Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Fullkomin hátíðarvín í kössum á frábæru verði

Á síðustu árum hafa vín í kassaformi, eða vínbeljur eins og þær eru oftast kallaðar í daglegu tali, aukist gríðarlega í vinsældum. Vínbeljur eru í rauninni plastpokar sem fylltir eru af víni og settar inn í kassa. Fyrirbærið kallast einfaldlega poki í kassa á frummálinu. Þessi geymsluaðferð er að mörgu leyti hentug, sérstaklega ef vínið er þannig gert að það sé best að drekka það skömmu eftir að það er sett á markað. Þetta er ódýr pökkunarleið sem á þátt í því að halda verðinu lágu og einingarnar eru hentugar til flutnings. Þess vegna er oft mun hagstæðara að kaupa sér vín í kassa.

Í árdaga kassavína settu vínframleiðendur undantekningarlaust ódýrustu og einföldustu vínin sín í kassa en síðustu ár hefur orðið algengara að góð vín séu seld í kössum til að koma til móts við markaðsaðstæður. Mörgum þykir betra að drekka kassavín því það geymist talsvert lengur en flaska eftir að búið er að opna. Vín í kassa getur enst í allt að 4 vikur.

Hér koma tillögur að þremur vínum sem seld eru í kössum í vínbúðunum og hentugt er að eiga yfir hátíðirnar.

 Pasqua SanZeno Organic Chardonnay – 5.999 kr.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
url-2

SanZeno dregur nafn sitt af SanZeno Dómkirkjunni í Verona sem byggð var á 5. Öld. Pasqua er rekið af þriðju kynslóð ástríðufullra víngerðarmanna og er í dag stærsta fjölskyldurekna víngerðin á Ítalíu. Pasqua víngerðin var stofnuð árið 1925 í hjarta veneto héraðsins í Verona, einu þekktasta víngerðasvæði heims þar sem löng hefð er fyrir því að búa til vín úr þurrkuðum þrúgum. Uppruni þessa víns er delle Venize þar sem þrjú norðaustur héruð ítalíu eru.

Þrúgurnar vaxa á lífrænt ræktuðum sólríkum vínekrum þar sem köld kvöldgolan hjálpar til við þroskun ávaxtarins og varðveitir bæði þroska og ilm. Þetta skarpa og þurra hvítvín er dæmigert fyrir uppruna sinn, með áberand tónum af þroskuðum sítrusávöxtum og perum. Það er geymt akkúrat nógu lengi á eikarunnum til þess að gefa því strúktúr og þægilegan vanilluilm. Þetta er vín sem hentar sérstaklega vel með fiskréttum eins og gröfnum og reyktum laxi, auk þess sem það passar vel með flestum ítölskum- og miðjarðarhafsréttum.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
unnamed-13

Vina Albali Barrel aged Tempranillo - 5.990 kr.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
image003 (2)

Felix Solis sem framleiðir Vina Albali er einn af tíu stærstu vínframleiðendum heims og stærsti framleiðandi vína frá Spáni. Hann selur meira en 2 milljónir lítra í yfir 90 löndum. Felix Solis er ábyrgur fyrir framleiðslu margra gæðavína frá helstu vínræktarsæðum Spánar.

Við gerð Vina Albali Tempranillo er reynt að ná sem mestu af tannínum og bragði úr þrúgunum til að viðhalda náttúrulegum bragðeiginleikum þrúgugerðarinnar. Sætleika tannínanna er náð með mjólkursýrugerjun í amerískum eikartunnum og eftir það er vínið látið liggja í sömu tunnunum í tvo mánuði. Þetta eru ung vín þar sem þau eru aðeins geymd á eikartunnum í stuttan tíma.

Heitt loftslagið sem einkennir Valdepenas héraðið skilar sér í þroskuðum karakter vínsins, með bragði af þurrkuðum dökkum plómum og kirsuberjasultu. Þessi þroski kemur þó ekki í veg fyrir að vínið sé frískandi og unglegt; það er bjart og vel gert. Eikin skilar kryddum, vanillu og svörtum pipar í þetta annars mjúka og þægilega vín. Það hentar afar vel með flestum kjötréttum, fuglakjöti, ostum og kæfum.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
unnamed-14

 Vina Albali Gran Seleccion Tempranillo - 6290 kr.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
zoom

Þetta vín er gert úr sérvöldum Tempranillo þrúgum þar sem aðeins þær allra bestu eru notaðar. Safinn er pressaður varlega úr berjunum og hrært reglulega í sem verður til þess að tannínin eru nokkuð áberandi. Safinn er síðan gerjaður við lágt hitastig og vínið geymt á amerískum eikartunnum í tólf mánuði. Þegar því er lokið er það geymt enn lengur í stórum tunnum til að ná fram fullkomnum áhrifum.

Þetta vín er fallega rúbínrautt með þroskuðum kirsuberjatónum. Það býður upp á kraftmikla angan og bragð af vanillu, kryddum og ávöxtum. Það er einstaklega höfugt og nokkuð flókið með vel byggðum tannínum og löngu þægilegu eftirbragði. Það er fullkomið með hverskonar kjötréttum, fuglakjöti, kæfum og ostum.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
unnamed-15

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283