Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Eddan kom, sá og sigraði

$
0
0

María Sigurðardóttir skrifar:
Screenshot 2015-03-08 17.35.55

Kvöldið sem ég sá Edduna í nýuppgerðu Gamla bíói varð mér hugsað til þess að í salnum væru áreiðanlega ótalmargir aðdáendur, sem bókstaflega ólust upp við þessa vinsælu leikkonu í sjónvarpi, útvarpi og í kvikmyndum. Edda Björgvins hefur skapað ógleymanlegar persónur í þeim miðlum, ásamt því að gleðja áhorfendur á leiksviði líka. Það geislar af Eddu er hún birtist á sviðinu.

eddan banner

 

Í upphafatriðinu eru áhorfendur settir inn aðstæður leiksins, sem er spjallþáttur í Gamla bíói, viðfangsefnið er Edda Björgvins, spyrillinn er Gunnar Hansson og áhorfendur eiga að fá að berja augum brot af öllu því sem leikkonan hefur afrekað um æfina. Fljótt kemur á daginn að hugmyndir leikkonunnar og þáttastjórans fara ekki saman. Hyggst sá síðarnefndi fleyta yfirborðslegar kerlingar yfir vinsælustu atriði Eddu, við undirleik gríðarlega meðvirks undirleikara (Bergþórs Pálssonar) og framan af muna þeir tveir, ekki eftir neinu öðru frá löngum og farsælum ferli leikkonunnar, en Stellu í orlofi.

Eddan.Cats

Fyrr en varir tekur leikkonan stjórnina og í stað þess að tíunda fyrri afrek og fara yfir ferlinn eins og hann var, tekur prímadonnan að tíunda afrek sem hún á ekki að baki og færa upp atriði úr leikritum sem hún aldrei lék í. Þvílík snilld. Upp frá því verður ekki aftur snúið.

Áhorfendur eru með á nótunum og hlátursmaskína Eddu Björgvins er komin í gang. Það er tilkomumikið að sjá Eddu leika á sviði og enda þótt áhorfendum hafi öðrum þræði fundist þeir vera að horfa á „legend” í öllu sínu kómíska veldi, uppliðfðum við Edduna sem manneskju, sem leyfði sér að afhjúpa sín innstu leyndarmál og koma til dyranna eins og hún er klædd. Þótt það sé e.t.v. öfugmæli, svo margar eru persónurnar sem Edda hefur skapað. Sumar hverjar dró hún upp úr pússi sínu á leiksviðinu. Nema hvað.

Eddan.Lína

Þrátt fyrir drepfyndna túlkun hennar á Júlíu, úr Rómeó og Júlíu, Vernhörðu Alba og Grísabellu úr Cats, fengum við að sjálfsögðu okkar skammt af Stellu, dass af Bibbu og rödd Túrhillu færeysku, sem hélt utan um sýningarstjórnina baksviðs.

Það er engin tilviljun að Edda Björgvins skuli vera sú þjóðargersemi sem raun ber vitni. Og ekkert skrítið að aðdáendur skuli hafa beðið með óþreyju eftir Eddunni.

Áhorfendur fengu annað og meira, en endurvinnslu á gömlum en sígildum karakterum Eddu, sem hefði verið einfaldasta leiðin, við urðum vitni að því er leikkonan steig út fyrir þægindarammann, gaf hluta af hjarta sínu, deildi með okkur sorg og gleði.

Enda þótt Edda hafi farið á sprenghlægilegum kostum, birtist hún, sem eins konar skopstæling á sjálfri sér, „grét” öll dramatísku hlutverkin sem hún fékk aldrei að leika og söngleikjarullurnar sem henni var ekki treyst fyrir. Hún narraði okkur til þess, með galdri sínum, að finna til.

Nokkuð sem vitnar í hnotskurn um það hversu hárfín lína er milli harmleiks og skopleiks, hláturs og gráts. Sýningin er dásamleg, fjörug og fyndin og meðleikarar Eddu fara á kostum, Gunnar Hansson og Bergþór Pálsson.

Við þökkum fyrir að eiga þennan gimstein: Edduna okkar!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283