Fimmtudagskvöldið 22. október kl. 20.00, fer annað Höfundakvöld haustsins fram í Gunnarshúsi, húsi Rithöfundasambandsins við Dyngjuveg 8.
Þá mun Halla Þórlaug Óskarsdóttir spjalla við þá Jón Kalman Stefánsson og Sigurjón Bergþór Daðason um nýútkomnar bækur þeirra, auk þess sem höfundarnir lesa úr bókum sínum og árita þær fyrir þá sem vilja. Allir eru velkomnir meðan stólar leyfa, aðgangseyrir er 1000 krónur og veitingar innifaldar. Einnig verður hægt að kaupa bækurnar á sérstöku kynningarverði.
Jón Kalman Stefánsson gefur um þessar mundir út hjá Bjarti skáldsöguna Eitthvað á stærð við alheiminn, en hún er framhald bókarinnar Fiskarnir hafa enga fætur sem kom út árið 2013. Hér lýkur ættarsögunni sem hófst í þeirri bók og teygir sig frá Norðfirði forðum til Keflavíkur dagsins í dag, með viðkomu á Miðnesheiðinni. Fiskarnir hafa enga fætur kom nýlega út á frönsku og hefur nú verið tilnefnd til tveggja virtra bókmenntaverðlauna í Frakklandi, Prix Médicis og Prix Femina.
Sigurjón Bergþór Daðason gefur út hjá Veröld skáldsöguna Hendingskast, en í henni er sagt frá óvæntum atburðum sem koma róti á líf sögupersónanna. Þetta er fyrsta bók Sigurjóns en hann starfar einnig sem klarinettuleikari.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir hefur áður stjórnað Höfundakvöldi í Gunnarshúsi, skrifar um bókmenntir og stundar myndlist.