Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Veldu vín frá Suður-Frakklandi með helgarmatnum

Chateau Paul Mas

Domaines Paul Mas er eitt af mörgum víngerðum í Suður-Frakklandi. Mas-fjölskyldan hefur ræktað vínvið og þrúgur í Languedoc-héraðinu síðan 1892 og árið 2000 stofnaði Jean-Claude Mas Domaine Paul Mas úr 35 hekturum af landi sem hann erfði eftir pabba sinn, Paul Mas.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Paul Mas gamalt

Hjá Domain Paul Mas er leitast við að fanga glæsileik sveitasælunnar með virðingu fyrir gæðum landsins og verndun umhverfisins. Hjá Paul Mas er lögð mikil áhersla á nýtingu hins framúrskarandi, en jafnframt fjölbreytta landslags með jafn fjölbreyttum jarðvegi. Þeir búa til sín vín með mikilli sköpunargleði og fókus á gæði og að jarðvegurinn, sveitin, nái í gegn.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Chateau Paul Mas

Domain Paul Mas á í dag 230 hektara ræktarlands og kaupir að auki þrúgur frá bændum á nærliggjandi vínekrum sem bætir um 800 hekturum ræktarlands við. Það eru meira en 30 þrúgugerðir sem víngerðin hefur úr að spila. Bæði alþjóðlegum og þrúgum sem eiga uppruna sinn á svæðinu og þannig ná þeir að fanga fjölbreytileika Languedoc-héraðsins í vínunum sínum og ná markmiði sínu sem eru hágæðavín sem kosta lítið. Þetta eru vín sem eru gerð til að njóta strax en geymast þó vel í 3–5 ár við réttar aðstæður.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Paul Mas kort

Í vínbúðunum fást fimm tegundir af vínum frá Domain Paul Mas sem allar eiga það sameiginlegt að hafa fengið góða dóma, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Við ætlum að fjalla um þessi frábæru vín hér, byrja á tveimur núna og halda svo áfram næst.

Paul Mas Chardonnay 2012

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Paul Mas Chardonnay

Þetta vín er eingöngu gert úr Chardonnay-þrúgum frá Nicole Estate á Montagnac-svæðinu sem koma af 27 ára gömlum vínvið. Jarðvegurinn á þessu svæði er kalksteinn og möl. Uppskeran fer öll fram á nóttunni á meðan það er svalt til að ná fram bestum gæðum í vínið. Berin eru kramin og 40% þeira sett á nýjar franskar eikartunnur, látið gerjast við lágt hitastig í mánuð og restin er gerjuð á stáltönkum. Að gerjun lokinni er vínið síðan geymt á eikartunnum með hratinu í fjóra mánuði og blandað saman við það sem gerjað var á stáltanki.

Þetta gefur víninu gylltan lit og í nefi er það glæsilegt með trópískum ávöxtum, ananas, heslihnetum og lime, með dálítilli vanillu og ristuðu brauði. Í munni hefur það góða sýru og er í mjög góðu jafnvægi, langt eftirbragð og góða ananastóna.

Þetta vín er frábært með alls konar sjávarréttum en líka með hvítu kjöti, foi gras, mjúkum, feitum ostum og ávaxtaeftirréttum. Svo er það líka sérstaklega gott eitt og sér í góðra vina hópi.

Verð: 1.975. Frábær kaup!

Paul Mas Cabernet Sauvignon 2013

Image may be NSFW.
Clik here to view.
Paul Mas Cabernet

Í þetta vín eru notaðar þrúgur frá Hérault- og Uzés-dölunum. Tvö svæði sem bæði eru með Miðjarðarhafsloftlag, sem gefa víninu mjúk tannín og höfugan blæ. Vínviðurinn sem þrúgurnar koma af eru frá 14 til 27 ára plöntur. Jarðvegurinn er kalksteinn með leir og grófri möl. Til að búa til þetta vín eru gerð fjögur hrein cabernet sauvignon-vín sem síðan er blandað saman til að ná sem bestum árangri. 20% blöndunnar er geymt á notuðum eikartunnum í fjóra mánuði og hin 80% látin jafna sig á stáltönkum jafnlengi áður en það var sett á flöskur.
Vínið er djúpfjólublátt með dimmrauðum tónum. Í nefi eru áberandi tónar af brómberjum, rifsberjum og sólberjum ásamt kryddum. Það hefur rúmlega meðalfyllingu, mjúk tannín og bragð af þroskuðum ávöxtum og gott jafnvægi. Nokkuð langt og gott eftirbragð.

Image may be NSFW.
Clik here to view.
image003

Þetta vín hentar vel með grilluðu rauðu kjöti, nautakjöti og kjötpottréttum, pastaréttum, hörðum ostum og súkkulaðieftirréttum.

Verð: 1.975. Frábær kaup!

Chateau Paul Mas – Mikið fyrir lítið frá Suður-Frakklandi


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283