Við vitum öll að Sigmundi Davíð, forsætisráðherra Íslands finnst gaman í útlöndum því hann er allavega búinn að hverfa tólf sinnum af landi brott frá því að hann tók við æðsta embætti íslenskrar stjórnsýslu.
Færri vita hvað Sigmundur er að gera á erlendri grundu og hafa haft uppi ásakanir um að hann sé ekki að sinna starfi sínu skyldi og fari bara í frí þegar síst skyldi og mikið liggur við. Það sem þetta neikvæða fólk veit ekki er að Sigmundur er þvert á móti búinn að vera á öllum þessum ferðalögum til þess að leiðrétta skuldavanda heimilanna.
Leiðtogi vor er hins vegar svo hógvær og skynsamur að hann vildi halda tilgangi ferðanna leyndum þangað til að ætlunarverkinu er lokið. Kvennablaðið fékk þann heiður að deila með ykkur myndasögu af frægðarför Sigmundar til bjargar Íslandi. Heiðurinn af myndunum á Svanhvít Ada Björnsdóttir sem hefur fylgt forsætisráðhetra við hvert fótmál.
Eins og allir góðir leiðtogar, byrjaði Simmi á að leita ráða hjá vitrum mönnum. Hann fór í tjaldferð með Abraham Lincoln til þess að fræðast um frelsi og framsækni.

Sigmundur hitti Stalín til þess að ræða mikilvægi samvinnu og jafnrar dreifingar auðs.
Svo hitti hann fleiri fræga leiðtoga til þess að læra um þá eiginleika sem leiðtogi þarf að temja sér og sínum undirmönnum til þess að standa sig vel.
Að lokum fór Sigmundur að hitta Martein vin sinn til þess að nema jákvæða umræðulist.
Honum fannst hann samt ekki nógu hress og fyndinn þannig að hann leitaði líka á önnur mið.
Stuttu síðar fór Sigmundur svo til Undralands og spjallaði við Lísu nokkra um lækkun skulda heimilanna.
Lísa sagði honum að til þess þyrfti hann að díla við erlenda hrægamma…
Sigmundur áttaði sig fljótt á að hann þyrfti að vingast við hrægammana til þess að jákvæð umræða gæti átt sér stað á milli þeirra.
Hann sagði nokkra vel valda brandara….
Fór í afmæli hjá einum þeirra.
Þrátt fyrir mikla lempni í jákvæðri umræðu létu hrægammarnir ekki segjast og vildu ekki skila peningunum sem þeir stálu frá Íslandi. Sigmundur ákvað því að safna liði til þess að berjast við hrægammana með valdi.
Honum varð þó fljótt ljóst að hefðbundið vopnavald myndi ekki duga til og fór því óhefðbundnar leiðir í að ná sér í liðsauka.
Þegar berjast á við hrægamma verður jú að kosta öllu til og hafa sem flesta aðstoðarmenn sér til fulltyngis, sama hverrar tegundar þeir eru.![simmi og aparnir]()
Að lokum varð þó einhver misskilningur og Sigmundur varð eftir alveg aleinn að sigrast á hrægömmunum sem honum tókst þó með mikilli lempni.
Sigmundur er klókur maður og vissi að hann þyrfti áreiðanlegri hermenn fyrir næsta áfanga. Hann bað því læknana á Landspítalanum að klóna sig nokkrum sinnum svo hann gæti sigrað heiminn með sjálfum sér.
Þrátt fyrir mjög skýrar leiðbeiningar þá misskildu læknarnir Sigmund og gerðu handa honum vélmenni í staðinn.
Sigmundur lét það ekki á sig fá og notaði vélmennið sitt til þess að smíða fleiri vélmenni.
Fyrst tókst það ekki alveg nógu vel…
Nú var Sigmundur tilbúinn til þess að koma Íslandi á kortið. Hann hélt til Westeros til þess að biðja um meira landsvæði og peninga fyrir Íslendinga.
Svo kom í ljós að kóngurinn þar var vondur og hrægammur líka.
Þannig að Sigmundur sendi vélmennaherinn sinn á vonda kónginn og tók við stjórnartaumunum sjálfur.
Þegar hann var sestur í járnhásætið horfði hann yfir sköpunarverk sitt og fannst það harla gott. Því var kominn tími til þess að skemmta sér og færa Íslendingum fagnaðarerindið með því að dansa með Beyonce vinkonu sinni.
Hér er Sigmundur að segja íslenskri fjölskyldu að þeim sé borgið. Aðstoðarmaður nr. 6 fylgist með.