Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hollt og heilnæmt konfekt

$
0
0

140 g kakósmjör
30 g hnetusmjör
30 g kókossmjör
60 g hreint ósætt kakó
10–15 dropar vanillustevía frá Via Health
10–15 dropar karamellustevía frá Via Health
2 msk hunang eða agave síróp (má sleppa)
¼ tsk sjávarsalt

Kakó-, hnetu- og kókossmjörið er brætt í vatnsbaði. Ef þú finnur ekki kókossmjör er lítið mál að búa það til. Það er gert með því að setja ristaðar kókosflögur í matvinnsluvél ásamt 1 msk. af kókosolíu. Vélin er látin ganga þar til flögurnar verða að smjöri. Einnig má nota meira af kakósmjöri í staðinn en kókóssmjör er einstaklega kremað og ljúft á bragðið.

Þegar smjörið er bráðnað er því hellt í skál ásamt hinum innihaldsefnunum og hrært í nokkrar mínútur með gaffli þar til silkimjúkt og kekkjalaust. Gott er að hræra með gafflinum í 3–4 mínútur svo súkkulaðið verði mjúkt og fái fallega áferð. Smakkaðu þig endilega áfram með stevíuna og saltið. Þegar bragðið er orðið ómótstæðilegt er blandan sett í mót með skeið. T.d. sílíkonmót eða örsmá möffinsform. Séu hin síðarnefndu notuð má skreyta molana t.d. með goji-berjum, kókosflögum eða pekanhnetum.

Því næst fara mótin inn í frysti í 30 mínútur. Passaðu að mótin séu bein á meðan molarnir stífna. Best er að geyma molana í lokuðu íláti í frysti.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283