Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Róttæki sumarháskólinn 2014

$
0
0

Róttæki sumarháskólinn kynnir dagskránna sumarið 2014. Á boðstólum verða 11 ólíkar námsstofur í umsjón fjölbreytts hóps fólks, þar af fjórar á ensku og tvær með bíósýningum. Sérstakt þema í sumar er verkalýðsbarátta, sem er rauður þráður í gegnum marga dagskrárliði. Dagskráin fer fram dagana 13.-19. ágúst í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121, í Vesturbæ Reykjavíkur.

Verkalýðshreyfingin var á 20. öld í fararbroddi hreyfinga almennings gegn stéttaskiptingu og samfélagslegu óréttlæti, en í dag heyrist oft sagt að verkalýðshreyfingin sé ekki lengur lifandi afl í samfélaginu. Launa- og kjaramál eru þó í brennidepli í þjóðmálaumræðunni á ný. Launahækkanir yfirmanna og auðmagnseigenda eru stjórnlausar á sama tíma og launafólki er gert að sætta sig við síversnandi kjör. Stjórnvöld hafa afskipti af eðlilegri kjarabaráttu og skerða rétt launafólks til verkfalla, og stórfyrirtæki í sjávarútvegi beita ofríki til að loka fjölmennum vinnustöðum á landsbyggðinni.

langur sumarjaskoli

Ætli verkalýðshreyfingin að enduruppgötva framsækið hlutverk sitt, þarf hún að beina sjónum að fleiru en launaumslaginu einu. Vaxandi vitund um hagi jaðarsettra hópa fólks á erindi við verkalýðsbaráttu, því staða á vinnumarkaði hefur ekki aðeins áhrif á tekjur fólks heldur einnig sýnileika þess, möguleika til áhrifa, og ýmis konar lífsgæði sem verða ekki mæld í krónum. Verkalýðsbarátta í dag hlýtur einnig að snúast um starfsöryggi, sýnileika og lýðræðislegan rétt almennings til að hafa áhrif á það hvernig atvinnutækjum okkar er stýrt. Risavaxinn málefni sem varða hagsmuni almennings um heim allan, svo sem sídýpkandi efnahagskreppur og loftslagsbreytingar af mannavöldum, hljóta einnig að vera nátengd verkalýðsbaráttu í dag.

rotaki

Dagskráin í sumar

Það er hluti af nýsamþykktri stefnu Róttæka sumarháskólans að tengja baráttumál ólíkra samfélagshópa, andkapítalisma, afnám heimsvaldastefnu, jöfnuð kynja, náttúruvernd, sjálfbærni og lýðræði á innbyrðist styrkjandi hátt. Því verður verkalýðsbaráttan skoðuð frá sjónarhóli ólíkra hópa til að dýpka skilning okkar á ólíkum víddum launavinnu og verkalýðsbaráttu. Fatima Husseini fjallar um þær áskoranir sem mæta innflytjendum og flóttafólki á íslenskum vinnumarkaði og hvernig atvinnu- og tekjuleysi hefur áhrif á sjálfsmynd, virðingu og andlega heilsu þeirra. Kynjaðar víddir vinnumarkaðarins verða síðan til umfjöllunar á námsstofu Elínar Ingu Bragadóttur og Margrétar Helgu Erlingsdóttur sem fyrr á þessu ári stofnuðu Facebook-síðuna Kynlegar athugasemdir. Í námsstofunni fjalla þær um öryggi kvenna í þjónustustörfum og velta því fyrir sér hvernig tilfinningalegu öryggi þeirra sé háttað, hvaða tæki þær hafi til að verjast áreiti og lítillækkandi framkomu í auðvaldssamfélagi.

Árni Daníel Júlíusson, Drífa Snædal og Magnús Sveinn Helgason setja þemað í sögulegt samhengi í námsstofu um sögu verkalýðshreyfingarinnar og helstu áskoranir hennar í samtímanum. Thomas Brorsen Schmidt fjallar um möguleikann á fjögurra stunda vinnudegi, „bestu hugmynd frá örófi alda“. Loks veita Pontus Järvstad og verkalýðsfélagið IWW-Ísland gestum Róttæka sumarháskólans praktíska þjálfun í hvernig þeir geti eflt samstarfsfólk sitt í baráttu fyrir betra starfsumhverfi og meiri yfirráðum yfir daglegu lífi sínu.

Tvær af námsstofum okkar fjalla um umhverfisvernd frá ólíkum sjónarhóli. Tófa fjallar um róttæka náttúruvernd í gegum frásagnir af Notre Dame des Landes landtökunni í Frakklandi þar sem íbúar og aktívistar hafa staðið í vegi fyrir byggingu flugvallar í 40 ár. Þá fjalla Steinunn Ásgeirsdóttir og Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir um hvernig permakúltúr getur gefið okkur forsmekk af matvælaframleiðslu sem þjónar ekki sérhagsmunum og skammtímagróða.

Loks má nefna tvær mjög áhugaverðar námsstofur um ólík efni. Rithöfundarnir Bryndís Björgvinsdóttir, Nanna Hlín Halldórsdóttir og Hildur Knútsdóttir fjalla um skapandi og fræðileg textaskrif og varpa ljósi á samfélagslegan umbreytingarkraft texta og skáldskaps. Þar býðst þátttakendum að leika sér að orðum og texta í gegnum æfingar sem koma umbreytandi hugarflugi á stað. Þá fjalla Embla Guðrúnar Ágústsdóttir og Freyja Haraldsdóttir um fötlunarfordóma og „ableisma“ (hugtak sem notað er um kerfisbundna mismunun og fordóma í garð fatlaðs fólks). Þær nýta persónulegar frásagnir fatlaðs fólks til þess að skoða hvaða áhrif ableismi hefur á daglegt líf fólks og gestir eru hvattir til að líta inn á við og skoða sína eigin hegðun og viðhorf.

rotaki 2

Róttæki sumarháskólinn býður einnig upp á tvær kvikmyndasýningar. Sólveig Anna Jónssdóttir hefur umsjón með sýningu og umræðum um heimildarmyndina Dirty Wars sem segir frá leynilegum hernaðaraðgerðum bandaríska hersins í Afganistan, Sómalíu og Jemen. Þá sýnir Jón Bragi Pálsson heimildarmynd sína Rót vandans: Ísland og loftslagsbreytingar sem fjallar á gagnrýnin hátt um neyslumiðaðar lausnir á loftslagsvandanum og hugmyndina um að hlýnun jarðar sé af hinu góða fyrir Íslendinga.

Ítarlegar lýsingar á náms- og aðgerðastofum er að finna í Námsskránni sem auðvelt er að hlaða niður á heimasíðunni okkar. Þægilega uppsetta Stundaskrá má einnig sækja á heimasíðuna. Facebook-síða Róttæka sumarháskólans (facebook.com/rottaeki.sumarhaskolinn) er góð leið til að fylgjast með fréttum og tilkynningum á næstu vikum. 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283