Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Óveður á Facebook

$
0
0

Ég heiti Elín Fanndal og mig langar að deila með ykku reynslu minni af því að setja inn færslu í kvennahóp á Facebook, færslu sem gæti flokkast undir gálgahúmor.

Ég sá mynd af Caitlyn Jenner á Facebook (hún er raunveruleikastjarna sem fór í kynleiðréttingu í fyrra) grátandi af gleði yfir því að hún var valin kona ársins af tímaritinu Glamour.

1437025102_21496740_ver1.0_640_480

Við myndina hafði einhver karlmaður skrifað:

Þær verða að játa sig sigraðar. Við gerum bara allt betur en þær!

Svarti húmorinn í mér tók öll völd við þessa lesningu og mér fannst tilvalið að snúa þessu við og og láta þetta hljóma svona:

Játum okkur sigraðar. Þeir gera bara allt betur en við!

Þessu póstaði ég á mína síðu á Facebook. Svo mundi ég eftir hópi sem heitir Beauty Tips 30+. Þar hef ég ekki verið virk en þar eru bara konur og eflaust einhverjar með jafn svartan húmor og ég. Leyfum þeim að njóta líka. Smellti á enter og þangað fór brandarinn og ég hugsaði ekki um það meira.

Það sem ég gerði mér ekki í hugarlund þarna var að með þessu myndi ég stofna til orrustu þar sem öll spjót myndu beinast að mér. Mér fannst þetta bara asskoti vel til fundið grín hjá mér á karlaveldið. Hann fór í kynleiðréttingu og hún var svo valin kona ársins! Kolsvart!

Svo hugsaði ég ekki meira um það þar til ég sá komment á brandarann um að ég væri fordómafull manneskja í garð transfólks.

Ha? Úff, þetta fannst mér alls ekki í lagi svo ég skrifaði strax til baka að þetta innslag væri alls ekki viðhorf mitt til transfólks heldur bara sótsvartur og/eða aulahúmor minn og hugsað, eins og áður sagði, sem brandari á karlaveldið.

Nú fór heldur betur að hvessa á Beauty tips. Sumar konur tóku útskýringar mínar sem sagt ekki gildar og sögðu mig með dulda fordóma. Ég kallaði jú hana hann. Það að gera það væru fordómar.

Ítrekað reyndi ég að útskýra viðhorf mín og að ég styddi transfólk hundrað prósent. Ég sagði þeim frá því að ég þekkti til einnar ungrar stúlku sem væri í þessu ferli. Hún var kölluð sínu skírnarnafni þar til hún ákvað sjálf að hún vildi láta kalla sig Jóhönnu Ernu Guðrúnardóttur. Ég og aðrir biðum bara eftir því að hún tæki þessa ákvörðun sjálf. Mér persónulega reyndist alltaf afar auðvelt að hugsa hana sem stúlku, því hún er það og hefur alltaf verið þótt hún hafi fæðst í líkama drengs.

Jóhanna verður, að loknu erfiðu aðgerðarferli, gullfalleg kona en fyrst og fremst er hún falleg sál. Ég nafngreindi hana ekki inni á Beuty Tips 30+ af sjálfsagðri tillitssemi við hana en fékk leyfi hennar til að gera það hér í þessum pistli.

En víkjum aftur að þessum dásamlega hópi kvenna á Facebook. Ég átti orðið í vök að verjast því nokkrar konur innan hópsins voru harðákveðnar í því að ég væri fordómafull, heimsk, stórkostleg tík og illa innrætt. Svo laug ég örugglega til um að þekkja til transkonu.

Hvergi gætu svona hlutir farið svona úr böndunum nema á meðal kvenna. Það er sorgleg staðreynd að mínu mati! Það er mér hulin ráðgáta hvernig þær bláókunnugar konurnar fengu út þessa niðurstöðu. Ég reyndi að vera málefnaleg í þessari orrahríð en ég sýndi þó einu sinni klærnar á móti og sagði einni að taka hausinn upp úr hafragrautsskálinni og hugsa um hvað þetta snerist.

Það var farið að fara verulega um mig og mér leið orðið mjög illa yfir þessum árásum á opinberum vef. Sært stolt mitt bannaði mér samt að biðjast afsökunar á þessu orðalagi í brandaranum og ástæðan er einfaldlega sú að þetta var hugsað sem grín og það að ég ber enga fordóma í garð transfólks.

Ég fagna því að við lifum á tímum sem gera fólki mögulegt að lifa sátt i eigin skinni því það veitir fólki hamingju. Ég vil taka það skýrt fram að langflestar konur innan hópsins voru málefnalegar fyrir utan þær allra hörðustu sem voru fáar en ansi aðgangsharðar. Margar skildu grínið, aðrar ekki og sögðu það bara. Einhverjum fannst það ekki viðeigandi. Besta mál!

Það var þessi litli hópur sem olli mér hugarangri, þær bara gátu ekki sagt þetta gott. Þær hlustuðu ekki. Skotmarkið var fundið og ég skyldi lögð af velli opinberlega og viðurkenna fordóma mína fyrir þessar tvær setningar og það með illu eða góðu.

Og áfram hélt orrahríðin, pólitískur rétttrúnaður kom inn í umræðuna og sennilega settur fram mér til varnar en ég sjálf bara skildi ekki hvernig hægt væri að koma sér í þessa stöðu með einu litlu brandarainnleggi. Þarna hefði ég sennilega átt að segja skilið við þessa umræðu en það er erfitt að sitja eftir í tóminu með þessar setningar hangandi yfir sér: Þú ert fordómafull. Þú ert yfirlætisleg. Þú ert heimsk. Þú ert illa innrætt. Þú ert stórkostleg tík. Já, og mér var líkt við svín líka.

Ég skal vera alveg heiðarleg og segja að þetta sveið í sálina. Já, það sveið bara fjandi sárt! Ég er þó orðin 52 ára gömul og ýmsu vön.

Ég þakkaði Guði á þessum tímapunkti að hafa ekki verið ein af þeim sem opinberaði reynslu sína af kynferðisofbeldi í þessum hópi. Það munaði reyndar mjóu að ég gerði það á sínum tíma en þá var komin þreyta í hópinn gagnvart því málefni og ég lagði ekki í það.

Vegna þessa alls hafði ég samband við Jóhönnu Ernu, transstúlkuna sem ég gat um áðan, og lagði dæmið bara á borðið fyrir hana. Ég er ekki í nánum tengslum við hana í dag en hún hefur alltaf átt stað í hjarta mínu og hún veit það. Í fáum orðum sagt þá skildi hún ekki fárviðrið og fannst þetta bara fyndið og er ekki sátt við Caitlyn og það sem hún stendur fyrir.

caitlyn-jenner

Caitlyn hefur sætt mikilli gagnrýni meðal transfólks sem margt hefur afþakkað það að hún gerist talsmaður þeirra. Um það má lesa hér og hér.

En ef transstúlkan Jóhanna sér ekki synd mína í þessu, hvar liggur hún þá? Jóhanna veit auðvitað að ég hef sýnt henni stuðning og hún veit alveg hvar hún og annað transfólk hefur mig. Hinar höfðu bara orð mín fyrir því og það dugði sumum þeirra bara ekki.

Staðreyndin er samt sú að langflestar konur þarna inni voru málefnalegar, hvort sem þær voru sammála mér varðandi brandarann eða ekki. Ég er þakklát fyrir stuðninginn sem þær sýndu mér og þakklát sjálfri mér að halda ró minni að mestu og láta ekki æsing stjórna því sem ég skrifaði á móti þeim sem blésu í herlúðra gegn mér á kolröngum forsendum að mínu mati.

Þær sem duttu í æsingar/fordóma/alhæfingar/pyttinn sitja uppi með að hafa sett á netið fúkyrði og svívirðingar um bláókunnuga konu sem álpaðist til að setja inn svartan, gálga/aula/húmor í kvennahópinn þeirra á fésinu. Þau ummæli verða ekki tekin aftur!

Þessi heljarinnar orðhengilsháttshystería yfir einum aulabrandara tók þrjá sólarhringa, gott fólk, og er enn ekki lokið þegar ég skrifa þetta.

Ég fór að velta fyrir mér að lokum hvort þetta gæti hafa farið mest fyrir brjóstið á þeim:

Játum okkur sigraðar. Þeir gera bara allt betur en við!

Þessi lífsreynsla leiddi huga minn einnig að því að það gæti verið ákveðin ástæða fyrir því að við konur stjórnum ekki heiminum í dag.

Við erum uppteknar við annað!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283