Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekki fleiri nauðgunarbrandara!

$
0
0

Um daginn lagðist ég á gólfið í ræktinni dauðuppgefin eftir púlið og sagði við vinkonu mína í gríni, „ég get ekki meir, sjitt hvað þetta er vont“. Ókunnugur maður gekk framhjá og sagði „þetta er vont en það venst, alveg eins og nauðgun“ og svo hló hann við.

Ég hikaði ekki við að horfa framan í hann, eldrauð af bræði og lýsa fyrir honum hvernig ég fékk æluna upp í kok yfir þessum ömurlega „brandara“ hans.

Í alvöru? Hverjum er skemmt? Hverjum finnst þetta fyndið? Það þarf að stoppa þetta grín! Hættum að hafa orðið nauðgun í flimtingum. Nauðgun er líkamlegt og andlegt ofbeldi og fórnarlömb nauðgunar bíða ofbeldisverksins aldrei bætur. Nauðgun er ekkert til að gantast með. „Facerape“ er enn annað dæmið um hvernig lítið er gert úr nauðgun…

.. en þegar við samþykkjum skoplega orðræðu um jafn alvarlegt mál og nauðgun er, verðum við um leið dofin gagnvart alvarleika málsins. Hlæjum ekki þegar aðrir grínast með níðingsverkið nauðgun, mótmælum!

„Hvert er besta ráðið gegn nauðgun?“ heyrði ég konu á mínum aldri spyrja vinkonur mínar. Ég sperrti eyrun því fyrir mér gat eina mögulega rétta svarið verið að gelda og stöðva alla nauðgara.

„Að kúka í sig. Það er besta ráðið við nauðgun, að kúka í sig. Ég meina hver hefur áhuga á að nauðga þér ef þú ert búin að kúka í þig?“

Ég þurfti að hemja sjálfa mig því ég snöggreiddist. En hún er ekki sú fyrsta sem dreifir ráðum og ábendingum um hvernig hægt sé að verjast nauðgun. Klæddu þig öðruvísi, ekki ganga um ein að næturlagi, ekki drekka vín, ekki umgangast ókunnuga, ekki eiga vini, ekki vera til!

Hvernig er hægt að gefa ráð gegn nauðgun þegar nauðgun er aldrei á ábyrgð fórnarlambsins? Nauðgun er í öllum tilfellum á ábyrgð nauðgarans!

Samkvæmt ársskýrslu Stígamóta leituðu 140 einstaklingar til samtakanna árið 2012 vegna nauðgunar. Vegna nauðgunartilrauna leituðu 23 einstaklingar og átta vegna gruns um nauðgun. Þetta eru bara tölulegar upplýsingar frá Stígamótum en fórnarlömb nauðgunar leita víða aðstoðar og því miður mörg hver alls ekki. Þessar tölur er bara toppurinn á ísjakanum.

Og þessar tölur Stígamóta einar og sér eru langt í frá eitthvað fyndnar.

Þess vegna bið ég þig og ykkur öll að segja ekki fleiri nauðgunarbrandara! Ekki flissa, hlæja eða verða vandræðaleg. Mótmælið, andmælið, stöðvið! Og ekki fleiri nauðgunarvarnarráð takk. Stöndum saman, segjum nauðgurum að hætta að nauðga!

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283