Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Ég heiti Nadia Tamimi“

$
0
0

Ræða flutt á málþingi um stöðu múslima á Íslandi laugardaginn 17. janúar 2014.

Ég heiti Nadia Tamimi. Móðir mín er kristin og faðir minn múslimi. Ég er þriggja barna móðir og í sambúð. Ég er Íslendingur og Palestínumaður og ofsalega stolt af uppruna mínum.Í uppeldi mínu var mér kennt að bera virðingu fyrir öllum trúarbrögðum þó ég hafi nú ekki nema grunnþekkingu á kristni og íslam. Ég fékk ekki strangt trúarlegt uppeldi, engir öfgar voru á mínu heimili og sem barn og unglingur þá var þetta einfalt fyrir mér -Jesús var spámaður kristinna og Múhammeð spámaður múslima.

Þeir voru báðir fallegir spámenn sem skyldi bera virðingu fyrir og viðurkenndir í bæði biblíunni og kóraninum. Eini munurinn á mér og öðrum krökkum þá var að ég gekk ekki í stuttum pilsum né flegnum bolum og bar ekki krossa og borðaði ekki svínakjöt.

Í þá daga fannst fólki í kringum mig þetta bara spennandi og spurðu mig mikið útí Palestínu þaðan sem ég er ættuð og bjó. Fólk var forvitið og spurningarnar sem ég fékk voru saklausar og fallegar. Eru bílar í Palestínu? Eru allir á úlföldum þarna? og þar fram eftir götunum. Ég dvaldi í Palestínu mikið á sumrin sem barn og lærði arabísku og marga fallega siði. Það eru ómetanlegar minningar sem ég á með fólkinu mínu þar og hefði ekki viljað hafa þetta öðruvísi og er þakklát að hafa fengið að kynnast báðum menningarheimum. Í þá daga þá var pabba líkt við pabbann úr Cosby show en ekki Bin Laden.

Í dag er þetta önnur saga. Ég þarf nánast að verja trú mína daglega, verja fólkið mitt og leiðrétta misskilning um íslam. Nú er horft á þessa fallegu trú sem hryðjuverkaflokk og við öll úthrópuð morðingjar. Föður mínum er úthúðað í dag á netinu, í kommentakerfum og með skilaboðum.

Þetta þurfa börnin mín að sjá og heyra og ég þarf að vanda mig mikið að ræða við þau um fordóma því ekki vil ég heldur að mín börn haldi að allir kristnir eða annarrar trúar hugsi svona. Ég ber nú ekki með mér útlitslega að ég sé múslimi. Ég geng ekki með hijab og íslenska er mitt móðurmál og fólk verður yfirleitt mjög hissa ef farið er út í trúmál og ég segist vera múslími … en alls staðar í kringum mig finn ég fyrir fordómum.

Á hárgreiðslustofum bæjarins hef ég oft þurft að sitja við hliðina á fólki sem drullar yfir föður minn og trúna og oftar en einu sinni hef ég þurft að flýja með börnin mín út af ýmsum stöðum þar sem ég hef ekki áhuga á að þau heyri svona lagað um afa sinn eða trúna sína.

Sem betur fer eru flestir Íslendingar æðislegir en þeir fáu fordómafullu særa samt. Ég er miður mín yfir því hvert þetta er að stefna. Fordómarnir fá að grassera og við erum mötuð með fréttum af því hversu slæmir múslimar eru og það er að sundra okkar samfélagi.

Hvernig er hægt að dæma 1,6 milljarða manna út frá gjörðum glæpahópa og klikkhausa?

Mér svíður yfir hvernig ástandið er orðið í dag og hvernig árásirnar gegn okkur ágerast. Sorglegast finnst mér þó þegar fólk er með alhæfinga. Múslimar kallaðir hryðjuverkamenn upp til hópa, og þá sé ég fyrir mér föður minn, afa, ömmu og frændfólk. Það er virkilega sárt en ég veit betur. Stundum vildi ég að fólk myndi fræðast áður en það talar eða skrifar.

Mín reynsla af múslimum bæði hér heima og í Palestínu er að þeir eru upp til hópa yndislegt og góðhjartað fólk sem koma fram við mig af virðingu. Sem barn í Breiðholtinu var pabbi minn þekktur af krökkunum í hverfinu fyrir að  vera fyndinn, skemmtilegur og gaf sér tíma til að tala við alla og jafnvel kenna þeim smá arabísku og margir muna enn eftir þessu og arabísku orðunum sem þau lærðu af honum.

Það kemur oft til tals sem dæmi um vanþekkingu hræðsluáróður um að múslimar séu haldnir kvenfyrirlitningu. Aldrei hef ég orðið vör við það, hvorki hér eða í Palestínu, þvert á móti. Pabbi t.d. setur okkur stelpurnar á stall og hvetur okkur og styður okkur í öllu sem við tökum okkur fyrir hendur.

Þegar eitthvað slæmt gerist úti í heimi er ætlast til að ég og faðir minn eða aðrir múslimar svari fyrir það alveg eins og við berum ábyrgð á því.

Sjálf hef ég fengið ófá hótunarskilaboð þegar fréttir af voðaverkum heyrast sem hæst eða bara í kringum moskuna sem stendur til að reisa hér í Reykjavík. Það er löngu orðið tímabært að hér rísi moska fyrir okkur. Það eru nokkur hundruð múslimar á landinu og auðvitað eiga allir rétt á að iðka sína trú í fallegu guðshúsi og eiga stað fyrir stóru augnablikin í lífinu. Það má ekki falla í þá gryfju að svipta fólk, múslima eða aðra sínum mannréttindum.

Alhæfingar eru svo rangar á alla vegu, óréttmætar og stórhættulegar og ég hræðist það.

Árið 1999 þá bjó móðuramma mín, Sigurbjörg Einarsdóttir, hér í Espigerði í Reykjavík. Hún var áttræð. Einn daginn bankar upp á hjá henni maður, Íslendingur, og biður um að fá að hringja hjá henni. Hún sem var gull af manneskju fannst sjálfsagt að hjálpa manninum og hleypti honum inn til að nota símann sinn. Hann ræðst á hana. Hann sker hana og stingur 17 sinnum og myrðir hana með köldu blóði að tilefnislausu og hrottalega!

Þessi maður var kristinn. Hann var Íslendingur, hann var í trúfélagi.  Hann var sakhæfur fundinn og fékk 16 ára dóm og situr enn í fangelsi.

Þarna missti ég það sem var mér kærast. Sorgin yfirtók mig og reiðin líka en aldrei, ekki einu sinni kom í huga mér að kenna öllum kristnum mönnum um, öllum Íslendingum, eða öllum hvítum mönnum … ég kenndi þessum eina manni um og ég geri enn!

Fordómar og hatur í garð múslima í hinum vestræna heimi er raunveruleg ógn við öryggi okkar og þarf að uppræta með því að fræða fólk og skapa einingu milli manna.

Mín æðsta ósk er sú að við getum tekið höndum saman, sama hverrar trúar við erum og spornað á móti þessu. Við sem Íslendingar getum breytt þessari þróun sem hefur myndast og í alvörunni gætum við saman stuðlað að einingu fremur en sundrung, með einmitt því að hugsa „Hvað get ég gert?“

Byrjum á okkur sjálfum og tökum höndum saman. Ég trúi ekki öðru en við viljum öll virðingu og frið í okkar daglega lífi.

Það verður alltaf til vont fólk, í öllum trúarhópum … ekki viljum við láta skilgreina okkur út frá þeim er það?

Ást og friður til ykkar allra.

Nadia Tamimi

 

Nokkur dæmi um hatursskilaboð sem Nadiu hafa borist. Fyrirtækið Nova segist ekkert geta aðhafst og í sama streng tekur lögreglan.

Skilaboð sem Nadia fékk í gærkvöldi.

Skilaboð sem Nadia fékk í gærkvöldi.

Fleiri skilaboð sem Nadiu hafa borist. Fyrirtækið Nova segist ekkert geta gert og í sama streng tekur lögreglan.

Fleiri skilaboð sem Nadiu hafa borist. Fyrirtækið Nova segist ekkert geta gert og í sama streng tekur lögreglan.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283