Í góðan tíma hef ég útbúið sjálf gjafabox til að setja smærri gjafir í. Amma mín er líka ótrúlega dugleg í höndunum og býr til vettlinga, hálsmen, armbönd og annað fyrir konur á öllum aldri í fjölskyldunni og henni fannst svo dýrt að kaupa box utan um gjafirnar. Því hef ég verið að búa til fyrir hana gjafabox í mismunandi stærðum.
Eina sem þarf er ferkantað blað og skæri eða dúkahníf. Ekkert lím eða vesen.
Mér finnst skemmtilegt að versla pappír í föndurbúðum, helst þau sem eru með mismunandi munstur hvort sínum megin. Einnig hef ég verið að nýta gömul Andrésar Andar-blöð til að útbúa gjafabox.
Fyrir lítil box sem eru fyrir skartgripi fyrir litlar stelpur eða stráka hef ég lokið 15×15 cm og neðri helminginn 14×14 cm. Svo er hægt að hafa boxin stærri eða minni og það eina sem skiptir máli er að hafa pappírinn jafnan og að lokið sé 1 cm stærri en neðri hlutinn.