Harpa Einarsdóttir hefur eins og frægt er orðið skilið við fyrrum vörumerki sitt og hannar nú undir merkinu Skulls & Halos. Nafnið kemur engum á óvart sem þekkir til verka Hörpu en það yfirskilvitlega og dauðlega er mjög til umfjöllunar í bæði myndverkum hennar og fatahönnun.
Harpa er búin að koma sér fyrir í nýrri verslun í miðbæ Hafnarfjarðar og þá er fyrst að spyrja, af hverju Hafnarfjörður? (Það eru reyndar þó nokkrir flottir hönnuðir þar fyrir.)
„Stundum leiða örlögin mann á áður ótroðnar slóðir! Íbúðin mín í Stórholti sem ég hafði búið í undanfarin fimm ár var seld undan mér og mínum. Ég átti þá dásamlegan kærasta sem var gaflari og fluttum við þá tímabundið í heimahús hans þar á slóðum – Ástin og leigumarkaðurinn!
Dóttir mín byrjaði í Lækjarskóla og undi sér vel þar og þá varð ekki aftur snúið þótt tvöfaldur skilnaður stæði fyrir dyrum, það er skilnaðurinn við Ziska og svo kvaddi gaflarinn.
Ég hafði verið að leita mér að vinnuhúsnæði, og var alls ekki á leiðinni í verslunarrekstur, hvað þá í tvöfaldri ástarsorg! En litla verslunarrýmið á Strandgötunni var mér ætlað. Hönnuðurinn Birta var þar áður með Júniform.
Ég hafði samband við eigandann og var komin með lykla daginn eftir. Það er dásamlegt og friðsælt að vera í Hafnarfirði, það minnir mig stundum á Seyðisfjörð, þessi gömlu hús og höfnin.
Sköpunarkrafturinn bullar undir hrauninu í Hafnarfirði og eðlilegt að listamenn og hönnuðir þrífist þar betur en umvafðir lundaómenningunni í 101.“
Er kjörlendi fyrir skapandi hönnuði í Hafnarfirði? Haute Couture Hafnarfjörður?
„Já, ég sé þetta alveg fyrir mér, það verður ekki langt þangað til (hönnuðurinn) Jör opnar í verslunarmiðstöðinni Firðinum! segir Harpa og grínast. En jú, af hverju ekki? Hafnarfjörður og Garðabær eru stór bæjarfélög með mikið af flottu fólki sem kann gott að meta!
Ég gæti alveg séð fyrir mér þá þróun að Hafnarfjörður yrði eins konar Brooklyn, þar sem listaelítan hreiðrar um sig til að losna frá látunum á Manhattan (Reykjavík).
Það er margt spennandi að gerast, og Bæjarbíó er t.d. frábær tónleikastaður með sál! Svo eru sérverslanir eins og Kailash, Sápubúðin, Hafnarborg og Gló, Andrea og Litla hönnunarbúðin. Svo er mjög gott kaffi á Pallette sem minnir mig mikið á Berlín, og svo auðvitað Súfistinn. Ég verð að viðurkenna að ég sakna 101 mjög lítið enda hefur barferðum fækkað stórlega!“
Hvað geturðu sagt okkur um nýju línuna, Skulls & Halos?
„Ég stefni á að fara rólega af stað og vonast til að merkið geti vaxið með búðinni, fyrsta línan er lítil og nett. Ég er fyrst og fremst að svala minni þörf fyrir að skapa tísku sem list, það verður mikið af handverki og einstökum flíkum sem eru úr endurunnum efnum, eins og prjónaðar og þæfðar peysur úr sari silki og íslenskri ull. Já, ég sagði ÞÆFT! Svo er hluti línunnar úr hágæða silkiefnum, cashmere og lífrænni bómull. Ég er að virkja handverksfólk til að vinna með mér og tók meðal annars í rokk hjá 95 ára gamalli Hjörseyjar-ættmóður í sveitinni hjá föður mínum. Ég ætla að læra að spinna og vefa og nýta mína myndlistarhæfileika í að búa til einstakar flíkur sem einstakar konur munu njóta að klæðast. Að sjálfsögðu verður dulúðin og galdurinn ekki langt undan. Svo er ég búin að vera að viða að mér alls konar upplýsingum um umhverfisvæna framleiðslu og efni. Það er nýr heimur að opnast fyrir mér sem er ótrúlega spennandi.“
Hvenær fáum við að máta? Hvenær er línan væntanleg?
„Hluti línunnar er í framleiðslu í Eistlandi, hinn hlutinn er hér í mínum höndum og okkar einstaka handverksfólks! Ég stefni á að kynna línuna í vor.“
Í ljósi þinnar eigin reynslu í gegnum árin, hvað er mikilvægt fyrir unga hönnuði að hafa í huga þegar þeir leita til samstarfsaðila með fjármögnun, vöruhönnun og framleiðslu?
„Ætli það sé ekki fyrst og fremst að gera sér grein fyrir hversu hátt maður stefnir og hversu mikla ábyrgð maður er tilbúinn að taka. Það heftir oft sköpunargleðina og veldur streitu þegar maður er kominn með fjárfesta sem leggja háar fjárhæðir í ung fyrirtæki, maður þarf að spyrja sig hvar maður vill vera eftir fimm ár og fylgja því markmiði.
Ég myndi segja að regla nr. 1 væri að forðast að stofna fyrirtæki með góðum vinum. Frekar að finna viðskiptaaðila sem deilir sama áhuga og bætir upp það sem upp á skortir hjá manni sjálfum hvað þekkingu eða sérsvið varðar.
Ég myndi ráðleggja öllum að reyna fyrst að komast eins langt og mögulega upp á eigin spýtur, það er ótrúlega mikið af færu fólki sem er að aðstoða og leiðbeina ungum fyrirtækjum, og taka jafnvel að sér að gera umsóknir eins og fyrir Tækniþróunarsjóð.
Ég lærði mikið af að vera í Start up Reykjavik með YZ Creation, sem heitir nú Another Creation, með Ýri Þrastar og Hrefnu Sverris. Þar gerði ég mér grein fyrir að hönnunin sjálf er bara 15% af ferlinu! Gott viðskiptaplan er það sem kemur þér áfram og heiðarleiki, gagnvart öðrum og sjálfum þér og sérstaklega þinni sköpun!“
Njóta hönnuðir á Íslandi verndar af stéttarfélagi, Hönnunarmiðstöð eða öðrum aðilum?
„Það er starfrækt Fatahönnunarfélag Íslands, þar sem sitja miklir snillingar. Laufey Jónsdóttir er formaður, og ég veit hreinlega ekki hvar við værum án hennar! Hún er ótrúlega dugleg og við eigum henni og Hönnunarmiðstöð margt að þakka.“
Myndverk þín hafa hlotið verðskuldaða athygli, þú ert vonandi ekki hætt að vinna í myndlist?
„Málið er að tíska er myndlist fyrir mér og ég stefni á að taka það „concept“ enn lengra þar sem fatnaðurinn verður seldur eins og myndlist! Ég á við að það verði kannski aðeins framleiddar 7 peysur í einum sérstökum stíl, flíkin verður merkt og númeruð eins og „artist print“. Það kæmi þá fram hvar og hvernig flíkin er framleidd. Þú veist þá að þú ert ein af fimm konum í heiminum sem átt slíka flík, og hún verður aldrei framleidd aftur. Þetta eykur verðmæti vörunnar og þér þykir vænna um hana, og hún erfist jafnvel til komandi kynslóða.
Það er kominn tími til að við horfum á fatnað öðrum augum, við þurfum að vera upplýstari um uppruna hennar og stemma stigu við offramleiðslu. Tískuheimurinn er eitraður að svo mörgu leyti og það er undir okkur komið hvernig hann þróast. Það er ótrúlega mikil vitundarvakning um þessi málefni sem betur fer.“
Þú heldur úti galleríi fyrir unga listamenn í húsnæði Skulls & Halos. Af hverju er það mikilvægt að styðja við unga listamenn? Sérðu sjálfa þig í þessu unga fólki sem er að taka fyrstu skrefin?
„Ég býð einum ungum listamanni að kynna sína vöru mánuð í senn í búðinni endurgjaldslaust. Viðkomandi fær þá tækifæri til að kynna sig og sín verk, og fá viðbrögð frá hinum almenna kúnna! Mér finnst mikilvægt að styðja við grasrótina, sérstaklega ungt fólk sem hefur lokið námi og er að leita leiða til að koma sér á framfæri! Það gefur mér innblástur að sjá hvað þetta unga fólk er að gera og við þurfum að styðja betur við bakið á þeim. Þess ber að geta að við kynnnum einmitt þrjá listamenn mánaðarins í versluninni næsta laugard. kl. 17, þá verður glatt á hjalla á Strandgötunni, endilega lítið inn!“
Er kraftinn til að halda áfram að finna í mótvindinum, Harpa?
„Nei, nú fer ég að haga seglum eftir vindi! Held að það sé orðið tímabært, annars fýkur allt hárið af mér aftur!“