Ingibjörg Kristín Lúðvíksdóttir móðir Davíðs Oddssonar, forsetaframbjóðanda og ritstjóra Morgunblaðsins, lést á dögunum. Hún fæddist í Reykjavík árið 1922 og var því 93 ára. Ingibjörg lauk prófí í Verslunarskóla Íslands um og starfaði eftir það hjá lögfræðistofu Einars Baldvins Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar og Guðmundar Péturssonar.
Í frétt Morgunblaðsins af andláti Ingibjargar kemur fram að Ingibjörg var gift Snorra Björnssyni, síðar í sambúð með Oddi Ólafssyni, föður Davíðs, og síðar gift Gunnari B. Ólafssyni. Ingibjörg Kristín lætur eftir sig þrjá syni, Björn Snorrason, Davíð Oddsson og Loga Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.