Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„Alþingi er ekki aðgengilegt fyrir alla“

$
0
0

Freyja Haraldsdóttir vakti athygli á því að Alþingi er ekki aðgengilegt fyrir alla, undir liðnum Störf þingsins í gær þann 15. september 2015.

„Virðulegi forseti Það er með trega sem að ég vel að vekja máls á því að ponta alþingis er ekki að fullu aðgengileg. Það er með trega vegna þess að mér finnst óþægilegt að persónugera þetta mál enda er þetta prinsipp mál. Ég hef því valið að hafa ekki hátt um þetta þar til nú af tveimur ástæðum.

Í fyrsta lagi vegna þess að fyrir tæpum tveimur árum var ég fengin til þess að upplýsa ykkur um hvernig ég gæti notað pontuna. Nokkrum mánuðum síðar sá ég frétt um það að pontan væri orðin hjólastólavæn og um leið og það gladdi mig. Með fréttinni var mynd af tveimur uppisitjandi karlmönnum í hjólastól, sem hvorugir eru varaþingmenn. Ég var svolítið undrandi að ekki hefði verið kallað eftir mér til þess að prófa pontuna vitandi af því að mögulega myndi ég starfa hér á ný.

Í öðru lagi vek ég máls á þessu sannfæringar minnar vegna því ég get ekki gefið fötluðu fólki þau skilaboð að fatlaðir þingmenn séu minna virði en aðrar þingkonur og þingkarlar. Að jú, vissulega getum við sum tekið þátt í stjórnmálum og boðið okkur fram til þings, en við gætum þurft að láta okkur það nægja að sitja á jaðri þingsalarins og tala úr sæti okkar. Þar sem við sjáumst minna og rödd okkar heyrist ekki eins vel. Að við þurfum ekki að geta komist í pontu, nú eða í sæti ráðherra eða forseta þingsins, því það sé ekki gert ráð fyrir okkur þar. Ég get ekki lengur sent þessi skilaboð.

Fatlað fólk sem hefur rutt brautina fyrir mína kynslóð um allan heim á það inni hjá mér að ég sé ekki slík gunga. Alþingi þarf að láta af því að elska gamlar sögulegar pontur meira en réttindi borgaranna til stjórnmálaþátttöku. Það þarf að breyta stefnu sinni, ásýnd og trúverðugleika og í hröðum skrefum og gera nauðsynlegar breytingar svo að alls konar fólk geti hér stundað stjórnmál í öllum embættum. Hvort sem það fer um gangandi, sitjandi eða liggjandi. Þetta þarf að gerast í fullu samráði við ólíka hópa fatlað fólks.“

Árni Freyr Haraldsson tók ljósmynd


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283