Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ég er búin að missa 14 kíló!

$
0
0

Átak, aðhald, megrun, ég þoli ekki þessi hugtök! Þau eru úr sér gengin og neikvæð.

Það hugtak sem ég nota er breyttur lífstíll.

Mér finnst það hljóma svo mikið flottara og mér líður vel með að segja: „Nei takk! ég er að breyta um lífsstíl“ í staðinn fyrir „Nehh… ég er í megrun.“ Það er ekki alveg að gera sig hjá mér! Í raun þarf maður aldrei að tilgreina neina sérstaka ástæðu fyrir að neita einhverju – enginn á tilkall í slíka forvitnissvölun.

„Þetta er síðasti dagur í óhollustunni! Byrja á fullu á morgun.“

Hver getur ekki tengt sig við það að nota þessa setningu!? Váá… ég er búin að nota hana svona milljón sinnum og alltaf notaði maður þetta þegar maður fór í búðina og langaði í kexpakka eða nammistykki. „Æi ég byrja bara á morgun í staðinn fyrir í dag“

Haha! Eins og einhver trúi þessu! Sé alveg fyrir mér líkamann bregðast við: „HEEEY líffæri slakið á…hún ætlar ekki að byrja fyrr en á morgun“!! þú ert bara að blekkja sjálfa þig og engan annan! Og svo hugsarðu daginn eftir þegar röddin í höfðinu segir við mann við mann:“Ohh afhverju byrjaði ég ekki í gær!“

Ég var farin að sleppa mér algjörlega og hugsa bara: „Æi, þau sjá að ég lít svona út og þau verða bara að taka mér svona“ og þótt að mér liði illa þá var það samt ekki nóg til að koma mér af stað!.

Ég er ekki fullkomin þótt ég sé að skrifa pistla um hvað sé í gangi í mínu lífi öðru nær. Það hjálpar mér að halda áfram mínu striki og vita að ég sé kannski að hjálpa öðrum líka með að skrifa um mína sögu.

Ég á mína slæmu daga líka

Ég get vaknað einn daginn og langað ekkert annað en að vera heima og sleppa mér í áti!! Nammi, gos, kökur, kex, snakk ––you name it.

En það sem hjálpar mér í gegnum svona daga er að hugsa um börnin mín. Ég vil vera góð fyrirmynd fyrir þau, ég vil ekki vera mamman sem getur ekki beðið eftir að börnin sína fara að sofa svo maður geti hangið yfir imbakassanum og hámað í sig allskonar góðgæti og farið svo að sofa með magakvalir og tár á hvörmum.

Það var það sem ég gerði ALLTAF, kvöldið var minn versti óvinur, að kaupa þetta og hitt og svo gúffa því í mig á kvöldin. Það var mjög oft sem ég vaknaði á næturnar og sýrustigið í maganum á mér var svo hátt að ég þurfti bara að gubba strax!!!

En frá því ég byrjaði hjá Sverri í grenningarráðgjöf þá hef ég ekki upplifað þetta sem er bara ótrúlegt því ég var alltaf talin vera með viðkvæman maga! Uuuhh neei, ég er ekkert með viðkvæman maga ég var bara að borða ógeðslega fæðu og líkaminn minn var bara ekki að höndla það. Það er hinn „súri“ raunveruleiki.

Oooog ég er búin að missa 14 kíló! 14 KÍLÓ!!! Spáið í það! Ég byrjaði í byrjun júlí og ég gæti ekki verið ánægðari með lífið og verð alltaf hamingjusamari og sáttari með mig. Loksins, LOKSINS, er þetta að takast!!

Ég ætla ekki að gefast upp, það er bara ekki í boði.

Ég hugsa–ég fæ bara eitt líf, og á bara einn líkama!

Næsti pistill mun koma þegar ég verð búin að missa THE BIG 20 😉

Heyrumst síðar

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283