað án þess að hafa áhyggjur af því að skaða umhverfið eða auka hættu á ofnæmi í fjölskyldunni.

Avókadó-búðingur

$
0
0

Loksins! Loksins kemur smá von í hjarta að vorið sé handan við hornið. Það var virkilega gott fyrir sálina að rölta í sólinni í morgun með barnið sitt í leikskólann og það voru fuglar að syngja. Veturinn fer alveg að fara að lúta fyrir vorinu. Vorið mun vinna að lokum, já þetta er að hafast.

Þegar sólin fer að glitta, þá langar mig að fá eitthvað gott og ferskt. Þessi uppskrift er í miklu uppáhaldi hjá mér. Stútfull af hollustu og ef maður vill er hægt að setja búðinginn í frysti og útbúa ís úr honum.

avókadó kókos búðingur

Avókadó-búðingur

220 g avókadó

200 ml kókosmjólk

70 ml rjómi eða kókosmjólk

50 g Sukrin Melis

4 dropar kókos-stevía

30 g kókosmjöl

1 msk lime-safi

saltklípa

Setjið allt í skál og maukið með töfrasprota. Ef  ykkur langar að útbúa drykk úr þessum, bætið við 1–2 bollum af klökum við og setjið í blandara :)
Screen Shot 2015-03-18 at 10.05.13 AM

Píratar sigla fremstir

$
0
0

Fréttatilkynning af vef mmr.is

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 13. til 18. mars 2015. Píratar hafa bætt við sig miklu fylgi frá því í síðustu könnun (sem lauk 19. febrúar s.l.) og mælast nú með mest fylgi allra flokka á Íslandi (munur á fylgi Pírata og Sjálfstæðisflokksins er þó innan tölfræðilegra vikmarka).

Fylgi Pírata mældist nú 23,9%, borið saman við 12,8% í síðustu könnun. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 23,4%, borið saman við 25,5% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,5%, borið saman við 14,5% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 11,0%, borið saman við 13,1% í síðustu könnun. Fylgi Vinstri-grænna mældist nú 10,8%, borið saman við 12,9% í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 10,3%, borið saman við 15,0% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.
1503 fylgi 01

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 78,6% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (7,2%), myndu skila auðu (6,9%), myndu ekki kjósa (2,8%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (4,4%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

 

Þróun yfir tíma

1503 fylgi 02

 

Stuðningur við ríkisstjórnina

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 33,4% en mældist 36,4% í síðustu mælingu (sem lauk þann 19. febrúar s.l.) og 34,1% í janúar s.l. (lauk 29. janúar).

 

1503 support 01

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,9% afstöðu til spurningarinnar.

Freakri upplýsingar má finna á vef mmr.is

 

Dagdraumar Lindu

$
0
0

Dagdraumar eru eitthvað sem ég hef alla tíð getað týnt mér í. Ég hef ánægju af þeim og þeir fylla mig ró sem er engri annarri ró lík. Það líður ekki sá dagur sem mig dagdreymir ekki. Ég hef heldur aldrei verið viss um það hvort mig dagdreymi extra mikið eða hvort fólk sé yfir höfuð ekkert hrifið af því að deila sínum dagdraumum.

Ímyndunaraflið mitt getur orðið svo skemmtilega mikið stundum að það gæti örugglega sprengt einhverja skala, ef þeir eru þá til. Sem unglingur komu tímar þar sem ég hafði áhyggjur af þessu og datt jafnvel í hug að ég hlyti að vera haldin einhverjum skelfilegum ímyndunarsjúkdómi.

Ég gekk jafnvel svo langt að ræða þessar áhyggjur mínar við geðlækninn minn en sem betur fer hló hún bara að mér og sagði mér að þetta væri alls ekki eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af, þannig að í dag leyfi ég mér að dreyma út í hið óendanlega.

Það koma augnablik þar sem ég hef týnt mér svo í draumaheimum að einstaka manneskja hefur farið að hafa áhyggjur af mér og þá aðallega ef fólk gerir þau mistök að taka mig of alvarlega þegar ég babbla út í bláinn um það sem mér hefur dottið í hug. Eins og þegar ég týni mér í dagdraumum um fullkominn heim og fer að reyna að ræða það við mér eldra fólk. Þá á ég það til að fá augnatillit til baka sem lýsir áhyggjum en þá er ég fljót að benda á að auðvitað séu þetta einungis draumar en ekki endilega eitthvað sem er mögulegt á þessari stundu eða jafnvel nokkurn tímann.

Stundum dett ég út og gleymi að hlusta á fólk, það getur verið óhentugt sérstaklega ef fólk er í miðjum samræðum við mig, eða þegar kennarinn í skólanum er að reyna að kenna bekknum eitthvað sem skiptir máli. Ef ég virðist ekki vera að hlusta eða er annars hugar, þá er bókað mál að ég hef bara aðeins kíkt yfir í draumaheim.

Ég er jafnvel á þessum tíma að velta fyrir mér hvernig fjörðurinn sem ég bý í líti út frá sjónarhorni fljúgandi hrafns eða hvernig tilfinning það væri að hafa lifað allt sitt líf sem selur og vera að sjá manneskju í fyrsta skipti.

Ein af meginástæðum þess að ég get ekki beðið eftir sumrinu er að þá kemst ég aftur upp í fjall. Það að vera ein uppi í fjalli, umvafin náttúru, með símann á „silent“ til að fá enga truflun eru hinar fullkomnu aðstæður til að týna sér gjörsamlega í dagdraumum. Ég sest kannski í laut til að lesa bók og á meðan er hugurinn á fullu að skapa óraunhæf ævintýri. Ég ímynda mér að það komi álfur út úr steini og kíki yfir lautarbarminn til að athuga hvað ég sé að gera. Ég passa mig á því að snúa mér ekki í þá átt sem álfurinn heldur sig því þá gæti ég komist að því að það er enginn álfur og hefur aldrei verið. Ég hef engan áhuga á því að sprengja draumakúluna sem mér þykir svo gott að hreiðra mig um í.

En trúi ég á álfa, tröll, sæskrímsli, dýr sem tala á ákveðnum dögum og risa sem breytast í fjöll á meðan þeir sofa? Nei, ég geri það ekki í raun en mig langar að trúa á þetta allt þannig ég leyfi mér að dreyma og hver veit, einn daginn gæti hæfileiki minn til að týna mér í draumalandi komið að góðum notum.

Mig langar til dæmis til að skrifa fantasíubókmenntir einhvern daginn og ég tel það nánast ómögulegt ef að hæfileikann til að dreyma skortir.

Það gerir líf mitt svo innihaldsríkt að dreyma vakandi. Í stað þess að líta upp í himininn og sjá fuglahóp fljúga yfir mig og halda svo áfram með mitt daglega líf þá slæst ég í hóp með fuglunum í huganum og flýg smá spöl með þeim. Í stað þess að sjá fjall þá sé ég heilu ævintýrin, tröll sem kafa snjóinn, einsetumanninn sem stendur á fjallstindinum og veltir fyrir sér tilgangi lífsins ásamt öllum álfunum og huldufólkinu sem halda stórfenglegar veislur í höllum sínum, hallir sem fólk sér yfirleitt sem óhemju stóra steina.

Það verður aldrei nein spurning fyrir mig um það hvort að það sé hollt eða gáfulegt að halda áfram að dagdreyma á fullorðinsárum.

Ég þekki of marga miðaldra einstaklinga sem hafa bælt niður í sér löngunina til að týna sér í draumum til að hafa nokkurn áhuga á að feta þær slóðir.

Lífið er bara of fallegt og það býður svo mikið upp á að fólk geri það enn þá fallegra með draumum sínum, of mikið til þess að ég geti hugsað mér að hætta að dreyma eins og ég geri í dag.

Ég veit ekki hvað ég myndi gera ef ég vaknaði einn daginn og sæi einungis fjall þegar ég horfi á fjall, ef að sæskrímslin væru horfin úr sjónum og huldufólkið hefði gufað upp eins og það hefði aldrei verið þarna. Ég er ekkert viss um að ég hefði eins gaman af lífinu ásamt einföldustu hlutum ef að draumarnir myndu hverfa frá mér.

Ég er stolt draumórakona og vona að ég verði það alla tíð.


Skyggnst bak við tjöldin hjá Hildi Yeoman

$
0
0

Einn af hápunktum Hönnunarmars í ár var án efa sýning Hildar Yeoman á nýjustu línunni sinni, Flóru. Allir helstu tískuspekúlantar landsins mættu til að virða fyrir sér línuna og góðvinur Hildar, förðunarfræðingurinn Ísak Freyr, gerði sér sérstaka ferð til landsins til að sjá um förðunina en hann er búsettur í London.

Ísak að störfum, hann er búsettur þessa stundina í London og hefur unnið fyrir mörg af stærstu tímaritum Bretlands. Hann notar förðunarbursta frá Real Techniques.

Ísak að störfum, hann er búsettur þessa stundina í London og hefur unnið fyrir mörg af stærstu tímaritum Bretlands. Hann notar förðunarbursta frá Real Techniques.

Sýningin hlaut gríðarlegan fögnuð viðstaddra að henni lokinni en fyrir sýninguna gæddu gestir sér á drykkjum í boði Somersby.

Somersby bauð upp á fordrykk fyrir sýninguna,

Somersby bauð upp á fordrykk fyrir sýninguna.

Á stuttum tíma hefur Ísak tekist að skapa sér gott nafn í förðunarheiminum í London og meðal kúnna hans er engin önnur en fyrirsætan Cara Delevigne. Ísak hannaði lúkkið með vörum frá L’Oreal en hann segist sjálfur hafa valið merkið fyrst og fremst vegna breiðs vöruúrvals og gæða varanna.

Förðunarlúkkið hans Ísaks fer fyrirsætunni Andreu Röfn vel. Þessi skemmtilega og skrautlega umgjörð vakti mikla athygli viðstaddra og sást virkilega vel á sviðinu.

Förðunarlúkkið hans Ísaks fer fyrirsætunni Andreu Röfn vel. Þessi skemmtilega og skrautlega umgjörð vakti mikla athygli viðstaddra og sást virkilega vel á sviðinu.

Þema línunnar og innblástur hennar voru nornir en Hildur segir að hugmyndin að línunni hafi komið síðasta sumar þegar hún kynntist seiðkonu. En línan er hönnuð með innblæstri frá göldrum og sterkum kvenfyrirmyndum.

Þema línunnar var nornir og er línan Flóra hönnuð með innblæstri frá seiðkonum og sterkum kvenfyrirmyndum.

Þema línunnar var nornir og er línan Flóra hönnuð með innblæstri frá seiðkonum og sterkum kvenfyrirmyndum.

 

Þau Ísak og Hildur eru greinilega tengd sterkum böndum því hugmyndin að förðuninni kviknaði strax eftir fyrsta samtal þeirra og þaðan var ekki aftur snúið.

Ísak og Hildur Yeoman ánægð með vel heppnaða sýningu.

Ísak og Hildur Yeoman ánægð með vel heppnaða sýningu.

 

Áhersla var lögð á augun og umgjörð þeirra sem var svört og seiðandi og einkenndist m.a. af efnisbútum úr klæðnaðinum sem Hildur hannaði. Heildarútlitið skiptir miklu máli þegar ný fatalína er kynnt til sögunnar, allt verður að tala saman.

Hér er Steinunn Þórðar að líma efnisbútana undir augun á Andreu Röfn. Lokaútkoman er svakalega flott!

Hér er Steinunn Þórðar að líma efnisbútana undir augun á Andreu Röfn. Lokaútkoman er svakalega flott!

 

Hildur valdi að nýta sokkabuxur frá Oroblu sem pössuðu vel við fötin. Sokkabuxurnar voru einstaklega kvenlegar og flottar með silfurlitaðri línu sem lá niður eftir fótleggjum fyrirsætanna. Silfraði tónninn spilaði vel saman með bæði fatnaðinum og förðuninni hans Ísaks.

Eitt af aðal förðunartrendunum í dag er fullkomin húð sem er frísk allan daginn. Infallible-farðann valdi Ísak vegna áferðarinnar sem hann gefur húðinni og vegna þess að hann endist svo vel og lengi. Formúlan er með sérstaklega drjúgum raka sem útskýrir þessa góðu endingu. Þar sem fókusinn í förðuninni er á augunum ákvað Ísak að nota nude-litaðan varalit sem gefur vörunum fallegan og jafnan lit og léttan glans.

Eitt af aðal förðunartrendunum í dag er fullkomin húð sem er frísk allan daginn. Infallible-farðann valdi Ísak vegna áferðarinnar sem hann gefur húðinni og vegna þess að hann endist svo vel og lengi. Formúlan er með sérstaklega drjúgum raka sem útskýrir þessa góðu endingu. Þar sem fókusinn í förðuninni er á augunum ákvað Ísak að nota nude-litaðan varalit sem gefur vörunum fallegan og jafnan lit og léttan glans.

Þegar svona sýningar eru settar upp er nauðsynlegt að allt vinni saman, klæðnaður, förðun og hár.

Ísak Freyr ásamt teyminu sínu á sýningu Hildar, þeim Steinunni Þórðar og Ásdísi Gunnar.

Ísak Freyr ásamt teyminu sínu á sýningu Hildar, þeim Steinunni Þórðar og Ásdísi Gunnar.

 

En Theodóra Mjöll fór fyrir teymi af fagfólki úr hárbransanum og notaði vörur frá Label M til að fullkomna útlit hárs fyrirsætanna. Label M er eitt vinsælasta hárvörumerkið í heiminum í dag en þeir sjá m.a. um hár fyrir margar af stærstu tískusýningum í heiminum þessa dagana og þar á meðal sáu þeir um hár fyrir RFF.

Theodóra Mjöll fór fyrir hópi af fagfólki og notaði Label M til að fullkomna hárið á fyrirsætunum.

Theodóra Mjöll fór fyrir hópi af fagfólki og notaði Label M til að fullkomna hárið á fyrirsætunum.

Hildur hefur verið mjög iðin við að stefna ólíkum listgreinum saman á sýningum sínum og tóku margir hæfileikaríkir listamenn þátt í skapa hinn töfrandi heim Flóru með henni á Hönnunarmars.

Tónlist og dans voru sterkur hluti af sýningunni, en hópur atvinnudansara var hluti af fyrirsætunum.

Tónlist og dans voru sterkur hluti af sýningunni, en hópur atvinnudansara var hluti af fyrirsætunum.

Dansararnir Valgerður Rúnarsdóttir og Aðalheiður Halldórsdóttir sáu um að semja dansatriði með flottum hóp atvinnudansara. Hljómsveitin The Goslings var sett saman af þessu tilefni en hana skipa Kristín Anna, Ása Dýradóttir og Ingibjörg Turchi. Það má því með sanni segja að sýning Hildar Yeoman í ár hafi verið sannkallaður listviðburður.

Hildur Yeoman fagnar í lok sýningarinnar ásamt samstarfsfólki sínu. Frábær sýning að baki.

Hildur Yeoman fagnar í lok sýningarinnar ásamt samstarfsfólki sínu. Frábær sýning að baki.

 

Minningarorð um kröftuga og mæta baráttukonu

$
0
0

Á morgun föstudaginn 20. mars verður borin til grafar Bjarnfríður Léósdóttir. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju kl. 13:00. Með Bjarnfríði er fallin frá einn skeleggasti og einlægasti baráttumaður íslenskrar verkalýðshreyfingar síðari áratuga, Bjarnfríður Léósdóttir var 90 ára frá því í ágúst s.l.

Það er enginn efi að Bía fórnaði sér algjörlega fyrir hag láglaunafólks og þó einkum fyrir hag fiskverkakvenna. Þótt aldurmunur væri vel yfir 20 ár á milli okkar var ég alltaf aðdándi Bjarnfríðar.

Það geislaði alltaf af Bjarnfríði réttlætiskenndin og fórnfýsin í garða þeirra sem minnst máttu sín. Það var hennar hlutskipti að bera uppi þeirra eðlilegu réttlætiskröfur á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar og þá um leið að rekast á veggi innan ASÍ þar sem allt var morandi í allskonar bandalögum og klíkuklækjum feitra karla. Karlar sem iðulega voru á fylleríi þegar þeir mættu á stóra fundi innan ASÍ.

Þar voru á rorrinu karlar sem höfðu nánast ekkert brunns að bera í eðlilegri verkalýðsbaráttu. Þeir lögðu nánast aldrei neitt til málana opinberlega því þeirra var baktjaldamakkið bæði við aðra félaga í ASÍ og við aðila innan samtaka atvinnurekenda.

En innan ASÍ er félagsleg hugsun nú nánast löngu horfin. Það sést greinilega á háttarlagi verkalýðsfélaganna á Faxaflóasvæðinu þar sem nú er ríkjandi einstakslingshagsmuna hugsunarháttur og markaðslaunakerfi þar sem menn troða niður skóinn á hvor öðrum og samhygðin nánast horfin. Sjá má þetta einkenni og þroskaleysi í vinnubrögðum samtaka iðnaðarmanna um þessar mundir.

Kjarninn í lífskoðun Bjarnfríðar felst í þessum orðum:

Friður byggist á réttlæti
og réttlæti er forsenda friðar.

Taktu tvær aspirín og leggðu þig…

$
0
0

Stundum slær saman línum á internetinu og í skilaboðaskjóðu Kvennablaðsins skaut þetta Fb-skilaboðasamtal allt í einu upp kollinum, eins og lítið óritskoðað örleikrit úr veruleikanum. Þarna er ýmislegt sagt upphátt sem helst er ekki rætt nema í hvíslingum og þess vegna sleppum við þeim nöfnum sem þessu samtali fylgdi:

Íslenskt örleikrit á Facebook.

A:Bjarnfríður Leósdóttir er jörðuð á morgun. Það er að týna tölunni núna það fólk sem byggði hér upp það velferðarþjóðfélag sem nú er verið að einkavæða og eyðileggja í góðum fíling.

B: Já úff.

A: Það er heldur fúlt að fá ekki að drepast í friði áður en piltar eins og Bjarni Ben, dr. Simmi, Gunnar Bragi, Dýri dýralæknir og bimbó eins og Vigdís, Ragnheiður Elín, Eygló, Sigrún Magnúsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og allt það lið tekur til við að „stjórna“ landinu. Ef ég væri heill heilsu og soldið yngri en ég er og kynni pípulagningar eða múrverk myndi ég forða mér héðan sem allra allra fyrst.

B: Mig langar til Bali í ár og bara éta appelsínur eða eitthvað og reyna að gleyma landi og þjóð.

Girl-with-Oranges-over-eyes-Medium

A: Mig langar ekki að vera hérna og sjá þetta þjóðfélag drabbast niður í skítinn.

B: Nei, það er svo sorglegt að maður á bágt með sig bara.

A: Það er nógu erfitt að vera til þótt maður þurfi ekki að hafa allt á hornum sér yfir einhverjum idjótum frá morgni til kvölds. Kannski er allt í fína lagi hérna og ég hef bara koxað eða farið yfir um á neikvæðni hérna á facebook og þyrfti bara að liggja í súrefnistjaldi í hálfan mánuð til að verða fínn og glaður aftur.

B: Þetta er daglegt niðurbrot…maður getur bara ekki litið glaðan dag yfir þessu pakki það er sama hvert er litið…Hvernig líst þér á framboð Sigríðar Ingibjargar gegn Árna Páli Árnasyni?

A: Hryllilega illa.

B: Ok, hversvegna?

A: Árni Páll er ærlegur og hugsandi maður, soldið ferkantaður og stífur, kannski, Sigríður Ingibjörg er bara manneskja með meiri metnað en hæfileika – og við höfum fengið meira en nóg af soleiðis fólki. Síðasta Samfylkingarhetja af því tagi var Ingibjörg Sólrún sem fór í fræga ríkisstjórn með íhaldsfyrirbærinu gagnslausa, Guð blessi Haarde.

B: Ég er búin að missa þolinmæðina með ÁPÁ

A: Samfylkingin, þótt ég feginn vildi að það væri öðruvísi býður ekki upp á mikið mannval. Þar er hópur miskunnarlausra egóista og framapotara sem sumir geta gert sig ansi heiðarlega í framan, en þar er lítið um fólk sem er í þessu af því að það hefur brennandi áhuga á að bæta kjör og líf annars fólks. Fyrst og fremst er þarna fólk sem langar að bæta sín eigin kjör og verða frægt og komast í ríkisstjórn. Mér finnst vænst um sérvitringinn hana Völu Bjarna af þessu fólki. Hún er hugsjónamanneskja þrátt fyrir allt.

B: Ég er afskaplega hrifin af Völu líka.

A: Það er bara skelfilegt ástand hérna og engin furða að fólk skuli hengja sig á hálmstrá eins og Jón Gnarr og segjast styðja Pírata í skoðanakönnunum. Svo þegar Benedikt í Viðreisn stígur fram og reynir að vera geðslegur og sanngjarn þá ætlar hálf Samfylkingin allt í einu að kjósa íhaldsflokk. Björt framtíð hefur enga stefnu aðra en þá að sjá G. Steingríms og R. Marshall fyrir huggulegri innivinnu.

B: Þetta er svona, en afhverju talar enginn svona upphátt!

A: Það er engin von neins staðar. Ég mundi ráðleggja þér að taka tvær aspirín og fara snemma í rúmið og skrá þig svo í Sjálfstæðisflokkinn fyrir hádegi á morgun.

B: Tek tvær hundatramadol og hengi mig bara.

A: Nei, ekki hengja þig. Reyndu að safna þér fyrir farmiða eitthvað út í heim áður en Wow fer á hausinn. Veröldin er stórmerkileg þótt Ísland sé skítapleis um þessar mundir.

Lóan er komin! Vertu velkomin!

$
0
0

Á Facebooksíðunni Birding Iceland má finna eftirfarandi gleðifrétt:

„Vorboðinn ljúfi, heiðlóan, sást í Breiðdal í gær, 18. mars. Meðalkomutími heiðlóunnar er 23. mars á árunum 1998-2014 svo hún er heldur snemma í því í ár. Hún slær þó ekki út metið sem var 12. mars 2012.“

Lóan er komin að kveða burt snjóinn,
að kveða burt leiðindin, það getur hún.
Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn,
sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna,
ég sofi of mikið og vinni ekki hót.
Hún hefir sagt mér að vakna og vinna
og vonglaður taka nú sumrinu mót.

Páll Ólafsson
1827 – 1905

Framsóknarflokkurinn heimtar nýja stjórnarskrá

$
0
0

Við ætlum að bjóða ykkur að setjast um borð í tímavél og fara aftur til ársins 2009 í boði Framsóknarflokksins. Látið fara vel um ykkur og við ráðleggjum ykkur að horfa á þetta myndband sitjandi svo þið dettið ekki um koll af undrun.

Myndbandið heitir Lýðræði – Fyrir okkur öll.

Eftirfarandi texti fylgir myndbandinu sem var póstað af Framsóknarflokknum á Youtube.

„Íslendingar þurfa að setja lýðveldinu nýja stjórnarskrá. Stjórnarskrá sem tryggir sjálfstæði Alþingis og setur framkvæmdarvaldinu skorður.“

Sigríður Ingibjörg í yfirheyrslu

$
0
0

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir býður sig fram til formanns Samfylkingarinnar og tilkynnti það í dag en landsfundur Samfylkingarinnar er á morgun. Sigríður er greinilega hvergi bangin og því upplagt að fá hana í lauflétta yfirheyrslu.

Þú ætlar í formannsslag við Árna Pál Árnason eins og heyrinkunnugt er og því viljum við hjá Kvennablaðinu rekja úr þér garnirnar, ertu tilbúin?

Já.

Til hvers er Samfylkingin? Á hún eitthvert erindi við þjóðina?

Auðvitað á jafnaðarflokkur erindi við þjóðina. Mjög efnað fólk eignast sífellt meira og notar fjárhagslega yfirburði sína til að grafa undan samfélaginu sem við eigum öll saman. Við þurfum öfluga Samfylkingu sem stendur með því sem við eigum öll sameiginlega. Við þurfum að verja börnin okkar, mömmur okkar og pabba, fólk sem er öðruvísi, unga fólkið sem flytur að heiman og fólkið sem nær ekki endum saman af því kaupið er of lágt og vextirnir of háir.

Hver er aðaltilgangur flokksins?

Akkúrat núna er aðaltilgangur flokksins að verja fólkið í landinu fyrir verstu ríkisstjórn sem hér hefur setið. Almennt er tilgangur flokksins að búa til gott og sanngjarnt samfélag.

Er stefnan ennþá að ganga í ESB?

Já. Brussel er að mörgu leyti þunglamaleg og ESB á í allskonar vandræðum en ég er sannfærð um að aðild að ESB og full þátttaka Íslands í samfélagi þjóðanna væri öllum til hagsbóta nema þeim örfáu sem hagnast á einangrunarstefnu og höftum.

Nú flykkist ungt fólk til Pírata. Af hverju?

Ég skil það vel. Þau eru hress, heiðarleg og tala mannamál. Það er gaman að vinna með þeim og ég hlakka til að gera meira af því.

Það er augljóst að Samfylkingin hefur verið í ákveðnum vandræðum undanfarin ár og tapaði stórt í síðustu kosningum. Hvar ætlar þú að byrja?

Við höfum ekki tíma til að leggjast í naflaskoðun en við megum ekki hætta að gagnrýna sjálf okkur heldur. Fyrst og fremst þurfa allir að standa saman og verja fólkið í landinu fyrir ríkisstjórninni. Ef okkur tekst að gera gagn verður miklu auðveldara að leysa innanbúðarmál Samfylkingarinnar.

Ertu hægrikrati, vinstrikrati eða miðjukrati?

Ég er jafnaðarmaður og trúi á frelsi einstaklingsins. Frelsið frá fjötrum fátæktar og mismununar.

Skiptir máli að þú ert kona?

Já.

Þú ert úr Reykjavík. Hefurðu komið út á land?

Hahaha. Hefur þú komið til Svalbarða? Þar er hilla fyrir riffilinn í staðinn fyrir fatahengi. Ísland er stórt land með ótrúlega fjölbreytt og spennandi viðfangsefni og ég hef ferðast skammarlega víða á kostnað skattgreiðenda til að kynna mér þau.

Er munur á félögum þínum úti á landi og í höfuðborginni?

Kannski. Á mörgum stöðum á landsbyggðinni hafa félagar mínir þurft að heyja alltof harða baráttu fyrir sjálfsögðum réttindum og augljóslega skynsamlegum lausnum.

Styður fjölskyldan þig eða vill hún að þú komir heim að elda bjúgu?

Ég á frábæra fjölskyldu. Þau gagnrýna mig, styðja mig, elska mig og verða þreytt á mér. Það er gagnkvæmt. Ég stórefa að ég geti breytt því með því að elda bjúgu.

Hver er uppáhaldsþingmaðurinn þinn?

Ég geri ráð fyrir að ég megi ekki nefna þingmenn úr eigin flokki. Úr öðrum flokkum er það Helgi Hrafn núna, hann hefur vaxið mikið og er toppmaður. Svo á ég auðvitað góða vinnufélaga í öllum flokkum, enda er fullt af góðu fólki á þingi þó ástandið sé slæmt núna.

Hvern myndir þú kjósa fyrstan burt úr þingsal?

Sigmund Davíð Gunnlaugsson með Bjarna Benediktsson í vasanum.

Eru of margir framsóknarmenn í Samfylkingunni?

Nei. Og þó, það eru einstaka Framsóknarmenn í okkar röðum, svona af gamla skólanum, sem trúa á félagshyggju.

Er Samfykingin spilltur flokkur?

Nei. Engin stjórnmál eru algjörlega án spillingar en það er furðuleg hugmynd að Samfylkingin sé spillt.

Ef þú réðir öllu, hvernig væru hlutirnir hjá fólkinu í landinu?

Ég vil ekki ráða öllu. En það væri minni munur á hæstu og lægstu launum. Það væri auðveldara að búa í íbúð sem er gaman að koma heim til sín í, læra það sem maður hefur áhuga á og vera það sem maður vill vera. Við hefðum alvöru gjaldmiðil. Og frændfólk mitt fengi vonandi gott samfélag eins og allir aðrir, hvorki meira né minna.

Tökulagakeppni í tilefni af sjötugsafmæli Gunnars Þórðarsonar

$
0
0

Í tilefni af sjötugsafmæli Gunnars Þórðarsonar stendur Rás 2 fyrir tökulagakeppni á lögum Gunnars Þórðarsonar. Gunnar Þórðarson hefur komið víða við á ferli sínum en við þekkjum hann meðal annars fyrir bítlarokkið í Hljómum, hipparokkið í Trúbrot, kántríið í Ðe Lónlí Blú Bojs, diskóið í Þú og ég og Óperuna Ragnheiði. Gunnar hefur samið í öllum straumum og stefnum og á löngu tímabili.

Með keppninni vill Rás 2 heiðra Gunnar sem hefur sett svip sinn á íslenska menningu í nokkra áratugi. Frestur til að skila inn lögum rann út þriðjudaginn 17. mars og bárust mörg lög í keppnina. Dómnefnd, sem í sitja Gunnar Þórðarson og fulltrúar frá Rás 2, velur síðan 10 lög sem komast áfram í úrslit. Þau verða tilkynnt í Popplandi í dag, föstudaginn 20. mars. Það verður síðan í höndum landsmanna að velja sitt uppáhalds Gunnars Þórðarsonar lag en lögin 10 sem komast áfram verða aðgengileg á RÚV.is.

Úrslit verða tilkynnt föstudaginn 27. mars í Popplandi. Veitt verða vegleg verðlaun fyrir besta tökulagið. Tónastöðin gefur Zoom-upptökutæki með innbyggðum stereo míkrafón með 4 rásum, Græni hatturinn gefur sex miða á tónleika að eigin vali og Sena gefur miða á afmælistónleika Gunnars Þórðarsonar, Himin og jörð sem fara fram 29. mars í Eldborgarsal Hörpu.


Pitsa í boði Simma og Arion banka

$
0
0

Þegar tilkynnt var um skuldaleiðréttinguna sem mér þótti persónulega ágæt hugmynd en illa útfærð, þá var um leið tilkynnt að flestir þyrftu að staðfesta með rafrænum skilríkjum niðurstöðurnar. Síðan var Árni Sigfússon ráðinn sem verkefnisstjóri innleiðingar rafrænna skilríkja sem hefði átt að vera góð vísbending um að það gæti orðið einhver hroði í kringum þessa leiðréttingu sem sögð var „jafn auðveld og að panta sér pizzu“.

Nú sótti ég um skuldaleiðréttinguna og skammast mín ekkert fyrir það þó ég hafi ýmislegt við hana að athuga enda var nokkuð ljóst að ef maður fengi ekki þessa leiðréttingu sæti maður uppi með hærri afborganir en aðrir og þar að auki matarskattshækkunina sem hefur étið upp hluta af skuldaleiðréttingunni. Svo kom einnig í ljós að þegar skattskýrslan var skoðuð að vaxtabæturnar hafa verið þurrkaðar út með gríðarlegri og óskiljanlegri hækkun fasteignamats sem var væntanlega hugsuð sem mótvægisaðgerð við skuldaleiðréttingunni af hálfu ríkisstjórnarflokkana.

Eftir að hafa skoðað þær leiðir sem voru í boði til að staðfesta þá ákvað ég að notast við debetkortið mitt til skuldaleiðréttingar enda telst það til rafrænna skilríkja.  Þegar ég fór svo að prófa það þá kom í ljós að maður þurfti tvöfalda auðkenningu sem er víst ekki í símastaðfestingunni þ.e. með 4 stafa PIN númeri og svo 6 stafa PIN-númeri sem maður fékk víst fyrir einhverjum árum síðan…og þetta sex stafa númer er að sjálfsögðu gleymt.

skattur-rs

Nú skal tekið fram áður en lengra er haldið og til skýringar á atburðarrásinni sem fer af stað að ég vil ekki fá rafræn skilríki í símann. Í stuttu máli lít ég á það sem öryggismál því það er nú ekki beint hægt að segja að upplýsingaöryggi tengt símfyrirtækjunum auki tiltrú manns:. Vodafone-lekinn, misnotkun Símans á trúnaðarupplýsingum til samkeppnisbrota og fregnir í síðasta mánuði af því að NSA og GSHQ hefðu komist yfir milljónir dulkóðunarlykla hjá stærsta SIM-kortaframleiðanda heims og um leið opnað þar ýmsar öryggisglufur sem hugsanlega fleiri hakkarar en þeir geta notast við.

Þess til viðbótar þá hef ég engan áhuga á því að vera þröngvað í sérstök viðskipti við einkafyrirtækið Auðkenni og vill helst geta sneitt framhjá því út af siðferðislegum ástæðum s.s. vegna eignarhaldsins en fyrirtækið er í eigu bankanna og Símans. Sjálfur hef ég reyndar heyrt innan úr fjármálageiranum að ástæðan fyrir því að verið er að tengja rafræn skilríki við skuldaleiðréttinguna sé sú að fjármálafyrirtækin sem eiga Auðkenni vilja fara að fá almennilegan hagnað út úr fyrirtækinu og hefðu því þrýst á stjórnvöld um að fara þá leið til að neyða fólk til notkunar á rafrænum skilríkjum.
En nóg um það.

Í framhaldi af uppgötvun minni um að ég þyrfti sex stafa PIN hafði ég í síðustu viku samband við viðskiptabanka minn sem kallast Arion-banki. Þar óskaði ég fyrst eftir upplýsingum um hvernig maður getur nálgast sex stafa PIN-ið allt en fékk þau svör að ef ég hefði það ekki þá væri ekki hægt að nálgast það. Ég svaraði því til með útskýringum að mér hefði verið þröngvað inn í Arion-banka með yfirtöku SPRON og ég hefði ekki grænan grun um hvar þetta PIN væri. Svarið sem ég fékk var að ég gæti komið í bankann og látið breyta PIN-inu.

Rafræn skilríki - borði

Vegna anna þá komst maður nú ekki fyrr en í þessari viku og þegar ég bar erindi mitt upp í bankanum þá var ég spurður:“Ertu með PUK-númerið?“ sem ég neitaði þar sem ekkert var minnst á það í samskiptum mínum við bankann. Sú sem afgreiddi mig í móttöku sagði mér að fara þá í heimabanka á svæðinu og finna það þar meðan ég biði eftir þjónustufulltrúa. Í ljósi þess að ég var ekki með Auðkennislykilinn(sem var einnig þröngvað inn á okkur á sínum tíma) og þá var mér vísað strax til þjónustufulltrúa. Eftir að hafa sagt þjónustufulltrúanum erindi mitt þá sagðist hún ekki vera viss um að hægt væri að breyta PIN-inu á debetkortinu þar sem bankinn væri hættur að notast við þessi kort með rafrænum skilríkjum, virkjaði SMS-hjáleið í heimabankann og sendi mig svo í framhaldi með gulan miða í átt að tölvu svo ég gæti farið í heimabankann, sótt PUK-númer og labbað aftur til hennar til að láta breyta PIN-númerinu.

Frekar kómískt ef maður spáir svo í því að þetta er fjármálafyrirtæki sem sem er að skila milljörðum í arð með því að hafa af fólki fé með þjónustugjöldum.

Að sjálfsögðu gekk það svo ekki upp að fá nýtt PIN á hið 100% löglega debetkort með 100% löglegu rafrænu skilríkjunum svo að þjónustufulltrúinn tilkynnti mér að best væri að fá rafræn skilríki í símann því það væri svo auðvelt en ég afþakkaði pent, sagðist ekki hafa áhuga út af öryggisástæðum og í kjölfarið sagði hún við mig að ég gæti fengið kort frá Auðkenni sem gæti verið komið til bankans eftir 2-3 daga.

Ég afþakkaði pent og hélt heim á leið til að leita að nýrri leið til að fá það sem mér ber, tilbúinn til þess að tætast í skattmann ef þörf krefði því það á ekki að vera hægt að hafa af mér þessa tilfærslu frá einum vasa í annan, sérstaklega í ljósi þess að ríkisstjórnin var farinn að seilast með löngum fingrum sínum í vaxtabæturnar.

Og þá hófst næsti kafli með því að ég ákvað eftir ráðleggingar að sækja bara um þetta Auðkenniskort sem gildir víst bara í sex mánuði og er ókeypis í gegnum leidretting.is. Ég gekk því frá umsókn í hvelli og staðfesti allt saman en skömmu síðar þá barst póstur frá þjónustustjóra Auðkennis um að ég ætti eftir að staðfesta þetta, það tæki 3-4 daga að afgreiða þessi skilríki og það væri mun einfaldara og fljótlegra fyrir mig að fá þessi skilríki í farsímann.

Nú var ég farinn að verða alvarlega gramur og svaraði því m.a. til að ég hefði staðfest, ég hefði engan áhuga á að fá þessi skilríki í símann vegna þess að ég teldi þetta vera óöruggara, ég vildi helst ekki þurfa vera þröngvað i viðskipti við Auðkenni enda ætlaði ég nú bara að nota kort í þetta eina sinn, klippa það svo strax niður og henda. Auk þess var þetta sent með cc á póstfang fyrir skuldaleiðréttinguna.

Svarið sem kom til baka var stutt:

„Ég staðfest hér með að staðfesting netfangs barst okkur í kvöld klukkan 18:18.
Kort með skilríkjunum þínum verður framleitt á morgun og sent í Arion banka.
Það ætti að vera komið í útibúið á fimmtudag.“

Semsagt hið auðveldasta mál að redda þessu og ekki einhverra margra daga bið þannig að maður gat sofið rótt þá nóttina.

Næsti kafli beið mín morguninn eftir í formi tölvupósts frá starfsmanni leiðréttingarinnar hjá Ríkisskattstjóra um að það þýddi lítið að andmæla þessu fyrirkomulagi með rafrænu skilríkin, hvorki öryggisleg eða siðferðislög rök giltu því þetta væri bundið í lög, það tæki yfirleitt 5-6 daga að afgreiða þessi einkaskilríki Auðkennis og ég gæti nú bara fengið skilríkin í síma.

Það sprakk æð við þennan margtuggna frasa með símann og ég fór í haminn við að vera pirrandi, leiðinlegi gaurinn sem er ekki vel tengdi viðskiptavinurinn úr ætt Bjarna Ben.

Svo ég svaraði þessum starfsmanni skattstjóra enn gramari en áður með ábendingum um að þeir bæru ábyrgð á því að tryggja að allar leiðir væru jafnfærar, þeir bæru ábyrgð á því að tryggja að einkafyrirtæki kæmu ekki í veg fyrir að ég fengi réttmæta skuldaleiðréttingu, ég hefði reynt að ganga frá þessu með 100% löglegu rafrænu skilríkjunum mínum á 100% löglega debetkortinu mínu sem RSK vísar á sem möguleika til staðfestingar og fleira í þeim dúr í bréfi sem fór einnig sem cc á alla þingmenn fyrst þeir sömdu lögin.

Síðar um kvöldið sendi ég svo annan póst eftir könnun á lögum þar sem ekkert kemur fram um að nota eigi rafræn skilríki heldur sé það í reglugerð sem smíðuð var í geðþóttakasti fjármálaráðuneytisins, ekki er tekið fram að maður þurfi að notast við Auðkenni né að PIN-númer þurfi að vera ákveðin löng svo að ég fór fram á það að mér yrði gert kleyft að nota debet-kortið með mínu fjögurra stafa PIN og skrifa jafnvel undir með blekpenna ef Auðkenni fokkaði þessu upp.

En áður en seinni tölvupósturin fór þá opnaði ég heimsent umslag frá Arion-banka. Inn í því var nýtt debetkort sem veitti mér von þrátt fyrir að það liti út alveg eins og gamla debetkortið. Ég fór því inn á heimabankann, reyndi að ná í PUK-númerið og þá kom í ljós að það gekk heldur ekki frekar en fyrri daginn.

Svo las ég textann í ramma heimabanka Arion-banka og sprakk óvart úr hlátri. Þar er nefnilega tiltekið að öll debetkort frá Arion-banka séu með rafræn skilríki en ekkert minnst á það að ekki sé hægt að nota þau.

Manni er þvi farið að virðast sem að það sé Kafkaískt og algjört Catch-22 að fá pizzuna hans Simma afgreidda ef maður vill ekki láta þröngva sér í viðskipti við Auðkenni og setja upp skilríkin upp á síma. Allavega sit ég enn og bíð eftir að geta fengið hana um leið og maður vonar að fagmenn frekar en frjálshyggjutappar verði fengnir í pizzubakstur Simma næst.

Devitos hefði allavega getað afgreitt hana fljótt með bros á vör.

rs-heimabanki

 

Sól tér sortna

$
0
0

Mikill hamagangur er á Twitter þar sem menn tjá sig um sólmyrkvann 2015. Munu rafsuðugleraugu, sótað gler og rifrildi innan úr myndbandsspólum hafa komið að góðum notum í dag. Kíkjum á Twitter.

Sól tér sortna,
sígur fold í mar,
hverfa af himni
heiðar stjörnur.
Geisar eimi
við aldurnara,
leikur hár hiti
við himin sjálfan.

(Úr Völuspá)

Landsfundarræða Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur

$
0
0

Landsfundur Samfylkingarinnar stendur yfir en Sigríður Ingibjörg Ingadóttir gaf kost á sér á móti sitjandi formanni Árna Páli Árnasyni síðdegis í gær. Kosið verður síðdegis í dag og niðurstöður ættu að liggja fyrir ekki síðar en klukkan 19:00. Sigríður flutti eftirfarandi ræðu í dag laust eftir hádegið:

Kæru félagar.

Ég hef ákveðið að verða við óskum fjölmargra félaga minna sem hafa hvatt mig til að bjóða mig fram til formennsku í Samfylkingunni.

Eins og allir vita hefur Samfylkingin ekki náð sér á strik eftir síðustu Alþingiskosningar. En við höfum fylgi að sækja eins og góð kosning flokksins í Reykjavík og víðar í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra sýnir. Árangur flokksins á landsvísu er því ekki í samræmi við raunhæfar væntingar.

Fyrsta skrefið til að ná betri árangri er að viðurkenna vandann. Við erum ekki að ná eyrum kjósenda, þrátt fyrir að við völd sé óvinsæl og ósvífin hægristjórn. Áherslur flokksins og málflutning þarf því að taka til endurskoðunar. Samfylkingin á ekki að vera flokkur verðtryggingar og banka í hugum fólks, eða staðnaður kerfisflokkur sem skilur ekki áhyggjur venjulegs fólks. Ég veit að við erum ekki slíkur flokkur en við verðum að tryggja að almenningur viti það líka.

Verði ég kosinn formaður mun ég því hafa forystu um endurskoðun á áherslum og málflutningi flokksins og kalla til flokksmenn með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. Við þurfum að ganga hreint til verks með opnum huga og með réttu hjartalagi. Samfylkingin verður að kunna að hlusta á fólk, tala við fólk, taka gagnrýni og breyta því sem þarf að breyta. Við vitum ekki allt best og eigum ekki að þykjast vita allt best. Nútímalegur jafnaðarmannaflokkur þarf að vera opinn fyrir nýjum sjónarmiðum og breytingum. Við þurfum ekkert að óttast.

Við þurfum að opna faðminn og bjóða velkomið fólk sem yfirgaf okkur eða getur ekki stutt okkur vegna vonbrigða með afdrif stjórnarskrárinnar, óbreytts kvótakerfi og skuldamála heimilanna. Við þennan fjölbreytta hóp þarf að hefja samtal og byggja upp traust.

Samfylkingin var stofnuð til að sameina fólk um ákveðin grunngildi. Sameinuð náum við árangri, sundruð færum við hægristjórn og öfgafólki völdin í landinu. Stjórnarskráin verður ekki endurskoðuð nema undir forystu Samfylkinginnar. Það sama gildir um kvótakerfið og öflugan leigumarkað. Þessu þarf Samfylkingin að halda á lofti, ekki af hroka og yfirlæti, heldur til að bjóða fólk velkomið til að berjast fyrir sameiginlegum hugsjónum og gildismati.

Það var Samfylkingin sem varð við ákalli þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá og lagði áherslu á að það ferli væri opið og lýðræðislegt. Samfylkingin verður að halda stjórnarskánni á lofti og tala skýrt fyrir nauðsyn breytinga. Það hefur flokkurinn ekki gert með nægilega skýrum hætti frá síðustu kosningum. Á því mun sannarlega verða breyting verði ég kjörinn formaður flokksins.

Það er mikilvægt að Samfylkingin skerpi áherslurnar og leggi aukna áherslu á mannsæmandi laun og íbúðir fyrir fólkið í landinu, mannréttindi, réttlæti og önnur baráttumál jafnaðarmanna. Ójöfnuður fer vaxandi hér á landi sem annarstaðar.

Mjög efnað fólk eignast sífellt meira og notar fjárhagslega yfirburði sína til að grafa undan samfélaginu sem við eigum öll saman. Stærsta áskorun samtímans er að stöðva þessa óheillaþróun og tryggja öllum mannsæmandi kjör. Það verður aðeins gert með sterkri verkalýðshreyfingu og öflugum stjórnmálaflokki sem berst fyrir jöfnuði. Samfylkingin er og á ætíð að vera slíkur flokkur. Við þurfum öfluga Samfylkingu sem stendur með því sem við eigum öll sameiginlega. Við þurfum að verja börnin okkar, mömmur okkar og pabba, fólk sem er öðruvísi, unga fólkið sem flytur að heiman og fólkið sem nær ekki endum saman af því kaupið er of lágt og vextirnir of háir.

Á dögunum sagði fyrrverandi formaður Alþýðuflokksins að Samfylkingin hefði týnt erindisbréfi sínu. Það er ekki alls kostar rétt. Samkvæmt erindisbréfinu er Samfylkingin flokkur jöfnuðar, jafnréttis og mannréttinda. Samfylkingin hefur ekki týnt þessu erindisbréfi, en hún hefur gleymt að leggja nógu mikla áherslu á það í daglegum störfum sínum og baráttu. Erindisbréf jafnaðarmanna þarf að hefja til vegs á ný. Án hugsjóna eru stjórnmál einskis virði, þau breytast í valdabrölt, vanmátt og stæla. Við svörum þreytu almennings aldrei með innihaldsleysi eða óljósu hjali. Þreytu almennings þarf að svara með hugsjónum, við þurfum að tala skýrt, ekki bara um peninga, heldur um gildismat, lýðræði, menningu, umhverfi og allt sem máli skiptir í lífinu. Verkafólk og konur fengu ekki kosningarétt með því að lofa að vera skemmtileg og jákvæð. Baráttan fyrir kosningaréttinum var barátta fyrir jafnrétti, barátta fyrir hugsjónum sem sannarlega hafa beytt heiminum.

Við vitum að hugsjónir Samfylkingarinnar eiga sér hljómgrunn hjá þjóðinni. Okkar verkefni er að tryggja að þjóðin trúi því að Samfylkingin fylgi hugsjónum sínum, en hafi ekki orðið að steinrunnum kerfiskalli án hugsjóna og erindis.

Kæru félagar.
Framboð mitt til formanns Samfylkingarinnar kom seint fram, en er svar við áskorun fjölda góðra félaga. Þetta fólk telur þörf á breytingum og ég er þeim sammála.

Ef þið eruð til, þá er ég til.

„Ég boða róttækar breytingar á húsnæðiskerfinu“

$
0
0

Áherslur í setningaræðu Árna Páls Árnasonar, formanns Samfylkingar, frá landsfundi flokksins 2015.

„Mikilvægast af öllu eru húsnæðismálin. Ég boða róttækar breytingar á húsnæðiskerfinu. Við leggjum fyrir þennan fund heildstæðar úrbótatillögur. Ríkisstjórnin hefur ekkert gert í þessum málum. Dagur er byrjaður að auka framboð af leiguíbúðum í Reykjavík. En sú uppbygging mun taka mikinn tíma. Við getum ekki bara beðið. Ríkið verður að spila með. Við þurfum hækkun húsaleigubóta.

Við verðum að fjölga íbúðum til leigu og draga úr svimandi háu leiguverði. Þess vegna þurfa leigutekjur af einni íbúð að vera skattfrjálsar fyrir einstaklinga, en því aðeins að leiga sé ekki yfir meðalverði.

Við þurfum að þróa kerfi viðbótarlána til að gera ungu fólki og tekjulágum fjölskyldum kleift að kaupa sína fyrstu íbúð. Samfylkingin ætlar að tryggja öllum húsnæði á sanngjörnum kjörum.“

Alvöru samráð á vinnumarkaði

„Ríkisstjórnin hefur komið samskiptum við aðila vinnumarkaðarins í uppnám. Svar okkar verður að vera að leiða nýtt samtal við aðila vinnumarkaðarins. Norræna samfélagsmódelið hefur aftur og aftur sýnt að það getur betur glímt við bæði uppsveiflu og samdrátt en önnur kerfi. Til þessa að það virki þarf ábyrga hagstjórn, sem byggir á stöðugleika, góðum aðgangi að erlendum mörkuðum og samræmda launastefnu sem ýtir undir hagvöxt og fulla atvinnu og dregur úr launamun og tryggir að enginn verði skilinn eftir. Það þarf umfangsmikil velferðarkerfi, sem byggja á afkomutryggingu og aðgengi að þjónustu sem tryggir mikla atvinnuþátttöku og hreyfanleika launafólks, ódýra menntun og heilbrigðis- og velferðarþjónustu sem fjármögnuð er með sköttum og tryggir jafnrétti í reynd. Og það þarf vel skipulagðan vinnumarkað, sem byggir á samspili milli lagasetningar og kjarasamninga.

Ekkert í þessu er sjálfgefið. Allt byggir þetta á samspili á milli stjórnmálaflokkanna og samtaka á vinnumarkaði. Allir þurfa að hafa næg áhrif, breidd og umboð til að leita eftir heildarlausnum og fylgja eftir þeim aðgerðum sem þörf er á.

Þess vegna eigum við að skuldbinda okkur til að stjórna á þennan veg: Við munum setja okkur almenna efnahagsstefnu með þessi markmið að leiðarljósi og leggja hana fyrir samráðsvettvang með aðilum vinnumarkaðarins. Að því loknu eigum við að leggja hana fyrir Alþingi og byggja hagstjórnina á víðtækri stefnumörkun til nokkurra ára í senn. Þannig bindum við vissulega okkur sjálf, en við leggjum grunn að stöðugleika til lengri tíma og náum hámarks ávinningi fyrir fólkið í landinu.“

Fólk á að geta orðið fyrir áföllum

„Það er margt sem bendir til þess að samfélagið sé orðið kalt og grimmt. Að við gefum ekki fólki færi á að lifa lífinu með reisn. Hugmynd jafnaðarstefnunnar er að fólk njóti þeirra mannréttinda að geta orðið fyrir áföllum. Að þurfa ekki að glata öllu. Við viljum búa í góðu samfélagi sem skapar öllum rúm. Vandinn í hnotskurn er ófullnægjandi bótakerfi sem tryggir ekki lífeyrisþegum fullnægjandi framfærslu.“

Árni Páll mátti sjá mótframboð fyrir: Sigríður Ingibjörg gæti tekið formannsstólinn

$
0
0

Óvænt formannsframboð Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingkonu Samfylkingarinnar, gegn Árna Páli Árnasyni, formanni flokksins, er reiðarslag fyrir formanninn sem stendur afar höllum fæti í flokknum. Árni Páll hefði þó átt að sjá að í slag stefndi, enda gríðarleg óánægja með störf hans. Árni Páll hefur misst stuðning fylgismanna sinna frá því að hann fór fram gegn Jóhönnu Sigurðardóttur með skipulögðum hætti til að knýja fram aukalandsfund og formannskjör. Meðal stuðningsfólks Sigríðar Ingibjargar er fólk sem barðist ötullega fyrir formannsetu Árna Páls á sínum tíma.

Það er því ljóst að hann tekur mótframboðið alvarlega enda ekki um bjölluat að ræða. Heimildarmenn Kvennablaðsins í flokknum segja stuðningsfólk formannsins afar ósátt við framgöngu Sigríðar Ingibjargar sem tilkynnti framboð sitt eftir að frestur til að kalla til allsherjaratkvæðagreiðslu allra félagsmanna rann út. Stuðningsfólk Árna Páls hefur þegar hafist handa við að opinbera þá línu að um „launsátur“ sé að ræða gegn formanninum. [1][2][3][4] Lög flokksins heimila þó framboð á landsfundi sjálfum og raunar gera lögin ráð fyrir að allir landsfundarmenn séu í framboði.

Missti yfirsýnina

Árna Páli mátti þó sjálfum vera ljóst hvað væri í uppsiglingu. Mikill doði er í starfi Samfylkingarinnar og erfiðlega hefur gengið að manna flokksstofnanir og starf. Þá hefur Árna ekki tekist að ná til stuðningsfólks Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrrverandi formanns. Í fyrstu stefnuræðu sinni sem formaður gagnrýndi Árni Páll störf Jóhönnu og flokksins harkalega og sagði Samfylkinguna hafa eytt of miklum kröftum í tilgangslaus stríð á kjörtímabilinu. Þessi orð hafa setið í fólki innan Samfylkingarinnar sem barðist fyrir breytingu á kvótakerfinu, nýrri stjórnarskrá og Rammaáætlun, svo fáein dæmi séu nefnd.

Sem formaður hefur Árni Páll einangrað sig og sækir lítið ráðgjöf utan síns innsta kjarna. Þá hefur honum ekki tekist að sannfæra kjarnakjósendur Samfylkingarinnar um að snúa aftur til flokksins. Þá gerði hann tilraun til að grafa undan Rósagöngu til heiðurs Jóhönnu Sigurðardóttur í lok síðasta kjörtímabils, með því að þrýsta á fólk sem skipulagði atburðinn um að hætta við, það hefur honum ekki verið fyrirgefið af fólki í kjarna flokksins.

AR-150318786

Ungir, Reykjavík og frjálslyndir
Samfylkingarfélagið í Reykjavík er langsamlega stærsta aðildarfélag flokksins. Félagið hefur um 250 skráða fulltrúa á landsfundi samanborið við um það bil 50 fulltrúa hjá Ungum jafnaðarmönnum, ungliðahreyfingu flokksins. Það er í þessum tveimur hreyfingum sem mótframboðið við Árna Pál sækir líklega uppruna sinn. Samfylkingarfélagið í Reykjavík er áhrifavaldur í Samfylkingunni og hefur horn í síðu margra kjörinna fulltrúa. Sama félag ber mikla ábyrgð á að slíta formlega ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, en félagið ályktaði á frægum Þjóðleikhúsfundi að slíta yrði samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn.

Fyrir vikið er Samfylkingarfélagið í Reykjavík ekki alltaf vinsælt meðal kjörinna fulltrúa flokksins. Þannig tók Össur Skarphéðinsson, þingmaður flokksins, nokkur skot á félagið í bók sinni Ár drekans. Þar sem hann sagði meðal annars að Þjóðleikhúsfundurinn hafi engu breytt. Össur hefði sjálfur stjórnað öllum þráðum. Innan Samfylkingarfélagsins í Reykjavík hefur óánægjan með Árna Pál náð slíkum hæðum að samkvæmt heimildum Kvennablaðsins kom til umræðu að félagið sniðgengi formannskosninguna til að veikja formanninn.

Sama má segja um Unga jafnaðarmenn en hópur þar á meðal hafði íhugað að skila auðu eða sameinast um að kjósa Sigríði Ingibjörgu eða Katrínu Júlíusdóttur. Samkvæmt lögum Samfylkingarinnar eru allir landsfundarfulltrúar í framboði til formanns sé kjörið á landsfundi.

Heimildarmenn Kvennablaðsins þvertaka þó fyrir að Sigríður Ingibjörg hafi ákveðið sig fyrr en í gær. Hins vegar hafi verið töluverður þrýstingur á að hún byði sig fram undanfarnar vikur. Það eru Ungir jafnaðarmenn sem upphaflega settu nafn Sigríðar Ingibjargar í formannspottinn árið 2011, þá sem arftaka Jóhönnu. Nafn Sigríðar er því ekki nýtilkomið en hún hefur hingað til ekki lýst sig reiðubúna að fara fram. Hvorugt félagið hefur þó opinberlega lýst stuðningi við Sigríði Ingibjörgu og fátt bendir til þess að slíkt verði gert opinberlega.

Þá virðist Árni Páll ekki geta treyst á stuðning Félags frálslyndra jafnaðarmanna, en áhrifafólk í því félagi var meðal stuðningsfólks hans í formannskjörinu síðast.

Gæti styrkt Árna Pál
Framboð Sigríðar Ingibjargar getur um leið styrkt Árna Pál. Útlit var fyrir afar dræma þátttöku á landsfundi. Lítill áhugi var meðal fólks að skrá sig sem landsfundarfulltrúa og um tíma var útlit fyrir að aðeins 300–400 þingfulltrúar mættu til fundarins. Dræm mæting á landsfund í bland við atkvæði sem ekki féllu Árna Páli í hag hefðu veikt umboð hans enn frekar. Standi Árni Páll sem sigurvegari dagsins gerir hann það með endurnýjað umboð. Um leið er líklegt að pólitískri framgöngu Sigríðar Ingibjargar sé lokið. Vandi Árna Páls felst þó í því að hann nýtur stuðnings utan flokksins en ekki innan hans. Í hnotskurn er vandamálið að hann stendur veikur hjá fólki sem mætir í flokkstarfið, starfar fyrir flokkinn og mætir á landsfund. Árni Páll getur þó nýtt sér óánægju meðal félaga utan höfuðborgarsvæðisins með skamman fyrirvara Sigríðar Ingibjargar. Þau félög eiga erfiðara með að ýta á eftir sínum fulltrúum að mæta og því geta þeirra fulltrúar túlkað aðferð Sigríðar Ingibjargar sem leið til að grafa undir áhrifum landsbyggðarfélaga.

Sneri á flokksfélagana síðast
Sjálfur varð Árni Páll formaður Samfylkingarinnar eftir langvarandi valdabaráttu innan flokksins. Honum hefur ekki tekist að auka fylgi flokksins frá því að hann tók við en dræmt gengi Samfylkingarinnar undir stjórn Jóhönnu var hryggjarsúlan í gagnrýni Árna Páls á þáverandi stjórn flokksins. Í síðasta formannskjöri voru 18.318 á kjörskrá Samfylkingar en aðeins 5.621 greiddi atkvæði. Árni Páll hlaut 3.474 atkvæði í þeirri kosningu, eða 62 prósent. Samfylkingin er prófkjörsflokkur og sækir þá hefð frá Alþýðuflokknum.  Árni Páll hefur sjálfur kallað það fyrirkomulag að kjósa formann flokksins með allsherjaratkvæðagreiðslu flokksmanna „lýðræðisveislu“. Formannsslag hefur þó fylgt töluverður kostnaður en saman eyddu þeir Guðbjartur og Árni Páll tæpum sex milljónum í síðasta slag. Þessi miklu fjárútlát kjörinna fulltrúa í prófkjörum og kosningu til formanns eru óheppileg í ljósi sögu flokksins.

Afneitun á stöðunni

Árni Páll sagði í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld að það hefði komið sér á óvart þegar Sigríður Ingibjörg hringdi í hann um sexleytið og tilkynnti honum um mótframboð. „Ég hafði ekkert heyrt af þessu,“ segir Árni. Hann bendir á að á einu ári hafi flokkurinn náð umtalsverðum árangri. Hann hafi tekið við flokki með tólf prósenta fylgi en hann mælist nú með 15 prósenta fylgi – flokkurinn hafi náð mjög góðum árangri víða í síðustu sveitarstjórnarkosningum og ásættanlegum árangri víða. „Ég hef alltaf sagt að þetta væri langhlaup og við erum hálfnuð á leið okkar í átt að settu marki sem á að nást í næstu þingkosningum.“

Ummælin eru lýsandi fyrir viðbrögð Árna Páls við alvarlegri stöðu flokksins. Árni Páll tók ekki við 12 prósenta flokk heldur ríkisstjórnarflokki með 20 þingmenn og 29 prósentum atkvæða en skilaði honum eftir kosningar í 13 prósentum atkvæða með einungis 9 þingmenn. Þótt vissulega hafi margir í Samfylkingunni samúð með því verkefni að stýra flokknum í gegnum kosningar eftir erfitt kjörtímabil voru heimildarmenn Kvennablaðsins sammála um að þessi ummæli væru birtingarmynd af viðvarandi afneitun Árna Páls á stöðu mála.

Kosið verður um formann milli klukkan 17.30 og 18.30 en niðurstöður verða kynntar klukkan 18.45.

Viewing all 8283 articles
Browse latest View live