Sýruárásir tíðkast um allan heim og að stærstum hluta eru fórnarlömbin konur eða ungar stúlkur. Reshma Bano Qureshi er indversk og ein þessara fórnarlamba en hún missti annað augað og hörund hennar er örum sett eftir að mágur hennar og hópur karlmanna réðust að henni, héldu henni og helltu sýru í andlit hennar.
Í þessu kennslumyndbandi sem við fyrstu sýn er bara eins og hvert annað förðunarmyndband vill Reshma Bano Qureshi benda á að það er jafn auðvelt og ódýrt fyrir ofbeldismenn að kaupa sýru og það er að kaupa sér varalit eða augnblýant.
Myndbandið er unnið í samstarfi við hóp sem kallar sig Make Love Not Scars og er hluti af herferð til að vekja athygli á þessu hræðilega ofbeldi sem margar konur sæta sem og hvetja til banns á sölu á sýru af þessu tagi til almennings. Svo er hægt að styðja þetta átak hér en það er stefnt að því að byggja meðferðarsetur fyrir fórnarlömb sýruárása.