Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Einn öflugasti óháði fjölmiðill landsins

$
0
0

Kvennablaðið átti metviku dagana 18. – 24. apríl en alls heimsóttu 147.877 vefinn og flettingar á einstakar síður voru margfalt fleiri. Svona miklar heimsóknir eru okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut. Við erum kampakát! Og við viljum hvetja ykkur til að hjálpa okkur að gera betur!

Það er þjóðþrifaverk að styrkja Kvennablaðið og þar með óháða fjölmiðlun og óheft skoðanaskipti. Án afskipta stjórnvalda, hulduherja, fjárfesta og hagsmunaaðila er rekstur fjölmiðla enginn pönnukökubakstur og við biðjum ykkur um að styrkja starfsemi okkar svo við megum gera enn betur.

Allir styrkir renna óskiptir til blaðamanna sem vinna frábært starf á Kvennablaðinu með hagsmuni almennings að leiðarljósi.

Kvennablaðið er vettvangur skoðanaskipta og þar hafa allir rödd sem eitthvað vilja til málanna leggja. Við hvetjum fólk til að skrifa í Kvennablaðið og breyta samfélaginu til hins betra með opinni og óháðri umræðu. Sendið okkur póst á kvennabladid@kvennabladid.is

Kvennablaðið er umbótaafl sem ekki er stjórnað af hagsmunaaðilum og hefur tekjur eingöngu af auglýsingasölu og styrkjum frá einstaklingum.

Það er ótrúlega gáfulegt að auglýsa í Kvennablaðinu þar sem lesendur eru í meirihluta konur – sem allir vita að öllu ráða – og við blásum á þær úrtöluraddir sem sölumenn okkar hafa stundum fengið að blaðið sé of róttækt, vinstrisinnað, óheflað eða eitthvað annað.

Róttæklingar, vinstrisinnar, Píratar, óheflaðir umbótasinnar og allskonar óróaseggir kaupa vörur og þjónustu ekki síður en aðrir borgarar! Kvennablaðið.is er heimili Kvennabladid.is, Sykur.is, Sannleikurinn.is og EatRVK.is Hafið endilega samband við okkur hér – auglysingar@kvennabladid.is.

Takk fyrir okkur!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283