Fyrir helgi ákvað ég að reyna að búa til heimagert, sykurlaust Nutella. Ég er nefnilega þessi týpa sem get auðveldlega réttlætt það að setjast upp í sófa með Nutella-krukku og stóra skeið og borðað allt á núll einni, með tilheyrandi samviskubiti.
Mér tókst að búa til Nutella-uppskrift sem hefur vakið lukku á mínu heimili og þegar maður er búinn að finna góða leið til að útbúa þessa dásemd þá opnast þúsund og ein, jafnvel tvær hurðir af möguleikum til að nota hana.
Ég er búin að sjá um allt internetið Nutella-köku með tveimur hráefnum, Nutella og egg. Einfalt, ekki satt? Ég ákvað samt sem áður að breyta aðeins hlutföllunum og gera mína eigin útgáfu, einfaldlega út af því að ég tímdi ekki að setja fjögur egg í kökuna.
Uppskrift af sykurlausu Nutella (kannski ég ætti bara að kalla þetta Dísella?)
-1 bolli heslihnetur, ca 130-40g
-250ml möndlumjólk
-60g Sukrin melis
-50g ósykrað kakó
-10 dropar vanillu-stevía
-saltklípa
Byrjið á því að rista heslihneturnar á 180 gráður í 5–7 mínútur. Passið að þær brenni ekki. Látið hneturnar kólna og nuddið skinninu af.
Setjið hneturnar í blandara og búið til mjöl. Bætið við möndlumjólk og stevíu og blandið áfram.
Bætið við Sukrin melis, kakói og saltklípu. Setjið minna af sukrin og kakói en segir til í uppskriftinni og smakkið ykkur til. Sumir vilja meira, aðrir minna.
Setjið í krukku og geymið í kæli.
Kakan sjálf:
-3 stór egg
-250g af Nutella
Þeytið eggin í hrærivél í 5–7 mínútur eða þar til þær eru orðnar mun fyrirferðarmeiri
Blandið nutella við, smá í einu með sleif og blandið varlega við eggin. Þegar allt er orðið vel blandað saman seturðu deigið í 20cm silikonform. Ef þú átt ekki silikonform þarf að smyrja formið með smjöri eða setja bökunarpappír inn í formið.
Bakið kökuna á 175 gráður í ca 25 mínútur eða þar til gaffall kemur hreinn úr kökunni ef maður stingur í hana. Það er eiginlega alveg nauðsynlegt að vera með þeyttan rjóma með þessari köku. Þótt hún sé lítil er hún súkkulaðibomba svo lítil sneið ætti að metta magann og því hægt að bjóða fólki með sér