Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Tilkynning frá Blaðamanna­fé­lagi Íslands og Fé­lagi frétta­manna

$
0
0

Stjórn­ir Blaðamanna­fé­lags Íslands og Fé­lags frétta­manna lýsa yfir furðu sinni á mál­flutn­ingi lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyj­um og þeim sjón­ar­miðum sem liggja hon­um til grund­vall­ar varðandi frétta­flutn­ing af kyn­ferðis­brota­mál­um sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð.

Sú til­raun til þögg­un­ar sem þar er lögð til er al­ger­lega úr takt við þau meg­in­sjón­ar­mið um upp­lýsta og opna umræðu sem lýðræðis­sam­fé­lög hljóta að styðjast við vilji þau standa und­ir nafni.

Það er skylda fjöl­miðla að segja frá of­beld­is­glæp­um og það þjón­ar hags­mun­um engra nema of­beld­is­mann­anna að þegja um þá. Um það þekkj­um við því miður alltof mörg dæmi frá liðnum ára­tug­um.

Það er eng­in betri aðferð til að fyr­ir­byggja og lág­marka of­beldi held­ur en að tala um það af hrein­skilni.

Hvernig eig­um við með öðrum hætti að tak­ast á við for­dóma og rang­hug­mynd­ir og fyr­ir­byggja gróu­sög­ur af öllu tagi?

Stjórn­ir BÍ og FF hvetja lög­reglu og aðra viðbragðsaðila til þess að ræða þau of­beld­is­brot, kyn­ferðis­brot jafnt sem önn­ur, sem upp kunna að koma á þjóðhátíð með op­in­ská­um hætti með hags­muni al­menn­ings að leiðarljósi.

Það er bein­lín­is sam­fé­lags­leg og lýðræðis­leg skylda þeirra að greina skil­merki­lega frá því sem ger­ist og frétt­næmt þykir á þjóðhátíð í þágu þeirra sem sækja hátíðina heim og heima­manna í Vest­manna­eyj­um.

Reykja­vík 30. júlí 2015

 

Ljósmynd eftir Aljo Hartgers


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283