Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ljósmyndanámskeið í vetrarfríi Kópavogs

Fréttatilkynning:

Dagana 25.–26. febrúar verður vetrarfrí í skólum í Kópavogi. Í tilefni þess verður mikið um að vera í menningarhúsunum við Hamraborgina. Í Gerðarsafni verður boðið upp á tveggja daga ljósmyndanámskeið fyrir 12 ára og eldri þar sem Ingvar Högni Ragnarsson mun kenna grunnatriði í ljósmyndun. Námskeiðið stendur yfir báða dagana og mun hópurinn læra að mynda á eigin myndavél eða síma. Skráning fer fram á gerdarsafn@kopavogur.is

Á námskeiðinu mun Ingvar Högni kenna hópnum tæknileg atriði við ljósmyndun, þar á meðal muninn á filmu og stafrænni ljósmyndun. Hann mun fjalla um mismunandi aðferðir við ljósmyndun og vísa í verk íslenskra og erlendra ljósmyndara. Ingvar Högni mun einnig leiða hópinn um sýningu sína Uppsprettur, sem stendur yfir í Gerðarsafni, og ræða inntak verkanna og aðferðir sínar. Á seinni hluta námskeiðisins munu nemendur gera eigin ljósmyndir og ræða sín verk.

Ingvar Högni Ragnarsson (f. 1981) útskrifaðist frá Listaháskólanum árið 2007 eftir að hafa áður stundað nám við Den Koninklijke Academie von Beeldende Kunsten, Den Haag. Árið 2015 var hann tilnefndur til alþjóðlegu ljósmyndaverðlaunanna Foam Paul Huf Awards sem ætlað er ungum listamönnum. Hann hefur verið valinn sem fulltrúi íslenskra ljósmyndara í fjölda verkefna á síðustu árum og hefur meðal annars sýnt verk sín hérlendis, í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Þýskalandi og Búkarest.

Námskeiðið fer fram kl. 13–17 fimmtudaginn 25. febrúar og kl. 13–16 föstudaginn 26. febrúar. Námskeiðið er ætlað 12 ára og eldri og kemur hver með sína myndavél eða síma. Takmarkaður fjöldi kemst að og er tekið við skráningu á netfangið gerdarsafn@kopavogur.is. Námskeiðið er gjaldfrjálst.

Vetrarfríið í menningarhúsum Kópavogs

Í vetrarfríinu er boðið upp á fjölbreytta dagskrá í menningarhúsunum við Hamraborgina.

Í Bókasafni Kópavogs verður kvikmyndasýning á Harry Potter og Eldbikarnum á jarðhæð aðalsafns við Hamraborg á fimmtudaginn 25. febrúar kl. 11–14. Ávaxtasafi og popp verður í boði undir flutningnum. Sama dag verður ratleikur í gangi og vinningar í boði. Á föstudeginum verður kvikmyndasýning á The Spiderwich Chronicles kl. 11–13 á jarðhæð aðalsafns við Hamraborg og Spilavinir verða á safninu kl. 13–15.

Á Náttúrufræðistofu verður sérsýning um fálka og fugla, sem getið er í gömlum rituðum heimildum, og fuglateikningar eftir Benedikt Gröndal, sem birtust í fyrstu fuglamyndabók sem var gerð á Íslandi.

Í Salnum verður tónleikritið Heyrðu villuhrafninn mig flutt á laugardeginum 27. febrúar kl. 13. Tónleikhús með óvenjulegum hljóðum, íslenskum þulum og lögum þar sem er sagt frá ævintýrum Fíu frænku og vini hennar Dúdda þar sem Villuhrafninn, dvergurinn Bokki og leiðindaskjóðan Bárðarbunga koma við sögu. Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari flytja hljóðleikritið, sem er 40 mín á lengd.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283