Þessi stuttmynd hæðist að hollráðum sem konum er ráðlagt að fylgja til að koma í veg fyrir að þeim sé nauðgað. Ráðin eru fengin úr tímaritum á borð við glamúrblaðið Cosmopolitan, af kennslusíðunni Wiki-how og af nemendavef Colorado háskóla. Ráðin eru mörg hver ansi undarleg eins og til dæmis það að „Slást eins og geðsjúkur köttur.“ Myndin undirstrikar þá fáránlegu og því miður útbreiddu hugsun að nauðgun sé á einhvern hátt þolendum að kenna.
↧