Kvennablaðinu barst ábending um afar ósmekklegan brandara úr smiðju Vaktarinnar FM957. Í þætti Vaktarinnar kom fram landsþekktur leikari ásamt stjórnendum og var leikarinn fenginn til að hringja í verslun og spyrja um kynlífsgræjur fyrir dóttur sína og eiginkonu. Hvað finnst fólki um þetta smekkleysi og að þessi útsending sé endurflutt á ljósvakanum aftur og aftur? Þetta eru meira en lítið skrýtin skilaboð til barna sem gætu verið að hlusta á þetta. Er það fyndið að gefa í skyn að faðir sé að aðstoða dóttur sína við notkun kynlífshjálpartækja?
Vaktin samanstendur af 11 þjóðþekktum einstaklingum sem standa vaktina á FM957 alla virka daga kl. 16 – 18. Á mánudögum eru það Jón Gunnar Geirdal og Óli Jó sem standa vaktina. Á þriðjudögum Friðrik Dór og Ási, miðvikudaga eru það Anna Svava og Arnór. Á fimmtdögum eru það systkynin Kristján Ingi og Ósk og á föstudögum eru það þeir Auddi og Steindi jr.
Hér er hægt að heyra brandarann og dæmi nú hver fyrir sig.