Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Þetta var utanríkisráðherra að brasa á meðan við fögnuðum sigri landsliðsins

$
0
0

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Robert O. Work, varavarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, hafa undirritað sameiginlega yfirlýsingu um samstarf á sviði varnarmála. Yfirlýsingin er viðbót við samkomulag sem undirritað var við bandarísk stjórnvöld haustið 2006 og rúmast innan tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1951.

„Umhverfi öryggismála í Evrópu og norðanverðu Atlantshafi hefur breyst á undanliðnum tíu árum og íslensk og bandarísk stjórnvöld eru sammála um að tilefni sé til að endurspegla það í yfirlýsingu sem þessari“, er haft eftir Lilja Alfreðsdóttur utanríkisráðherra á vef utanríkisráðuneytisins.

Í tilkynningunni kemur fram Bandaríkjaher hafi frá árinu 2008, annast loftrýmisgæslu á Íslandi á vegum Atlantshafsbandalagsins einu sinni á ári og undanfarin tvö ár hafa bandarískar kafbátaleitarvélar haft tímabundna viðveru hér á landi. „Það er einkum hin tímabundna viðvera Bandaríkjahers hér á landi, sem hefur verið að þróast undanfarin ár og er stigsbreyting á okkar samstarfi, sem við viljum formfesta með þessum hætti, enda er gegnsæi afar mikilvægt í samskiptum ríkjanna. Um leið gefst hér gott tækifæri til að árétta gagnkvæmar varnarskuldbindingar og áframhaldandi samráð og samvinnu í farsælu varnarsamstarfi sem hefur farið vaxandi á síðustu árum“, segir í tilkynningunni og er haft eftir Lilju.

Yfirlýsingin kveður meðal annars á um áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna við loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hér á landi og tímabundna viðveru kafbátarleitarvéla, náið samráð um öryggis- og varnarmál, viðhald og rekstur varnarmannvirkja, upplýsingaskipti og hagnýtt samstarf, meðal annars á sviði æfinga, leitar og björgunar og neyðaraðstoðar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283