Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ennþá gerast ævintýr

$
0
0

Það var ekki laust við að gæsahúð hríslaðist um mig þegar ég gekk í salinn í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi. Á stóra sviðinu blasti við sjálfur ævintýraskógurinn, dimmur og djúpur, með himinháum laufþungum trjám sem sólargeislar seytluðu í gegnum. Þarna lagði Börkur Jónsson leikmyndahönnuður upp til dýrlegrar skemmtunar enda var sýningin framundan um frægasta útlaga allra tíma: Í hjarta Hróa hattar.

Börkur

Börkur Jónsson leikmyndateiknari

Eiginlega er merkilegt að hugsa til þess hvað útlagaþjófar eru furðulega spennandi í bókmenntunum. Samt hljóta þeir yfirleitt að lifa aumu lífi, hundeltir jafnt af yfirvöldum og venjulegu fólki sem leiðist að láta ræna sig. En lítið bara á allar ódauðlegu útilegumannasögurnar, Grettis sögu, Eyvind og Höllu, fólkið hennar Ronju ræningjadóttur, Bláskjá … Og ekki síst sögurnar af Hróa sem hafa verið sagðar í margar aldir.

Hrói (Þórir Sæmundsson) hefur yfirleitt það orðspor í sögum að ræna frá þeim ríku og gefa þeim fátæku en í leikriti Davids Farr, sem var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í gærkvöldi í þýðingu Garðars Gíslasonar, er hann í upphafi bara venjulegur bíræfinn þjófur og skíthæll. Hann hefst við með lið sitt í Skírisskógi í Jórvíkurskíri á Englandi og ræðst á ferðamenn sem þar eiga leið um, rænir af þeim öllu fémætu en leyfir þeim síðan að fara. Hann drepur sem sagt ekki.

_MG_2502

Þórir Sæmundsson er Hrói

Dag nokkurn kemur í skóginn til hans ung aðalsmær, Maríanna (Lára Jóhanna Jónsdóttir), eldri dóttir hertogans af Jórvík. Faðir hennar er í krossferð með Ríkharði ljóshjarta konungi landsins og ekki væntanlegur heim í bráð. Yngri systir hennar, Henríetta (Katrín Halldóra Sigurðardóttir), vill ólm að hún giftist til að sjálf geti hún tekið einhverjum af sínum ótal biðlum. En Maríanna vill ekki giftast bara til að giftast, hún vill láta gott af sér leiða, þess vegna fer hún út í skóg með sínum trúa þjóni Pierre (Guðjón Davíð Karlsson) og ætlar að verða göfugur ræningi eins og hún heldur að Hrói sé. En Hrói vill ekkert kvenfólk í sínum skógi og hrekur hana frá sér.

_MG_2654

Lára Jóhanna Jónsdóttir sem Maríanna

Skömmu seinna fær Maríanna gilda ástæðu til flótta af því að hinn slóttugi valdaræningi Jóhann prins (Sigurður Þór Óskarsson) vill biðja hennar. Henni líst bölvanlega á það, svo að hún tekur á sig karlmannsgervi, kallar sig Martein, leggur undir sig annan hluta Skírisskógar og fer að iðka það sem hún hélt að Hrói gerði: ræna frá þeim ríku og gefa hinum fátæku. Nú er spurningin hvort Skírisskógur er nógu stór fyrir þau bæði og hvort Maríanna getur endalaust flúið sinn stórættaða og ofbeldisfulla biðil.

Söguþráðurinn er sannkallað rómantískt ævintýri með öllum nauðsynlegum efnisþráðum, spennu, ofbeldi, gríni og heitum tilfinningum. Hér minnir líka ýmislegt á Shakespeare – stúlka í karlmannsgervi sem heillar bæði karla og konur og bráðfyndið hirðfífl. Kannski er ekki eitt frumlegt atriði í öllu verkinu en það breytir engu um að það er rosalega skemmtilegt – of gróft og harkalegt til að henta börnum (á einum stað er tunga rifin úr höfði lifandi manns) en upplagt fyrir unglinga og aðra ævintýraþyrsta – og sýningin rennur létt eins og lækur niður fjallshlíð. Allur sýningarbragur er sérkennilega einlægur og aðlaðandi og full ástæða til að gefa leikstjórunum, Gísla Erni Garðarssyni og Selmu Björnsdóttur, stóra rós í sitt hnappagat.

_MG_3775 2

Þórir Sæmundsson er eins og sérhannaður í hlutverk Hróa, spókaði sig sjálfsöruggur og flottur í sinni leðurbrók og vesti með myndarlega bringuna bera. Lára Jóhanna var jafnglæsileg sem Maríanna og Marteinn og tók hiklaust að sér að verða hin eiginlega hetja skógarins. Þau Þórir og Lára Jóhanna voru öflugir keppinautar, til dæmis var skylmingaratriðið milli þeirra virkilega smart, og ekki fór ástin þeim verr.

Björn Dan Karlsson í hlutverki Litla Jóns

Björn Dan Karlsson í hlutverki Litla Jóns

Liðsmenn Hróa voru kátir karlar, hver öðrum knárri, Villi Skarlat (Oddur Júlíusson), Davíð Miller (Baltasar Breki Samper) og Litli-Jón sem í þessari útgáfu er raunverulega lágvaxinn (Björn Dan Karlsson).

_MG_3177

Sigurður Þór í hlutverki sínu sem Jóhann Prins

Yfirvöld eru fulltrúar hins illa og þar var Jóhann prins í fyrsta sæti. Sigurður Þór var óhugnanlega margbrotinn í leik sínum og óþægilega sannferðugur sem konukvalari.

Guðjón Davíð

Guðjón Davíð í hlutverki Pierre

Stefán Hallur Stefánsson kom næstur honum í hlutverki þess sem vinnur skítverkin. Kímilegu persónurnar mynduðu þakklátt mótvægi við þær illu. Guðjón Davíð fór framúr sjálfum sér í fyndnum töktum í hlutverki Pierres og Katrín Halldóra var dásamleg Henríetta.

Systirin Henríetta leikin af

Systirin Henríetta leikin af Katrínu Halldóru

Baldur Trausti Hreinsson og Edda Arnljótsdóttir leika nokkur hlutverk, hvorugt þó eins mörg og Stefán Karl Stefánsson sem brá sér í ein átta lítil hlutverk – þeirra á meðal villisvín – og gerði þeim öllum glimrandi skil!

Stefán Karl Stefánsson í hlutverki villisvínsins

Stefán Karl Stefánsson í hlutverki villisvínsins

Loks verður að nefna Summers-börnin sem stálu hjörtum áhorfenda ekki síður en aðalparið. Þau voru í gærkvöldi í öruggum höndum Öglu Bríetar Gísladóttur og Gabríels Bergmans Guðmundssonar.

Summers-börnin leikin af

Summers-börnin leikin af Öglu Bríeti og Gabríel Bergman

Leikstjórarnir hafa áður sett þessa sýningu upp víða um heim við góðan orðstír og fyrst hjá Royal Shakespeare Company í Stratford upon Avon. Sviðið ógleymanlega, lýsing (Ken Billington og Ed McCarthy) og fjölbreyttir búningar (Emma Ryott) koma að utan.

Salka Sól og Guðjón Davíð

Salka Sól og Guðjón Davíð

 

En fyrir þessa sýningu gerðu Salka Sól Eyfeld, Aron Steinn Ásbjarnarson, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson og Örn Ýmir Arason nýja tónlist sem þau fluttu á sviðinu. Tónlistin var fjörug og fyndin en ekki heyrði ég oft orðaskil í textunum.Það gerði kannski ekki svo mikið til.

Þegar allt er lagt saman er ástæða til að hvetja alla þá sem ævintýrum unna til að flykkjast á þessa sýningu.

11222917_933754523336854_3280063180327516243_o

Aðstaðdendur sýningarinnar:
Leikarar:
Agla Bríet Gísladóttir, Ágúst Örn Börgesson Wigum, Baldur Trausti Hreinsson, Baltasar Breki Samper, Björn Dan Karlsson, Edda Arnljótsdóttir, Gabríel Bergman Guðmundsson, Guðjón Davíð Karlsson, Jóhannes Níels Sigurðsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Oddur Júlíusson, Rakel María Gísladóttir, Selma Rún Rúnarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Stefán Hallur Stefánsson, Stefán Karl Stefánsson, Þórir Sæmundsson
Leikstjórn:
Gísli Örn Garðarsson, Selma Björnsdóttir
Tónlist:
Aron Steinn Ásbjarnarson, Salka Sól Eyfeld, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson , Örn Ýmir Arason
Tónlistarfólk:
Aron Steinn Ásbjarnarson, Salka Sól Eyfeld, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson , Örn Ýmir Arason
Leikmynd:
Börkur Jónsson
Búningar:
Emma Ryott
Lýsing:
Ed McCarthy, Ken Billington
Þýðing:
Garðar Gíslason
Ljósmyndari:
Hörður Sveinsson

Dómur einnig birtur í TMM þann 13. september 2015


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283