Flóttafólk á ferð sinni frá Grikklandi yfir landamærin til Makedóníu fyrirhitti óeirðalögreglu sem börðu til þeirra og skipuðu þeim að setjast á regnvota jörðina. Þetta myndband var tekið í gær 11. september 2015. Þegar komið er yfir landamærin reyna flestir að komast í lestir til Serbíu og þaðan til Ungverjalands þar sem ekki betra bíður þeirra og áfram inn á Schengen svæðið. Ungverjar tilkynntu að þeir muni frá og með þriðjudeginum næstkomandi fangelsa ‘ólöglega’ innflytjendur.
↧