Kostuð kynning
Allar konur upplifa tíðahringinn á ólíkan hátt og lengi hefur verið leitast við að hjálpa konum að ráða bót á þeim fylgikvillum sem tíðahringnum fylgja. Sársaukafullar blæðingar, skapsveiflur, fyrirtíðaspenna eru nokkur atriði sem margar konur þekkja og sumar konur þjást alvarlega vegna þessa. Þá eu ótaldar hormónasveiflur sem valda óreglulegum tíðum og húðvandamálum.
Hvað er til ráða?
Margar konur velja að taka ekki inn hormónalyf og vilja leita að náttúrlegri leiðum. Ein þeirra er að neyta fæðabótaefnis unnið úr maca rótinni. Femmenessence MacaHarmony er lífrænt ræktað fæðubótarefni frá USA fyrir konur á barneignar- og frjósemisaldri unnið úr macarót og er örugg og náttúruleg leið til að draga úr hormónaójafnvægi án þess að vera hormón.
Macarótin er ofurfæða ræktuð í Andesfjöllunum þar sem rótin í sinni upprunalegu mynd er hluti af daglegri fæðu manna.
Hvernig getur þetta virkað ef þetta er ekki hormónalyf?
Í Femmenessence eru engir hormónar en efnið styður framleiðslu líkamans á hormónum gegnum HPA Axis eða Undirstúku-heiladinguls-nýrnahettu öxulinn og kemur þannig jafnvægi á hormónabúskap líkamans. Macarótin er flokkuð sem adaptogen eða aðlögunarhvetjandi jurt sem stuðlar að aðlögunarhæfni líkamans, sem þýðir að hún styrkir líkamann þannig að hann á auðveldara með að verjast sjúkdómum og takast á við streitu, styrkir starfsemi nýrnahettna og stuðlar að því að koma jafnvægi á líkamsstarfsemi. Skilyrði fyrir því að kalla megi jurt aðlögunarhvetjandi eru að hún hafi engar eiturverkanir á líffæri og langvarandi notkun sé örugg og að rannsóknir búi að baki.
Í Femmenessence er búið að einangra mismunandi þætti úr macarótinni (engin önnur macarótarvara á markaðnum býður upp á það) sem hjálpa til við mismunandi hormónatengd vandamál kvenna á mismunandi aldri. Flestar þær vörur sem eru auglýstar sem lausn fyrir konur með t.d. breytingaskeiðseinkenni innihalda annaðhvort mulin hörfræ eða soja, sem er estrogenviðtakaörvi sem hefur aðeins áhrif á estrogenframleiðslu líkamans án þess að taka tillit til samspils allra hormóna. Auk þess sem allt soja á markaðinum er erfðabreytt.
Hvað hentar þér?
Femmenessence MacaHarmony Macarót er ætlað konum og stúlkum á barneignar- og frjósemisaldri. Á barneingaraldri sveiflast hormónarnir upp og niður eftir tíðahringnum oft með tilheyrandi óþægindum, fyrirtíðaspennu, skapsveiflum ofl. Femmenessence MacaHarmony Macarót er talin jafna hormónasveiflur, koma jafnvægi á tíðahringinn, draga úr sársaukafullum blæðingum og skapsveiflum og styðja frjósemi og grundvallarkvenheilbrigði.
„Er í skýjunum með vöruna, hún er hverrar krónu virði“
-Kidda Svarfdal ritstjóri Hún.is
Vilt þú prófa Femmenessence MacaHarmony?
Kvennablaðið í samstarfi við Vistor hf. vill bjóða konum og stúlkum á barneignaraldri að prófa Femmenessence MacaHarmony þeim að kostnaðarlausu. Besta leiðin til að sannreyna virkni vörunnar er að prófa hana sjálf og sjá hvernig hún hentar þér. Femmenessence macarótin inniheldur helstu vítamín, ensím, fitursýrur og lífsnauðsynlegar amínósýrur. Auk þess inniheldur Femmenessence mikið af virku kalki og magnesíum, auk B1-, B2- og B12 vítamínum og flokkast sem ofurfæða og er öflugt andoxunarefni. Ef þú vilt prófa láttu okkur þá vita hér í kommentakerfinu hér í lok greinarinnar. Ekki hika við að láta okkur vita ef þú telur að þú gætir haft gagn af því að prófa þessa vöru sem hefur reynst fjölda kvenna afar vel.
Hvernig á að nota Femmenessence MacaHarmony?
Femmenessence MacaHarmony er mjög virkt og því er ráðlagt að taka 1 hylki á dag að morgni og bæta við skammtinn smátt og smátt á nokkurra daga fresti þar til fullum skammti er náð eða 2-4 hylki á dag eftir þörfum. Eftir inntöku í nokkra mánuði þegar líkaminn er kominn í jafnvægi má minnka skammtinn aftur niður í 1-2 hylki á dag. Femmenessence inniheldur ekki soya, mulin hörfræ, ísóflavón (plöntuestrogen) né hormóna. Í hverjum pakka eru 120 þynnupökkuð grænmetishylki. Ólíkt öðrum fæðubótarefni er fylgiseðill í pakkanum með upplýsingum um virkni og mögulegum aukaverkunum en ef kvenlíkaminn er í miklu hormónaójafnvægi þá geta konur fundið fyrir þreytu og höfuðverk í upphafi inntöku meðan líkaminn er að koma á jafnvægi. Flestar konur finna mikinn mun á sér innan 10 daga. Femmenessence MacaHarmony fæst í apótekum, Heilsuhúsinu og Heilsuveri.
Femmenessence Macarótin rannsóknir og framleiðsluferli
Macarótin Lepidium Peruvianum er ein af 175 Lepidium maca tegundum. Innan Maca Lepidium Peruvianum eru 13 mismunandi arfgerðir. Hver arfgerð hefur sinn lit og greiningarsnið og hefur hver arfgerð mismunandi líffræðileg áhrif á líkamann. Natural health International hefur einangrað virk efni rótarinnar og er það mismunandi samsetning arfgerðanna sem gerir það að verkum að hægt er að miða vörurnar að hverju æviskeiði kvenna fyrir sig annars vegar og að karlmönnum hins vegar.
Virkni Femmenessence hefur verið staðfest í rannsóknum og birt í virtum lækna-og vísindatímaritum. Engar tvær konur eru eins, macarótin hlúir að hormónajafnvægi konunar á heildrænan hátt og bætir þannig andlegt og líkamlegt jafnvægi – ekki bara á einn veg.
Femmenessence er með lífræna vottun í USA, Evrópu og Japan og framleitt undir GMP og ströngum gæðastöðlum. Varan er með sanngirnisvottun eða Fair Trade sem tryggir að framleiðendur og bændur í þriðja heiminum fái sanngjörn laun fyrir vinnu sína og að barnaþrælkun á sér ekki stað. Allar umbúðir eru umhverfisvænar og pakkarnir eru litaðir með grænmetisbleki. Hylkin eru þynnupökkuð sem tryggir að innihaldið er jafn virkt eftir opnun umbúða þar sem súrefni og sólarljós dregur úr virkni Maca rótarinnar. Rannsóknir benda til þess að Femmenessence sé eitt öflugasta adaptógen sem greinst hefur til þessa.
Með því að velja vöru með FairTrade vottun;
• …stuðlar þú að því að framleiðendur og bændur fái sanngjörn laun fyrir vörur sínar og vinnu
• …hjálpar þú til við að draga úr barnaþrælkun
• …stuðlar þú að því að lífræn ræktun nái frekari útbreiðslu
• …styrkir þú réttinn til félagsfrelsis og stuðlar að lýðræðisþróun
• …dregur þú úr misrétti heimsins
• Fair Trade vottaðar vörur eru einfaldlega sanngjarnari á bragðið ☺
Fylgdu Femmenessence á Facebook til að fá fréttir og frekari upplýsingar.
Heimildir:
Basic Clinical Pharmacology Toxicicol. Vol. 97, Supp l (1): 47. Meissner, H.O., Reich-Bilinska, H., Kedzia, B. (2005). Pre-Gelatinised Maca (Lepidium peruvianum Chacon) As Non-Hormonal Herbal Remedy To Treat Menopausal Symptoms In Pre- And Post-Menopausal Women.
Proc. 16th Annual Meeting North American Menopause Assoc. Sept. 28 – Oct. 1, 2005, San Diego, CA. Menopause. 2005; 12 (6): 813Meissner, H.O., Reich-Bilinska, H., Mrozikiewicz, P.M., Mscisz, A.., Lowicka, A.., Bobkiewicz-Kozlowska, T., Kedzia, Hormone-balancing and Pharmacological Effects of Therapeutic Doses of Lepidium peruvianum in Pos™enopausal Women.
Intl. Journal of Biomedical Science 2006: Vol. 2, No. 2. 143. Meissner H.O., Reich-Bilinska H., Mscisz A., Kedzia, B.
Therapeutic effect of Lepidium peruvianum Chacon (Pre-Gelatinised Maca) used as a non-hormonal alternative to HRT in Peri-menopausal women
– Clinical Pilot Study.
https://www.naturalhi.com/downloads/Pharm_Tox_7th_congress_ABST%20MAG%20pg48%20and%20cover.pdf
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC3614596/