Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stólaleikur á Alþingi

$
0
0

Gunnar Smári Egilsson deildi eftirfarandi færslu á Facebook og gaf okkur leyfi til að birta hér:

11260705_989809344370897_3659151881586394310_o„Hér er smá samkvæmisleikur. Hverjir myndu taka sæti á Alþingi Íslendinga ef niðurstöður kosninga yrðu samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup, atkvæði flokkanna skiptust milli kjördæma með sama hætti og í síðustu kosningum og flokkarnir biðu fram óbreytta lista frá kosningunum 2013. Ef þetta allt gengi eftir (sem er ekki líklegt en gefur samt ágæta mynd af stöðunni í stjórnmálum dagsins) yrði niðurstaðan þessi:

Þingmenn Norðurlands vestra yrðu: Einar K. Guðfinnsson (D), Hildur Sif Thorarensen (P), Gunnar Bragi Sveinsson (B), Haraldur Benediktsson (D), Herbert Snorrason (P), Ólína Þorvarðardóttir (S), Lilja Rafney Magnúsdóttir og uppbótarþingmaðurinn Guðrún Ágústa Þórdísardóttir (P). Ásmundur Einar Daðason (B), Elsa Lára Arnardóttir (B) og Jóhanna María Sigmundsdóttir (B) féllu af þingi.

Þrír Píratar inn og þrír Framsóknarmenn út á Norðurlandi vestra. Engin breyting á hlutfalli kynja; fjórir karlar og fjórar konur.

Þingmenn Norðurlands eystra yrðu: Aðalheiður Ámundadóttir (P), Kristján Þór Júlíusson (D), Steingrímur J. Sigfússon (VG), Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (B), Þórgnýr Thoroddsen (P), Valgerður Gunnarsdóttir (D), Kristján Möller (S), Bjarkey Gunnarsdóttir (VG), Helgi Laxdal (P) og uppbótarþingmaðurinn Edward H. Huijbens (VG). Þessi falla af þingi: Höskuldur Þórhallsson (B), Líneik Anna Sævarsdóttir (B), Þórunn Egilsdóttir (B) og Brynhildur Pétursdóttir (BF).

Þrír Framsóknarmenn og einn frá Bjarti framtíð falla út en þrír Píratar og einn frá VG koma inn í staðinn. Tveimur fleiri konur falla út en koma inn. Á eftir verða aðeins þrjár konur á móti sjö körlum í Norðurlandi eystra.

Þingmenn Suðurkjördæmis yrðu: Smári McCarthy (P), Ragnheiður Elín Árnadóttir (D), Halldór Berg Harðarson (P), Sigurður Ingi Jóhannsson (B), Unnur Brá Konráðsdóttir (D), Björn Þór Jóhannesson (P), Ásmundur Friðriksson (D), Svafar Helgason (P), Oddný Harðardóttir (S) og uppbótarþingmaðurinn Vilhjálmur Árnason (D).

Þau sem missa þingsæti sitt eru Silja Dögg Gunnarsdóttir (B), Páll Jóhann Pálsson (B), Haraldur Einarsson (B) og Páll Valur Björnsson (BF). Þrír framsóknarmenn og einn frá Bjartri framtíð detta út en fjórir Píratar koma inn í staðinn. Allir Píratarnir eru karlar og því fækkar konum um eina. Frá Suðurlandi koma sjö karlar en aðeins þrjár konur.

Þingmenn Suðvesturkjördæmis yrðu: Birgitta Jónsdóttir (P), Bjarni Benediktsson (D), Björn Leví Gunnarsson (P), Ragnheiður Ríkarðsdóttir (D), Hákon Einar Júlíusson (P), Árni Páll Árnason (S), Jón Gunnarsson (D), Árni Þór Þorgeirsson (P), Eygló Harðardóttir (B), Ögmundur Jónasson (VG), Vilhjálmur Bjarnason (D) og uppbótarþingmennirnir Berglind Ósk Bergsdóttir (P) og Katrín Júlíusdóttir (S).

Þau sem falla af þingi eru Willum Þór Þórsson (B), Guðmundur Steingrímsson (BF), Þorsteinn Sæmundsson (B) og Elín Hirst (D). Tveir Framsóknarmenn, einn frá Bjartri framtíð og einn sjálfstæðismaður fara út en fjórir Píratar koma inn í kraganum. Óbreytt hlutfall kynja: fimm konur og átta karlar.

Þingmenn Reykjavíkur suður yrðu: Ásta Helgadóttir (P), Hanna Birna Kristjánsdóttir (D), Sigurbjörg Erla Egilsdóttir (P), Sigríður Fossberg Thorlacius (P), Svandís Svavarsdóttir (VG), Guðlaugur Þór Þórðarson (D), Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (S), Arnaldur Sigurðsson (P), Birkir Fannar Einarsson (P) og uppbótarþingmennirnir Vigdís Hauksdóttir (B) og Sigríður Á. Andersen (D).

Þau sem falla af þingi eru Róbert Marshall (BF), Karl Garðarsson (B), Helgi Hjörvar (S) og Óttarr Proppé (BF). Tveir þingmenn Bjartrar framtíðar, einn frá Framsókn og einn frá Samfylkingunni víkja fyrir fjórum Pírötum. Konum fjölgar hér um tvær. Frá Reykjavíkur suður koma átta konur en aðeins þrír karlar.

Þingmenn Reykjavíkur norður yrðu: Helgi Hrafn Gunnarsson (P), Halldóra Mogensen (P), Illugi Gunnarsson (D), Katrín Jakobsdóttir (VG), Bjarni Rúnar Einarsson (P), Salvör Kristjana Gissurardóttir (P), Össur Skarphéðinsson (S), Brynjar Níelsson (D), Þórður Sveinsson (P) og uppbótarþingmennirnir Frosti Sigurjónsson (B) og Steinunn Þóra Árnadóttir (VG). Þau sem falla af þingi eru Björt Ólafsdóttir (BF), Sigrún Magnúsdóttir (B), Birgir Ármannsson (D) og Valgerður Bjarnadóttir (S).

Út fer einn frá hverjum; Bjartri framtíð, Sjálfstæðisflokki, Framsókn og Samfylkingunni fyrir fjóra Pírata. Konum fækkar um eina og eftir standa sjö karlar og fjórar konur.

Breytingar á þingliði flokkanna verða mestar hjá Pírötum. Þingflokkurinn fer úr þremur þingmönnum í 25 þingmenn.

Birgitta, Helgi Hrafn og Ásta Helgadóttir halda sætum sínum en ný á þingi yrðu (miðað við framboðslista 2013): Hildur Sif Thorarensen, Herbert Snorrason og Guðrún Ágústa Þórdísardóttir frá Norðurlandi vestra. Aðalheiður Ámundadóttir, Þórgnýr Thoroddsen og Helgi Laxdal frá Norðurlandi eystra. Smári McCarthy, Halldór Berg Harðarson, Björn Þór Jóhannesson og Svafar Helgason af Suðurlandi. Björn Leví Gunnarsson, Hákon Einar Júlíusson, Árni Þór Þorgeirsson og Berglind Ósk Bergsdóttir úr kraganum. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Sigríður Fossberg Thorlacius, Arnaldur Sigurðsson og Birkir Fannar Einarsson úr Reykjavík suður. Og Halldóra Mogensen, Bjarni Rúnar Einarsson, Salvör Kristjana Gissurardóttir og Þórður Sveinsson úr Reykjavík suður.

Sá flokkur sem tapar mestu er Framsókn. Flokkurinn hefur nú 19 þingmenn en fengi aðeins sex, missti 13 þingmenn.

Þingflokkur Framsóknar yrði Gunnar Bragi Sveinsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Eygló Harðardóttir, Vigdís Hauksdóttir og Frosti Sigurjónsson — einn framsóknarmaður úr hverju kjördæmi. Þeir sem falla af þingi eru Ásmundur Einar Daðason, Elsa Lára Arnardóttir, Jóhanna María Sigmundsdóttir, Höskuldur Þór Júlíusson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórunn Egilsdóttir, Silja Dögg Gunnarsdóttir, Páll Jóhann Pálsson, Haraldur Einarsson, Willum Þór Þórsson, Þorsteinn Sæmundsson, Karl Garðarsson og Sigrún Magnúsdóttir.

Þótt Björt framtíð tapi minna fylgi en Framsókn þá þurrkast þingflokkurinn út þar sem flokkurinn nær ekki yfir 5% markið. Óttarr Proppé, Guðmundur Steingrímsson, Róbert Marshall, Brynhildur Pétursdóttir, Björt Ólafsdóttir og Páll Valur Björnsson falla öll af þingi.

Sjálfstæðismenn tapa tveimur mönnum, fara út 19 þingmönnum í 17. Elín Hirst og Birgir Ármannsson falla af þingi en aðrir halda sætum sínum.

Samfylkingin tapar líka tveimur mönnum, fara úr 9 þingmönnum í 7. Helgi Hjörvar og Valgerður Bjarnadóttir falla af þingi.

Vinstri hreyfingin – grænt framboð vinnur einn mann; fer úr sjö manna þingflokki í 8 þingmenn. Nýi þingmaðurinn kemur inn sem uppbótarþingmaður í Norðurlandi eystra og heitir Edward H. Huijbens. Það skal þó ítrekað að það nægir að hósta aðeins á þessar niðurstöður til að þessi þingmaður VG kæmi inn í einhverju allt öðru kjördæmi.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283