Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Heimur hljómsveitarstjórans – Daníel Bjarnason

 

Sinfóníuhljómsveitin frumsýndi í vikunni nýtt myndband sem kynnir Daníel Bjarnason hljómsveitarstjóra og staðarlistamann Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Myndbandið er það fyrsta af þremur sem gerð verða í vetur og veita innsýn í fjölbreytt starf hljómsveitarinnar.

Daníel Bjarnason gegnir margþættu hlutverki sem staðarlistamaður, bæði sem hljómsveitarstjóri og tónskáld. Framundan eru fjölmörg spennandi verkefni en Daníel mun stjórna hljómsveitinni á fjölda tónleika í vetur og fara með henni í tónleikferð um landið í október þar sem m.a. er flutt verk eftir hann sem ber titilinn Blow Bright.

Sinfóníuhljómsveit Íslands og Cincinnati Symphony Orchestra pöntuðu nýtt verk af Daníel sem frumflutt var í Bandaríkjunum í mars en Sinfóníuhljómsveitin frumflytur verkið á Íslandi á tónleikum í nóvember undir stjórn Daníels.

Myndbandið var tekið upp vorið 2015 þegar Daníel stjórnaði flutningi á Peter Grimes eftir Benjamin Britten.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283